Tíminn - 27.06.1976, Page 19

Tíminn - 27.06.1976, Page 19
Sunnudagur 27. júni 1976 TÍMINN 19 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: ; Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhús- inu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðsiusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. Bú, en ekki verksmiðja í mörgum grannlanda okkar hafa sumar greinar búskapar færzt meira og meira i það horf, sem frek- ar ætti að kallast verksmiðjurekstur. Búfénaði er vitandi vits þrengt saman, þar sem hann er kappal- inn, án þess að eiga kost á hreyfingu. Hið sama gild- ir um alifugla. Við kynbætur hafa orðið til afbrigði, er hafa likamsvöxt, sem striðir beinlinis gegn nátt- úrulögmálunum. Til dæmis eru teknir hinir svo- kölluðu stjörnugrisir, sem tæpast valda sér vegna ofvaxtar sumra likamshluta, og hænsnaeldi i vir- búrum, þar sem hverjum fugli er ekki ætlað meira rými en samsvarar einni pappirsörk. Að þessum búskaparháttum hefur verið horfið i krafti þess, hvað arðvænlegast er talið. Margir hafa þó andúð á þessu búskaparlagi, og eru orsakimar margvislegar. ótvirætt er, að streitu og óhreysti gætir mjög meðal dýra, sem alin em i miklum þrengslum, enda er eðlileg hreyfing og áreynsla meðal frumþarfa manna og dýra. 1 Noregi verða grisir bráðdauðir þúsundum saman milli svinabú- anna og sláturhúsanna, enda þótt vel sé að þeim bú- ið við flutninginn. Þeir þola einfaldlega ekki neina hreyfingu. Algengt er einnig orðið, að svin fái magasár. Þetta hvort tveggja er glöggt dæmi um, hve ónáttúrlegt uppeldið er. í öðru lagi getur ekki hjá þvi farið, að afurðirnar séu lakari en af dýrum, sem njóta hreyfingar og hafa útivist i samræmi við eðli sitt, enda er það eitt af þvi, sem svinabændur eiga við að striða, að svinakjötið vill iðulega verða óeðlilega hvitt vegna þess, að vöðvarnir eru vanþroska. Yfir þá rýrnun vörugæða, sem fylgir þessum verksmiðjurekstri, er reynt að breiða með fallegum nafngiftum. Á Norð- urlöndum eru til dæmis auglýst svokölluð sólaregg. En gallinn er sá, að hænsnin hafa aldrei sól séð um sina lifdaga. í þessum auglýsingum er sagt, að eng- in fæða sé náttúrlegri en egg. Þó er ekkert ónáttúr- legra en eldi hænsná, sem læst eru inni i svo þröng- um búrum, að þau komast varla lengd sina. í þriðja lagi er skirskotað til þeirrar ábyrgðar, sem á mönnum hvilir gagnvart þeim skepnum, er þeir hafa undir höndum. Maðurinn er ekki sá herra sköpunarverksins, sem getur að ósekju gert hvað sem honum sýnist. Hann er aðeins ein lifvera af fjölmörgum öðrum, sem einnig eiga sinn rétt, og til þess ber honum að taka tillit. Hann verður yfirleitt að lifa i-sátt við náttúruna og umhverfi sitt, vilji hann ekki hitta sjálfan sig fyrir. ,,Við verðum að temja okkur að lita á húsdýr og búfénað sem sam- þegna okkar i lifrikinu, en ekki ómálga dýr, sem við getum farið með að geðþótta okkar”, segja gagn- rýnendurnir. Með öðrum orðum: Búfjárrækt verður að eiga sina siðfræði að styðjast við. Ónáttúrlegt eldi við þrengsli og hreyfingarleysi kann að skila einhverjum arði i peningum talið. En það styðst ekki við þá siðfræði, að gripirnir eigi sinn rétt, og samrýmist ekki góðum aðbúnaði fremur en vaneldi og umhirðuleysi. Vafalaust gætir einhverrar tilhneigingar til þessa verksmiðjubúskapar i sumum greinum hér á landi. En háskalega langt hefur ekki verið haldið út á þá braut. Eigi að siður er rétt að fylgjast með umræð- um, sem fram fara erlendis um þessi mál. Það get- ur vakið athygli okkar á þeim vitum, sem varast ber. Og þá ber einnig að hafa i huga, til viðbótar þvi, sem áður hefur verið dregið fram, að ósköp hlýtur ánægjan af umgengni við skepnurnar að dvina, ef hætt væri að lita á þær sem einstaklinga með nátt- úrleg séreinkenni. ERLENT YFIRLIT Er frú Janet Smith stjórnandi Rhodesíu? Hún er sögð hafa megináhrif á mann sinn ENN hafa ekki borizt miklar fréttir af fundum þeirra Vorsters forsætisráöherra Suöur-Afriku og Kissingers utanrlkisráöherra Bandarikj- anna, en aöalumræöuefni þeirra var framtiö Rhode- siu. Þaö þykir nú ljóst, aö brátt muni draga þar til auk- inna tiöinda, ef ekki veröur breyting á stjórnarháttum landsins i þá átt aö tryggja yfirráö hins svarta meiri- hluta. Astandiö er aö þvi leyti enn ömurlegra i Rhodesiu en Suöur-Afriku, aö hviti minni- hlutinn, sem öllu ræöur, er miklu minni. 