Tíminn - 27.06.1976, Síða 17
Sunnudagur 27. júni 1976
TÍMINN
17
landeigendunum I Mississippi og
neitar að gefa upplýsingar um
heildarauð sinn. Hann svaraði
ekki heldur spurningum Naders.
Paul J. Fannin 69 (R, Ariz) Ef
dæma má eftir opinberum skýrsl-
um i Arizona má reikna með að
auðæfi Fannins séu á bilinu frá
þremur upp I sex milljónir. Fjöl-
skylda hans stundaði dreifingu á
Propangasi og verzlaði einnig
með timbur og járn.
Hiram Fong68 (R, Hawaii) Fong
varð milljóneri af sjálfsdáðum og
e.t.v. má segja að hann sé einn
rikasti maðurinn i deildinni, þvi
auðinn á hann einn. Hann á
feikileg verðmæti i skuldabréf-
um, fasteignum og byggingar- og
tryggingarfyrirtækjum auk ann-
arra. í Honolulu er það viðkvæðið
hjá kaupsýslumönnunum, að
Fong láti ekkert gróðatækifæri
renna sér úr höndum. Fong, sem
er að láta af þingmennskustörf-
um, útskrifaðist úr Harvard laga-
skólanum og þykir hann afar
slægur i öllu sem fjármál varðar
og viðskipti. Hann svaraöi ekki
spurningum Naders.
Barry Goldwater 67 (R.Ariz.)
Grundvöllurinn að auðæfum hans
var lagður i Phoenix vöruhúsun-
um, sem áður var eign fjölskyldu
hans. Kona hans er einnig vel loð-
in um lófana og á miklar eignir
Philip Hart 64 (D. Mich) Hart er
sjálfur ekki rikur, en kona hans er
erfingi mikilla auðæfa. 1 júni-
mánuði ár hvert gerir hann heild-
aryfirlit yfir fjárhagsstööu slna,
en ekki konu sinnar, þvi það eru
aðrir meðlimir i fjölskyldu henn-
ar sem njóta góðs af sömu sjóð-
um og hún og myndi það um leið
birta upplýsingar um tekjur
þeirra. Hart sem er að hætta
þingmennsku, hefur aldrei neitað
að gefa upplýsingar um tekjur
sinar og hvaðan þær koma.
Edward Kennedy 44 (D. Mass)
Hann er einn efnaöasti öldunga-
deildarþingmaðurinn I Banda-
rikjunum. Faðir hans Joseph P.
Kennedy græddi offjár I banka-
viðskiptum, innflutningi á áfengi
og fasteigna- og verðbréfavið-
skiptum. Hann stofnaði marg-
milljóna sjóði handa öllum börn-
um sinum til að tryggja fjárhag
þeirra um aldur og ævi. Kennedy
neitar að gefa upp hve miklar
tekjur hans eru, en skattar hans,
sem nema um tvö hundruð þús-
und dölum, gefa til kynna að þær
séu ekkert smáræði.
Russell Long57 (D. La) Voldugur
formaður f jármálanefndar
öldungadeildarinnar. Hann hefur
lengi verið þekktur sem —
oilionaire — Mikinn hluta auðæva
sinna erfði hann frá föður sinum,
Huey, sem átti Win or Lose oliu-
fyrirtækið.
John J. McClellan 80, (D. Ark.)
McClellan er milljónamæringur
sem hefur fjárfest I veðbréfum,
fasteignum, bönkum vöruhúsa-
hringum, og lána- og sparisjóð-
um. Þá á hann hluta I Mið-Vestur
Video sjónvarpsstrengnum.
Joseph Montoya 67, (D., N.Mex)
hann er milljónamæringur, sem
komizt hefur til auðs og valda á
eigin spýtur og hefur stórgrætt á
fasteignaviðskiptum. Hann er
formaður áhrifamikillar nefndar,
sem hefur umsjón með Internal
Revenu Service, og komizt hefur I
kast við lögin.
Claiborn Rell 57, (D., RI) Rell
hikar aldrei við að gefa upp tekj-
ur sinar, árið 1973 gaf hann upp að
þær næmu um 3.157.818 dölum.
Auðævi hans eru fjölskylduarf-
leifð.
Charles Percy 56, (R, 111.) Percy
er fyrrverandi stjórnarformaður
Bell & Howell, verksmiðju, sem
framleiðir ljósmyndavörur. Hann
á amk. fimm milljónir dala. Dótt-
ir hans Sharon er gift einum af
Rockefellerunum.
John Sparkman76 (D, Ala) hann
er milljónamæringur, sem hefur
auðgazt i fasteignaviðskiptum
auk annarra hluta. Kona hans a
útvarpsstöð I Albertville Ala.
Sparkman hefur alltaf verið
feiminn við að upplýsa nokkuð
um auð sinn.
Richard Stone 47 (D, Fla) Stone
lauk prófi frá Harvard og laga-
skólanum i Columbia. Hann á
mikilla hagsmuna að gæta bæði I
samvinnufyrirtækjum og fast-
eignum og hefur auðgazt vel á
þvi. Hann er kvæntur Marlene
Lois Singer, en faðir hennar
stofnaði gróðavænlega veitinga-
húsakeðju. Hún er vellauðug
einnig.
