Tíminn - 27.06.1976, Qupperneq 35
Sunnudagur 27. júni 1976
TÍMINN
35
Firmakeppni og kappreiðar Sörla’*
100 FYRIRTÆKI
TÓKU ÞÁTT í
FIRMAKEPPNINNI
FIRMAKEPPNI Hestamannafé-
lagsins Sörla i Hafnarfirði var
haldin á skeiðvelli félagsins við
Kaldárselsveg laugardaginn 29.
mai. Um 100 fyrirtæki tóku þátt i
keppninni, keppt var I þrem
flokkum og urðu úrslit sem hér
segir:
Unglingafiokkur:
Nr. 1 Elvar Eiriksson á Rjúk-
anda fyrir Slippfélagið hf. Nr. 2
Ottó Sturluson á Tritli, fyrir
Verzlunina Perlu og nr. 3 Hafþór
Hafdal á Blakk fyrir Sól hf.
Kvennaflokkur:
Nr. 1 Anna Flygenring á Blika
fyrir Eimskip. Nr. 2 Hafdis
Jóhannesdóttir á Faxa, fyrir
Blómabúðina Burkna og nr. 3
Aðalbjörg Garðarsdóttir á Létti
fyrir Cudogler hf.
Karlaflokkur:
Nr. 1 Sigurður Adolfsson á Loga
fyrir Ishús Hafnarfjarðar hf. Nr.
2 Eirikur Ölafsson á Létti fyrir
Veitingahúsið Kokkinn hf. Nr. 3
Gunnar Arnarson á Hrannari,
fyrir Stáliðjuna hf.
Verzlunin Goðaborg gaf verð-
laun, sem veitt vorú sérstaklega i
unglingaflokki.
Elvar Eiriksson er sonur hjón-
anna Eiriks Ólafssonar og Haf-
disar Jóhannesdóttur, en þau
náðu öll fyrsta eða öðru sæti I sin-
um flokkum og má það teljast
góður árangur, sem þarna hefur
náðst, i sameiginlegri tómstunda-
iðju fjölskyldunnar.
Að lokinni firmakeppni fór
fram góðhestakeppni á hinum
nýja hringvegi félagsins, sem er I
fögru umhverfi i hrauninu við
gamla skeiðvöllinn.
Úrslitin I góðhestakeppninni
urðu þessi:
A-flokkur.
1. Leiknir 7 v., blesóttur, Skag.
Eigandi og knapi: Sigurður Sæ-
mundsson. Einkunn: 8,92.
2. Hrannar 10 v. rauður, Borg.
Eigandi og knapi: Gunnar Arnar-
son. Einkunn: 8,22.
3. Narfi 7 v. brúnn, Skag. Eig-
andi: Kristján Gunnarsson.
Knapi: Gunnar Arnarson.
Einkunn: 7,90.
B-flokkur
1. Austri 7 v. rauðvindóttur,
Múlas. Eigandi: Björn Björns-
son. Knapi: Gunnar Arnarson.
Einkunn: 8,64.
2. Háfeti 9 v. brúnn, Arness.
Eigandi og knapi: Sigurður Sæ-
mundsson. Einkunn: 8,50.
3. Logi 8 v. rauður, Borg. Eig-
andi og knapi: Sigurður Adolfs-
son. Einkunn: 7,72.
íslandsmet i
250 m skeiði
Sunnudaginn 30. júni fóru fram
kappreiðar félagsins.
Kaupið bílmerki
Landverndar
rÖKUM
EKKI
[UTANVEGAl
Til sölu hjá ESSO og SHELL
berfsinafgreiðslum og skrifstofu
Landverndar Skólavörðustig 25
Mikil spenna var fyrir kapp-
reiðarnar, þar sem 3 af fljótustu
skeiðhestum landsins lentu sam-
an i riðli. Það kom svo á daginn,
að 20 ára gamalt íslandsmet var
slegið af Fannari 9 v. Rann hann
skeiðið á 22,5 sek. Knapi var
Ragnar Hinriksson, en eigandi er
Hörður G. Albertsson. Nr. 2 var
Óðinn 11 v. á 23,1 sek., knapi
Aðalsteinn Aðalsteinsson, eigandi
Þorgeir Jónsson, Gufunesi og nr.