1 Suöur-Afriku eru hvitir menn um 20% Ibú- anna, en i Rhodesíu ekki nema 5%. Samtök svartra skæruliöa i Rhodesiu eflast nú óöum og hafa þó einkum gert þaö eftir aö þau fengu bækistöövar i Mosambik. Aö undanförnu hefur skæruhernaöur á landa- mærum Mosambik og Rhodesiu færztmjög i aukana, en hingaö til hefur hann ekki veriö aö ráöi á landamærum Rhodesiu og Zambiu, þvi aö Kaunda, forseti Zambiu, hefur beöiö skæruliöa, sem þar dveljast, aö halda aö sér hönd- um aösinni. Þaövar isamráöi viö Kaunda og Nyerere, for- seta Tanzaniu, aö Kissinger ræddi viö Vorster, en Vorster hefur á fundum, sem þeir Kaunda hafa átt saman, látiö i ljós vilja sinn á friösamlegri lausn Rhodesiudeilunnar. Frá sjónarmiöi Vorsters er þaö hagstæöara fyrir Suö- ur-Afrilcu, aö hófsamir svartir stjórnmálamenn, sem hafa samvinnu við Bretland og Bandarikin, taki völdin i Rhodesiu en róttækir leiðtogar skæruliöa, sem séu studdir af Sovétrikjunum og Kúbu, en þaö gæti orðiö niöurstaöan, ef til styrjaldar kæmi. Afstaöa þeirra Kaunda og Vorsters fer hér saman, þótt um flest ann- aö séu þeir ósammála. Ian Smith Frú Janet Smith ENN sem komiö er, hafa stjórnendur hvita minnihlut- ans I Rhodesiu sýnt litinn vilja til samkomulags. Ian Smith forsætisráöherra hefur aö vfeu oft látizt vilja ganga langt til samkomulags og fulltrúar Breta, sem hafa rætt við hann, hafa taliðsigvera komna vel á veg meö aö ná samkomulagi. Smith hefur hins vegar alltaf brugðizt, þegar á átti aö herða, og iöulega ómerkt fyrri yfirlýsingar og loforö. Breskir stjórnmálamenn hafa þvi þaö álit á honum, að erfitt sé aö treysta honum. Jafnframt hefur þaö álit skapazt, aö Smith sé i rauninni ekki sjálf- rátt, þvi að það sé kona hans, sem ráði yfir honum og láti hann gerast ómerkan oröa sinna, ef hún telji hann hafa gengið of langt. Hún sé enn meiri hvitur þjóðernissinni en hann, og aukþess bæöi gáfaöri og viljafastari. Nokkuö er lika þaö, aö Smith hófst ekki til pólitiskra áhrifa fyrr en eftir aö hann giftist henni. Janet Smith er 58 ára gömul, eöa ári eldri en maöur hennar. Hún fæddist i Bris- town I Suöur-Afriku, þar sem faöir hennar var doktor, en bæöi hann og kona hans voru fædd i Skotlandi. Þegar hún var fjögra ára, fluttust for- eldrar hennar til Höfðaborgar og þar lauk hún háskólanámi i sögu og landafræöi meö góö- um vitnisburöi, þótt hún legöi jafnhliöa mikla stund á Iþrtítt- ir og væri fyrirliöi kvenna bæöi i hockey og tennis. Aö námi loknu hóf hún svo kennslustörf. Ariö 1940 giftist hún ungum lækni, Piet Duven- age. Hún missti hann sex ár- um siðar frá tveimur börnum og hóf þá kennslustörf aö nýju. RÚMU ári eftir aö Janet missti mann sinn heimsótti hún smábæ I Rhodesiu, Se- lukve aö nafni. Þar kynntist hún bónda i nágrenninu, Ian Smith. Hann hafði veriö flug- maöur á striösárunum og get- ið sér gottorö sem slikur. Eft- ir striöiö hélt hann heim og gerðist bóndi. Hann undi bú- skapnum vel og haföi ekki i hyggju aö breyta um starf. Ariö 1948 varö samt mikil breyting á högum hans. Hann giftist þá Janet og bauö sig litlu siðar fram til þings. Hann náöi kosningu. Litið bar á hon- um fyrstu árin, sem hann sat á þingi, enda var þá frekar ró- legt I stjórnmálum i Rhodesiu. Janet sá um búskapinn meðan bóndi hennar sat á þingi. Arið 1964 varö skyndileg breyting á högum þeirra. Smith skipar sér þá i forustubrjóst þeirra, sem halda fram algerum yfir- ráðarétti hvita minnihlutans og ekki vilja slaka neitt til við svarta menn. Þeir gerðu hann þá aö forsætisráöherra, enda þótt hann væri enn tiltölulega óþekktur sem stjórnmála- maöur, og heföi ekki sýnt skörungsskap á einn eða ann- an hátt, þegar það er undan- skiliö, að hann haföi veriö góð- ur flugmaður. Siöan hefur Smith farið meö stjórn Rhodesiu og hagaö sér á margan hátt eins og einvald- ur. Arið 1965 lýsti hann yfir sjálfstæði Rhodesiu, en ekkert erlent riki hefur enn viður- kennt það. Ariö 1970 rauf hann þjóöhöfðingjasambandið viö Bretland. Hann hefur á marg- an hátt reynzt bæöi djarfur og háll I samningagerð, en lika oft sagt meira en hann stóö viö. Astæöan er yfirleitt talin sú, aö bak viö hann hefur stað- iö kona, sem er bæöi einbeitt- arioggáfaörien hann oghefur veriö hinn raunverulegi stjórnandi Rhodesiu. Sé þetta rétt, er þaö ekki i fyrsta sinn, sem kona hefur stjórnab á þennan hátt. Þ.Þ. —JH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.