Tíminn - 04.04.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 04.04.1976, Blaðsíða 15
Sunnudagur 4. apríl 1976. TÍMINN 15 um, og hins vegar prjónaður og ofinn fatnaður, sem seldur er i umboðssölu fyrir ýmsa fram- leiðendur. Þá er fyrirtækið og að leita fyrir sér með nýjar vör- ur, og hafa nú fyrstu sendingar af regnfatnaði verið fluttar ut- an. Þess má geta, til aukins fróöleiks, að á siðustu árum hefur útflutningur Hilduhf. ver- iö sem hér segir: Árið 1974 48 milljónir, árið 197 5 73 milljónir og árið 1976 170 milljónir, en að visu er sú tala áætluð. Arið 1973 óskuðu fjórir fram- leiðendur prjónavara eftir sam- starfivið Hilduhf. um aðgerðir i sölumálum. Það voru Prjóna- stofa Borgarness hf., Pólar- prjón hf. Blönduósi, Dyngja hf. Egilsstöðum og Katla h. f. Vik. Siðar bættist Max hf. i Reykja- vik i hópinn. Með aðstoð Ot- flutningsmiðstöðvar iðnaðarins og tilstyrk Iðnrekstrarsjóðs voru farnar söluferðir til Bandarikjanna árin 1974 og 1975. Markaðstækifæri reyndust ótviræð, en hins vegar þótti i ýmsu ábótavant þeim vörum, sem boðnar voru. Þvi var á sið- ast liðnu ári ráðizt i að ráða er- lendan hönnuð, sem þekkti til markaðarins og þeirra verzl- ana, sem Hilda skiptir aðallega við. Hönnuðurinn vann siðan i nánu samstarfi við stærstu við- skiptaaðila fyrirtækisins. Þetta virðist hafa gefið góða raun, og kaupendur hafa tekið þessum nýja fatnaði opnum örmum. Hver verksmiðja er eigandi á- kveðinnar vörutegundar sem Hilda selur i umboðssölu. Vegur islenzku ullarvaranna hefur farið vaxandi á erlendum mörkuðum undanfarin ár. Til þess liggja margvislegar ástæð- ur, en nokkrar má nefna sem dæmi: Almennir neytendur leita meira eftir náttúrlegum efnum nú en áður. Vegna mikill- ar hækkunar á oliuverði stendur ullin sig nú betur i samkeppni viö gerviefni. Þá er og smám saman að koma i ljós árangur af þvi starfi sem unnið hefur verið á undanförnum árum, varðandi markaðsmálin og gæði islenzku varanna eru að verða betur þekkt á hinum erlendu mörkuð- um. Hafa þarf ihuga, að þótt við sjálf séum sannfærð um ágæti islenzkra ullarvara, þá tekur það mörg ár að skapa vörunum álit og viðurkenningu á mörk- uðunum i harðri samkeppni við ótrúlegan fjölda erlendra fata- framleiðenda. En stöðugt fleiri neytendur gera sér grein fyrir sérkennum islenzku ullarvar- anna. íslenzku ullarvörurnar eru einkum keyptar af fólki sem hefur allháar tekjur, og rannsóknir sýna, að höfuðkostir varanna eru taldir vera hlýindi, þægileg snerting og jafnframt óvenjulegur léttleiki. Þá hafa náttúrlegu litirnir mikið að- dráttarafl. Sem dæmi um þann áhuga, sem þessar vörur hafa vakið, má nefna IGEDO sýninguna í Þýzkalandi núna i marz. Áður en sýningin hófst, hafði Auglýs ingastofa Kristinar Þorkeis- dóttur útbúið skreytingarefni, sem i framtföinni verður far- andsýning á vegum fyrirtækis- ins. Þá var helztu fjölmiðlum i Þýzkalandi tilkynnt fyrirfram um þátttöku Hildu hf. á sýning- unni. Árangurinn varð sá, að sýningarsvæði Hildu var eitt af þeim sem mesta athygli vöktu, og hlaut mikla eftirtekt fjöl- miðla jafnt sem kaupenda. Skreytingin þótti frábær og vör- urnar óvenjulegar. Margar greinar birtust i þýzkum blöð- um um islenzka ullarfatnaðinn, ogoftastþegar sagtvarfrá sýn- ingunni i blöðum, voru jafn- framt birtar myndir af islenzku framleiðslunni. Einnig eru væntanlegar greinar i timarit- um, sem þjóna innkaupaaðilum fataverzlana i Þýzkalandi, svo sem Textile Reports og fleiri. Þá voru og islenzkar ullarvör- ur sýndar á tizkusýningu sem haldin var i sambandi við sýn- inguna, þar sem kynntar voru helztu nýjungar i haust- og vetr- artizkunni 1976—1977. Enn fremur má bæta þvi hér við, að dagana 18,—21. marz tóku sjö islenzk fyrirtæki þátt i sýningunni Scandinavian Fashion Week I Kaupmanna- höfn. Fimm islenzk fyrirtæki, Alafoss hf., Samband isl. sam- vinnufélaga, Hilda hf., Prjóna- stofan Alis og Prjónastofa Borgarness sýndu þar islenzkar ullarvörur. öll þessi fyrirtæki sýndu mismunandi tegundir ull- arvöru, bæði úr hand- og vél- prjóni og ofnum efnum. Mikil breidd er nú komin i islenzku framleiðsluna, og á siöasta ári var lögð mikil áherzla á hönnun og gerð nýrra fata úr ullarefn- um. Einnig tóku þátt i þessari sýn- ingu tvö islenzk fyrirtæki, Grá- feldur hf. og Steinar Júliusson feldskeri, en þessi fyrirtæki framleiða mokkakápur og mokkajakka úr islenzkum loð- skinnum. —VS. tslenzkur ullarfatnaður skoöaður meö velþóknun. Frá vinstri: Tómas Holton og Robert Landau. — Timamynd: Róbert. r 1 11 í • I ' I >,, & <•’ ■ ú Framleiðsla Gráfeldar hf. Alafossvörur á Scandinavian Fashion Week. Vörur frá Hildu og Prjónastofu Borgarness á sýningunni Scandinavian Fashion Week I Kaupmannahöfn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.