3 Rjúkandi 8 v. á 23,5, knapi
Ragnar Hinriksson, eigendur
Guðmundur og Þórdis Harðar-
börn.
Úrslit i 250 m
unghrossahlaupi:
1. Sleipnir 6 v. leirljós, Borg.
Eigandi: Höröur G. Albertsson.
Knapi: Sigurbjörn Bárðarson.
Timi: 19,5 sek.
2. Hreinn 6 v. jarpur, Skag. Eig-
andi: Hörður G. Albertsson.
Knapi: Jóhann Tómasson. Timi:
19,6 sek.
3. Móði 5 v. móbrúnn, Skag.
Eigandi: Hörður G. Albertsson,
Knapi: Ragnar Björgvinsson.
Timi: 20,0 sek.
300 m stökk
1. Loka 9 v. rauð, Rang. Eig-
andi: Þórdis H. Albertsson.
Knapi: Sigurbjörn Bárðarson.
Timi 22,8 sek.
2. Jerimias 7 v. grár, Borg. Eig-
andi: Björn Baldursson. Knapi:
Eigandi. Timi: 23,4 sek.
3. Blákaldur 8 v. rauðskj. Skag.
Eigandi: Hafþór Hafdal. Knapi:
Eigandi. Timi: 23,6 sek.
Margt fólk sótti kappreiðarnar I
bezta veðri og fegursta umhverfi.
Rómuðu menn hinar ákjósanlegu
áhorfendastúkur sem eru hraun-
pollar, gerðir af sjálfri náttúr-
unni.
Ahugi á þessari skemmtilegu
og hollu Iþrótt fer vaxandi I Hafn-
arfirði, jafnt meðal unglinga sem
eldra fólks.
Mikil gróska er I hestamanna-
félaginu og er fyrirhuguð stækkun
á húsum félagsins vegna aukinn-
ar eftirspurnar eftir hesthús-
plássi. Formaður Hestamanna-
félagsins Sörla er Ellert Eggerts-
Nú er hann kominn
Bíllinn sem sparar bensínið
Fram og aftur
stuðarar
höggvarðir
Nytt grill
7 LITRAR PR. 100 KM.
aaaa
OBB er 5 manna bíll með
góðu rými, sem fótleggjalangir
farþegar kunna að meta.
BBB hefur framúrskarandi
skemmtilega aksturseiginleika.
er framhjóladrifinn
bill, sem hentar þess vegna
. vel við íslenskar aðstæður á
snjóugum og blautum vegum.
aana
er fáanlegur 2ja og
3ja dyra. 3ja dyra bíllinn gefur
hleðslumöguleika allt að 1 cu m
5 fullorðnir 50 kg farangur eða
1 fullorðinn 330 kg farangur.
I
Bíll, sem vert er að skoða.
FIAT EINKAUAABOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 3888
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við kaupfélag ís-
firðinga er laust til umsóknar
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist for-
manni félagsins Konráði Jakobssyni
Seljalandsvegi 42 ísafirði eða Baldvini
Einarssyni starfsmannastjóra Sambands-
ins, fyrir 20. júli n.k.
Kaupfélag ísfirðinga.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavik
Aðalfundur
félagsins verður haldinn i Domus Medica,
Egilsgötu 3, Reykjavik, miðvikudaginn 30.
júni 1976, kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Félagsstjórnin.
A
Lausar stöður
W Félagsróðgjafar
Tvær stöður félagsráðgjafa við Félags-
málastofnun Kópavogskaupsaðar eru
lausar til umsóknar frá og með 1. ágúst
n.k.
Allar nánari upplýsingar verða veittar á
Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar,
simi 4-15-70.
Umsóknir berist Félagsmálastofnun
Kópavogskaupstaðar fyrir 20. júli 1976.
Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar
Alfhólsvegi 32 — Kópavogi.
Tilboð óskast
í hjólskóflu
með ýtubúnaði, er verður sýnd þriðjudag-
inn 29. júni kl. 1-3 að Grensásvegi 9.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri
fimmtudaginn 1. júli kl. 11 árdegis.
Sala varnarliðseigna.