Tíminn - 27.06.1976, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 27. júni 1976
BaAlif I Grimsey
Ingólfur Davíðsson:
Byggtog búið í
gamla daga
128
Gauti Hannesson kennari hef-
ur léö Grimseyjarmyndir i
þennan þátt. A einni myndinni
sést kirkjan til vinstri, skóla-
húsið og radiómastriö i miðju og
prestsetriö Miögaröar til hægri.
Myndin var tekin árið 1939.
Fyrrum var torfkirkja i Grims-
ey, en hún var rifin og ný kirkja'
byggö úr rekaviö 1867. Hún var
siðan endurbyggð 1935 og þá
færö um lengd sina frá Miö-
garöabænum vegna eldhættu.
Jafnframt var byggður kór viö
kirkjuna og hún endurvigð áriö
1956. Skólahúsiö var reist 1905.
Prestsetriö Miögaröar var
byggt úr dönskum trjáviö áriö
1905 og stendur enn ófúiö. Ariö
1960 var þvi breytt og gert ein-
lyft meö valmaþaki.
Sumir prestar hafa unað m jög
lengi i Grimsey og að ýmsu leyti
verið forvigismenn eyjar-
skeggja bæði á andlega og ver-
aldlega sviðinu. Pétur Guö-
mundsson var prestur I Grims-
ey 1868-1895. Hann ritaði annál
19. aldar, merkilegt rit. Séra
Matthias Eggertsson kom til
Grimseyjar árið 1895 og þjónaði
þar i 42 ár. Siðan hafa þjónað
prestar úr landi, en djákni sat
um hrið i Grimsey.
Ameriskur fræöimaöur,
Daniel W. Fiske lét sér mjög
t Sandvlk I Grlmsey
Bátar I Grlmsey á strlösárunum
annt um Grimseyinga. Vorið
1900 sendi hann forkunnar vand-
að tafl á hvern hinna 11 bæja I
eyjunni og setti þar á stofn
bókasafn árið eftir. Gaf siöan
þangað bækur árlega i mörg ár
og i erföaskrá sinní ánafnaði
hann Grímseyingúm 12 þúsund
dala sjóö, en það var þá mikiö
fé.
Torfbæirnir eru fyrir nokkru
horfnir úr Grimsey og nýtizku
hús reist i staðinn. í bók séra
Péturs Sigurgeirssonar —
Grimsey — er út kom 1971,
stendur aö Vallakot sé þá eini
torfbærinn, litil húsakynni, er
voru allt i senn ibúð, fjárhús og
hlaða. ,,Ég nem staðar fyrir
framan svarta bæjarburst, drep
á dyr og fer hálfboginn inn um
útidyr, sem snúa I suðurátt.
Löng göng liggja til litillar baö-
stofu, framhjá fjósdyrum á
vinstri hönd. Inn af baðstofu er
kokkhús með svefnbekk. Bóndi
var þá Stefán Eðvaldsson, sig-
maður i 37 ár, hressti oft eyjar-
búa með harmonikuleik sinum.
1 Vallakoti var eini köttur eyjar-
innar. Hann varð 23ja ára gam-
all.
»>
Myndir eru af Vallakoti i
Grimseyjarbók séra Péturs. A
mynd frá Sandvik I Grimsey er
verið að fleyta fram steyptu
keri til 10-15 metra bryggju
lengingar i júli 1939. Verkstjóri
Jón Dagsson. Þetta má kalla
upphaf að verulegri bryggju I
Sandvikinni, en bryggjan og
höfnin hafa verið endurbættar
mikið siðan.
önnur mynd frá Sandvik sýn-
ir baölif i ishafinu á árunum
1940-1945. Og á einni sjást bátar
við bryggju I Grimsey, senni-
lega á striðsárunum.
Loks er mynd af Borgarskeri
meö byggðina I bakgrunni. Ibú-
ar Grimseyjar munu vera 80-100
siöustu árin.
Getið var Grimseyjar i þætti
17. marz 1974.
Báðir Grlmseyjarprestarnir
Pétur og Matthias gerðu lengi
skipulegar veöurathuganir
þarna úti við Ishaf.
Athugasemd: I þættinum 30.
mai voru birtar myndir af
tveimur konum I islenzkum
búningum. Sú sem bar upphlut
og var á leið út á Lögberg, er
mér sagt að sé Sigriöur Björns-
dóttir, systir Sveins forseta, en
nafn hinnar i hátiöabúningnum
mun vera Ásta Gunnlaugsdótt-
ir.