Tíminn - 27.06.1976, Qupperneq 15
Sunnudagur 27. júni 1976
TÍMINN
15
láglendi&, hafa oft valdiö þungum
búsifjum. Framan viö byggöina
eru leirur og lón, en sendinn og
allbreiöur grandi meö sjónum.
Allar eru þessar jökulár, i A-
Skaftafellssýslu nú beizlaðar meö
fyrirhleöslum og gifurleg land-
flæmi ræktuö, sem áöur voru far-
vegir vatnanna.
Þegar við förum yfir Horna-
fjaröarfljót, vatnsmikla jökulá,
sem kemur undan Hoffellsjökli og
fleiri jöklum, taka Nesin við af
Mýrunum.
Höfn
Margir álita, aö ekkert sjávar-
þorp hér á landi standi á fallegri
stað en Höfn.Kauptúniö er byggt á
holóttum tanga, en uti á firöinum
fram undan og til beggja handa er
fjöldi grasi vaxinna eyja og
hólma, sem flestar tilheyra
Horni, austasta og afskekktasta
bænum i Nesjasveit. Höfn stendur
innan við Hornafjaröaós, og hefur
innsigling löngum verið ótrygg,
en á siðari árum hafa mikil
mannvirki verið reist til þess að
tryggja hana.
Rétt fyrir siöustu aldamót hófst
verzlun á Höfn. Fyrst I staö bjó
hér eingöngu fólk, sem var
verzluninni áhangandi, en siöan
fór byggð að aukast, einkum eftir
að héðan hófst sjósókn á vetrar-
vertið. Samkvæmt siöasta mann-
tali búa I Hafnarhreppi 1170
manns og fer ibúum fjölgandi.
Aðalatvinnuvegir eru sjósókn og
fiskvinnsla, ásmt verzlun og
landbúnaði. Sl. haust var saltað
töluvert af sild á Höfn og etv. má
búast við að hér verði miðstöð
sildveiða i framtíðinni. Hér er
boðið upp á flesta tegund þjónustu
og nú höfum við tækifæri til að
synda i sundlaug kauptúnsins.
Frá Stafafelli liggur leiðin um
slétta aura og siðan austur með
fjöllum fram hjá bæjunum Hlið
og Reyðará. í össurardal,
skammt frá Svinahólabænum,
hefur fundizt kopar I jörðu og þar
er kallað Koparnáma. Frá Svin-
hólum er stutt til Lónsheiðar-
innar, þar sem vegurinn liggur
upp fjallið. A háheiöinni er Sýslu-
steinn og þar eru mörk Austur-
Skaftafellssýslu og Suður-Múla-
sýslu.
1 norðvestri ris Jökulfell og þar
inn af til norðurs, Innfjöllin,
fjallaklasi i suðurbrún Vatna-
jökuls. Uppi á Skaftafellsheiðinni
ber Kristinartinda við loft, en i
austur gnæfir Hvannadals-
hnúkur. A mótum Skaftafells-
jökuls og Svinafellsjökuls er hið
jökulsorfna Hafrafell.
I landi Skaftafells eru ákaflega
margir skoðunarverðir staðir.
Næst bæjunum eru fossar og
gljúfur, t.a.m. Bæjargiliö, fagurt
klettagil með stórvöxnum reyni-
trjám. Neðst i gilinu er blátær
hylur, sem synda má I. Svartifoss
er ekki i meira en svo sem 1 km
fjarlægð frá Skaftafelli, og sjálf-
sagt að fá sér göngutúr til að lita
þennan merka foss falla fram af
stuðlabergshvelfingu. Uppganga
á Kristinartinda er lika femur
auðveld, og þaðan er frábært út-
sýni.
Frá Skaftafelli beygir þjóð-
vegurinn aftur til suðausturs, og
liggur yfir aurana fram af
Skaftafellsjökli, sem blasir við
okkur af veginum. Austast á
aurunum er farið yfir Neskvislar,
og þar fyrir handan er nokkurt
gróðurlendi, nefnt Svinanes. Þá
förum við yfir Svinafellsá, sem
flæmist straumhörð um stór-
grýtta aura, og á vinstri hönd við
jaðar Svinafellsjökuls, sjáum við
gamalt höfuðból öræfinga, Svina-
fell.
