Tíminn - 11.07.1976, Blaðsíða 3
Sunnudagur 11. júll 1976.
TÍMINN
3
AND Á
A VÍSU
Sovétrikjunum. ööru nær, þvi að
skortur er á vinnuafli. Þúsundir
auglýsinga eru limdar upp á
götum úti og við verksmiðuhliðin,
og er þar boðið upp á gott úrval af
störfum, sem bæði eru
skemmtileg og vel borguð. Auk
þess getur maður innritað sig i
ýmsa tækniskóla þarsem hægt er
að stunda nám hluta úr degi, á
kvöldin eða með bréfaskriftum.
Svo fæðist barn. Móðirin fær
fjögurra mánaða fri úr vinnu á
fullum launum (i þeirri fimm ára
áætlun, sem nú stendur yfir, er
gert ráð fyrir að friið lengist og
verði allt þar til barnið er orðið
ársgamalt) og getur siðan róleg
tekið til starfa aftur' þvi að rikiö
tekur mikinn þátt i gæzlu og upp-
eldi barnanna.
í landinu eru starfræktar
vöggustofur og dagheimili fyrir
11 miijónir barna. A næstu fimm
árum verður komið upp plássi
fyrir 2,5 - 2.8 miljónir barna i við-
bót. Gjaldið er lágt og á allra færi
að borga það, enda stendur þjóð-
félagið straum að fjórum fimmtu
hlutum alls kostnaðarins við dag-
vistun barna.
Auk þess fá láglaunafjölskyldur
og fjölskyldur með mörg börn
sérstakar mánaðrgreiðslur frá
rikinu. Börn og fullorðnir njóta
einnig góðs af þvi að öll Iæknis-
þjónusta er ókeypis.
Eins og gefur að skilja getur
engin fjölskylda þrifist án þess að
hafa þak yfir höfuðið. Þvi miður
geta ekki öll nýgift hjón farið
beint úr brúðkaupsveizlunni heim
i nýja ibúð. Oft sezt unga fólkiö að
á heimili foreldra annars aðilans.
Sumir eru hæstánægðir meö aö
dveljast undir verndarvæng eldri
kynslóðarinnar til að byrja með,
þvi að amma og afi eru oft reiðu-
búin að hjálpa, gæta barna og
stjórna heimilinu.
Engu að siður eignast
kenningin um „eina fjölskyldu i
hverri ibúð” stöðugt fleiri áhang-
endur. A s.l. 5 árum voru 11 mil-
jónir fbúða byggðar i landinu,
samtals 544miljón fermetrar af i-
búðarhúsnæði. Þannig hefur
reynzt mögulegt að bæta aðstöðu
56 miljóna mann.
Annaö mikilvægt vandamáí
sem mætir ungum hjónum þegar
þau byrja búskap er: hver á að
vera „höfuð” fjölskyldunnar,
bera aðalábyrgðina? Sovézk lög
viðurkenna jafnrétti kynjanna og
samkvæmt þeim er þetta hugtak
—höfuð fjölskyldunnar— ekki til.
Samkvæmt niðurstöðum siðasta
manntals er 45 miljón
fjölskyldurm i landinu st jórnað af
karlmönnum, en 14 miljónum af
konum. Fyrir skömmu fór fram
skoðanakönnun i stærstu
giftingarhöll Moskvuborgar. Þar
kom i ljós að um 70% hinna
nýgiftu sögðust ætla að ráöa fram
úr öllum fjölskylduvandamálum i
sameiningu.
» J 4 . *’’*•$ *W*', * - . m$w
MH %
Þessi merki, sem öll eru
heimskunn fyrir gœði bjóðum
við viðskiptamönnum vorum
(U) PIOIMŒŒR
hljómtæki 3 — 5 ára áhyrgð
harman/kardon
hljómtæki 3 — 5 ára ábyrgð
UBL
hátalarar 10 ára ábyrgð
hátalarar 5 ára ábyrgð
oríofon
pick-up árs ábyrgð
ENPIÆ
pick-up árs ábyrgð
@TDK
casettur 8 rása og spólur
sjónvörp,
ferðatæki,
reiknivélar,
vasatölfur,
hljómtæki
1 — 3 ára ábyrgð
KARNABÆR
* HLJÓAATÆKJ ADEILD
Laugctvegi 66 * Sími 2-81-55