Tíminn - 27.06.1976, Page 7
Sunnudagur 27. júni 1976
TÍMINN
7
HELGARSPJALL
Halldór Kristjónsson:
Að þorskastríði loknu
Landhelgissamningurinn i
Osló markar þáttaskil i sjálf-
stæöisbaráttu Islendinga yfir
tslandsmiöum innan 200 milna
markanna. Þar meö er náö þvi
takmarki, sem Islendingar
settu sér með landgrunns-
samþykktinni fyrir 28 árum, þvi
þaö voru Bretar, sem einkum
beittu sér gegn þvi, aö viö
næöum rétti okkar.
Þaö er rétt sem brezki ráö-
herrann segir, að hér hafi skyn-
semin sigrað. Þar meö er sagt,
að þaö hafi verið eitthvaö annaö
en skynsemin sem réöi fyrir
Bretum þegar þeir höfnuöu
samningum á siöasta hausti og
hófu þorskastrlöið þriöja.
Auðvitaö er þaö rétt, aö viö
höfum engan fisk aflögu til að
afsala okkur. En þó aö „félög til
verndar landhelginni” efni til
mótmælafunda hafa þau góðu
félög ekki veriö þess umkomin
að vernda landhelgina fyrir
veiðum Breta. Þær voru stað-
reynd. Og þær heföu haldiö
áfram.
Bretar hafa samningsbundinn
rétt til veiða i 6 mánuöi. A
Lækjartorgi er ályktað aö Haf
réttarráðstefnan ljúki störfum I
„ágúst til september”. Þaö er
blekking aö nefna ágúst i sam-
bandi viö lok hennar. Þau eru
ráðgerð 17. sepember. Hingaö
til hafa áætlanir um starfstima
hennar illa staöizt. t kosninga-
baráttunni 1971 sögöu sumir, aö
viö ættum aö láta 12 milur
nægja okkur þangaö til ráð-
stefnan heföi lokiö störfum.
Aörir leyföu sér að segja, aö þaö
væri ekki alveg vist að bindandi
niöurstaöa kæmi frá ráöstefn-
unni 1973. Og enn er þaö ekki al-
veg vist aö henni ljúki i sept-
ember hvaö sem ályktaö er á
Lækjartorgi.
En jafnvel þó að sú áætlun
stæðist — aldrei sliku vant —að
ráöstefnan lyki störfum upp úr
miöjum september eru sam-
þykktir hennar ekki á þeim
sama degi gildandi lög sem allir
verða aö hlýöa. Sameinuöu
þjóöirnar hafa ekki slikt lög-
gjafarvald. Það er heima hjá
hverri þjóö. Þar þarf aö full-
gilda samþykktina fyrir hvert
og eitt sjálfstætt riki og staö-
festa meö undirskrift. Viö
vonum aö Hafréttarráöstefiian
ljúki störfum meö samþykkt,
sem tryggi rétt okkar og viö
vitum, aö ekki veröur stætt á
öðru, en aö haga sér I samræmi
viö þessa væntanlegu sam-
þykkt. En viö vitum lika, að þaö
veröur litiö eftir af þessum 6
mánaöa samningstima þegar sú
samþykkt verður bindandi i
reynd. Þaö er blekking að nefna
ágúst I þvi sambandi —
heimskuleg blekking.
Hvers vegna er svo betra aö
láta Breta veiða hér samkvæmt
samningi en studda hervaldi?
Þar kemur þrennt til greina.
Samningurinn bindur þá til aö
viröa friöuö svæði eins og þau
eru og veröa ákveöin hverju
sinni.
Samningurinn tryggir ts-
lendingum aðstööu til aö
fylgjast meö þvi hvaöa veiöar-
færi Bretar nota.
Samningurinn skapar frið á
miöunum i staöinn fyrir það
hættuástand, sem menn og skip
bjuggu við og bindur þvi enda á
það taugastriö, sem þvi fylgdi.
Þetta er allt ávinningur aö
ógleymdu þvi, sem mest er um
vert:
Samningurinn tryggir þaö, að
Bretar hverfi af tslandsmiðum
alfarnir meö næstu jólaföstu
nema tslendingar sjái sér hag i
þvi aö semja viö þá um ákveöna
veiöi.
Formaður Alþýöuflokksins
sagöi i haust.aðenginhætta væri
þvi samfara þó að neitaö væri
samningum viö Breta.
Reynslan varð önnur. Nú
fáum viö enga reynslu af þvi
sem verða myndi og oröið hefði
ef ekki væri samningur. En
hrópyrði Björns Jónssonar og
annarra gapuxa hafa ekki
meira sönnunargildi en orö
Benedikts Gröndal i haust.
Menn geta alltaf veriö á móti
samningum vegna þess aö þeir
imyndi sér aö þeim fylgi ein-
hverjir leynisamningar um eitt-
hvað annaö.
Auövitaö er ekki hægt meö
neinum fiskveiöisamningum að
tryggja það, að Éfnahags-
bandalag Evrópu reyni aldrei
að beita okkur viðskipta-
þvingunum.
Sumir segja, að viö hefðum
komiztlengra meö hótun um úr-
sögn úr Atlantshafsbanda-
Ný Alafossbúð
flytur í gamla
Bryggjuhúsið
(VESTURGATA 2) jr ^
HPDUuS
Alafoss
Við hdfuni flutt vcrslun okkar
úr l>ingholtsstra*ti í
l>umla Bryggjuhúsió (Vcsturgötu 2)
þar scm við gctuin boðiö viðskiptavinuin
okkar uppá cnn bctri þjónustu cn fyrr.
laginu. Vilja þeir þá vegna
samninga um fiskveiöiréttindi
og efnahagsmál binda okkur til
ævarandi þátttöku i þvi banda-
lagi?
Þátttaka okkar i Atlantshafs-
bandalaginu er sérstakt mál.
Vfst sjá ýmsir þaö mál I ööru
ljósi en áöur eftir þaö sem gerzt
hefur. Margur þykist nokkurs
visari um utanrikispólitik
Bandarikjanna eftir þær fréttir
af CIA, sem hljóöbærar hafa
orðiö siöustu misseri. Ýmislegt,
sem sagt hefur veriÖ þegar
menn þykjast sjá hylla undir
þann möguleika aö herstööinni i
Keflavik yröi e.t.v. lokaö, er
lika sumum umhugsunarefni.
Litiö hefur heyrzt um áhyggjur
manna af þvi, aö sú þjóö, sem
þetta land byggir, ætlaöi aö
steypa sér út I varnarleysi.
Meira er talaö um, að Banda-
rikin kynnu aö missa þýöingar-
mikla varnarstöö, sem þeim
yröi geysidýrt aö bæta sér upp.
Þá væri sjálfstæðismálum ts-
lendinga illa komið ef meirihluti
þjóöarinnar vildi binda sig til
ævarandi þátttöku I einu eða
ööru bandalagi vegna hag-
stæöra samninga um efnahags-
mál.
Halidór Kristjánsson
iNú er hann kominn
og til afgreiðslu
STRAX
anaa
OEBer hár framhjóladrifinn
bíll, sem hentar sérlega vel við
islenzkar aðsfæður.
stálstyrkt farþegarými
sem tryggir aukið öryggi
aaaa
nBB er fáanlegur i 5
útgáfum.
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888
r
BEHB er ve/ hannaður bill, sem gert hefur hann að mest
selda Fiat bílnum. Fiat 128 er góður bill úti á
vegum og einkar þægilegur í borgarakstri. Tvöfalt bremsukerfi