Heldur finnst fólki kuldalegt
umhverfi Sandfells. Til beggja
hliða eru aurar eftir jökul-
hlaup,—en þótt umhverfið sé
bert, er þaðan vítt og fagurt út-
sýni. Einkum sést vel til fjallanna
I Vestur-Skaftafellssýslu. Sand -
fell er nú I eyði, en var fyrrum
kirkjustaður og prestssetur, og er
talið eitt elzta, ef ekki elzta, býli I
öræfum. Algengast er að göngu-
menn á öræfajökul, leggi upp frá
Sandfelli, þvi að þaðan er
geiðfærasta leiðin. Gangan á
öræfajökul tekur sennil. 15-20
klst. og hafa verður meðferðis
nauðsynleg jöklatæki og ekki fara
án fylgdar. A Fagurhólsmýri er
veðurathugunarstöð, þar er flug-
völlur, sem reglulega er flogið til
allan ársins hring, og einnig eru
þar verzlun og veitingaskáli.
Frá Fagurhólsmýri er 9-19 km
leið að Ingólfshöfða, en þar hafði
Ingólfur Arnarson vetursetu
fyrsta búsetu ár sitt hér á landi.
Jeppafært er til Ingólfshöföa, en
umleirur og sanda og yfir margar
jökulkvislar að fara. Ingólfshöfði
er hömrum girtur á alla vegu og
hæstur austan til — 76 m yfir sjó.
Höfðinn er um 1200 m á lengd og
750 m á breidd, þar sem hann er
breiðastur. Viti og sjúkraskýli
eru á Ingólfshöfða og þaðan er út-
sýni bæði vitt og fagurt. Höfðinn
er friðlýstur.
Séð inn Morsárdal I öræfasveit.
Löngum tiðkaðist, að menn
fengju fylgd yfir Breiðamerkur-
sand fráKviskerjum. Þar búa nú
bræður, sem eru sjálfmenntaðir
náttúrufræðingar, og hafa vakið
verðskuldaða athygli fyrir
náttúrufræðilegar rannsóknir
sinar.
Framundan okkur er Breiða-
merkursandur, önnur mesta
sandauðn A-Skaft., sem skilur að
byggðir öræfa og Suðursveitar.
Margar jökulár falla um sandinn
og er Jökulsá á Breiðamerkur-
sandi þeírra mest. Sandurinn
grær nú óðfluga og er orðinn
þýðingarmikið beitiland. Við för-
um hratt yfir, fram með Breiða-
merkurfjalli og Breiðamerkur-
jökli og brátt komum við-að eyði-
býlinu Felli,—áður mesta höfuð-
ból Suðursveitar—þar sem það
stendur undir fagurri öxl Fells-
fjalls. Suðursveitinnærfrá Breiða-
merkursandi og litið eit.t austur
fyrir Kolgrimu. Nafnið Suður-
sveit tengist i flestra hugum nafni
Þorbergs Þóröarsonar, enda
er hann hérna fæddur og upp-
alinn. I Suðúrsveit er skammt
milli fjalls og fjöru, en mikill
fjallaklasi gnæfir að baki
byggðarinnar og ver hana ágangi
stórvatna og skriðjökla. Þrir
dalir ganga inn i hálendið,
Staðardalur, Kálfafellsdalur og
Steinadalur.
Mýranar eru láglend sveit
með viðáttumiklum vatnaaurum
og graslendi á vixl, og hér og hvar
sér i lágvaxin klappholt. Nær
sveitin frá Kolgrimu að Horna-
fjarðarfljótum. Vatnajökull
ásamt skriðjöklinum blasir við,
og jökulárnar, sem flæmast um
Dverghamrar eru sérkennileg náttúrusmið.
Eystra-Horn I Lóni. Bærinn undir fjaliinu er Hvaisnes.