Stuart Symington 74 (D.Mo)
Hann hyggst nú draga sig I hlé
bráðlega úr stjórnmálalifinu, en
þegar hann komst i stjórn árið
1945 flutti hann öll hlutabréf sin I
sjóði. Á yngri árum græddi hann
gífurlega mikið á framleiðslu,
ýmiss konar rafmagnstækja og
stáli. Arið 1960 var hann búinn að
græða meira en milljón. Kona
hans, sem nú er látin, var dóttir
James Wadsworth, fyrrverandi
öldungadeildarþingmanns og
erfði hún eftir hann mikinn auð.
Robert Taft Jr.59, (R. Ohío) Tatl
erfði fjölskyldufyrirtæki mest-
megnis sjónvarps- og útvarps-
stöðvar og skemmtigarða. Eignir
hans eru metnar á umþað bil tvær
milljónir dala.
Herman Talmadge, 62 (D, Ga.)
Hann er mjög vel fjáður, og hefur
auðgazt mest á fasteignaviðskipt-
um og fjölskyldufyrirtæki, sem
framleiðir matvöru.
Listi þessi sem hér að framan
er talinn er ekki mjög nákvæmur
i öllum smáatriðum, og getur
breyzt á skömmum tima. Margir
þessara þingmanna eiga mikið
fjármagn bundið i verðbréfum
sem bæði geta fallið I verði og
hækkað og nettóauðæfi þeirra þvi
breytingum háð.
Óhætt mun að telja James
Buckley (R. ihalds, N.Y.)
milljónamæring, en fjölskylda
hans hefur fjárfest mikiar upp-
hæðir I oliufyrirtækjiim. Sömu lfk-
urnar eru fyrir hendi með John
Glenn (D, Ohio), Abraham
Ribicoff (D, Conn) og Adlai
Stevenson III. (D, 111), en þeir
hafa allir átt mikilla hagsmuna
að gæta i ýmsum stórfyrirtækj-
um.
Áætlanir og
ágizkanir
Þar til þingið hefur sett lög —
eins og stendur er verið að búa til
frumvörp um þau — um það að
allir starfsmenn þingsins, sem
þéni 25.000 dali eða meira á ári
verði að gera alþjóð það heyrin-
kunnugt, verður fólk aðeins að
láta sér nægja ágizkanir, slúður,
áætlanir og smávægilegar upp-
lýsingar.
Staðreyndin að 2 þingmenn
harðneita að gefa nokkrar upp-
lýsingar um auð sinn, sýnir að
þeim finnst það ekki koma nokkr-
um öðrum við en þeim sjálfum.
En sérhver athugun á fjárstyrk
öldungadeildarþingmanna, mun
leiða I ljós að I deildinni sitja
menn, sem eru miklum mun bet-
ur stæðari en umbjóðendur þeirra
almen'nt. Að meðaltali nema tekj-
ur bandariskra rikisborgara fjög-
ur þúsund dölum, — enginn öld-
ungadeildarþingmannanna er
nærri þvi að vera svo armur.
Þeir verst stæðu i öldungadeild-
inni eru James Aboureck (D, N.
Dak),Dick Clark (D, Iowa), John
Durkin (D, N.H.) Gary Hart (D,
Col) og Bb Packwood (R, Ore-
gon). Þessir allir eru undir
fimmtiu þúsund dölum, en enginn
fer þó niður fyrir þrjátiu þúsund.
Þar sem öldungadeildarþing-
mennirnir eru svo efnahagslega
vel stæðir, er það spurning hvort
það hindri þá ekki I þvi að sinna
sem skyldi óskum og kröfum um-
bjóðenda sinna. Flestum þeirra
gengur þokkalega að koma til
móts við þá fátæku, en að jafnaði
eru það efnameiri umbjóðend-
urnir, sem mest áhrifin hafa á
þingmennina.
Það sem þyrfti að koma, er
samt sem áður lög, sem skylda
þingmenn til að gefa upp allar
sinar tekjur og eignir. Hingað til
hafa engin slik lög verið sam-
þykkt og halda þingmenn sem
fastast I núgildandi lög, sem eru
þannig, að þau varpa mjög daufu
ljosi á sannleikann i þessum mál-
um. Aður en Sam Ervin (D.,
N.C.) formaður Watergate-
nefndarinnar lét af störfum i
deildinni, vann hann að laga-
frumvarpi sem, ef það verður
samþykkt, eins og flestar likur
benda til að verði gert siðar á
þessu ári, skyldar þingmenn til að
gefa ofangreindar upplýsingar.
Þess hefur verið beðið með ó-
þreyju i mörg ár og verður vafa-
laust fagnað af æðstu mönnum
stjórnarinnar og án efa af lægri
stéttum þjóðfélagsins einnig.
(Þýtt og endursagt JB)
JOHN SPARKMAN
BARRY GOLDWATER
RUSSELL LONG
PHILIP HART
■
..... ^ *2 V M[i.
HOWARD BAKER JOSEPH MONTOYA ROBERTTAFT EDWARD KENNEDY
Tólf af þeim rlkustu.