Tíminn - 11.07.1976, Blaðsíða 30

Tíminn - 11.07.1976, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 11. júll 1976, íslenzkar plötur streyma á markaðinn og enn fleiri eru væntanlegar á næstunni Megas kominn inn í stúdíó að nýju breytingar sem gerðar hafa verið á stúdióinu. Stúdió Hljóðrita er orðið afar fullkomið eftir að 24-rása tækin eru komin i notkun og gagngerar endurbætur hafa verið unnar á sjálfu húsnæðinu. Nú er unnið þar 24 klukkustundir á sólarhring (eða jafn margar klukkustundir og sólarhringurinn leyfir) og hefur Megas 8 klukkustundir til umráða á hverjum sólarhring. Það þarf ekki að geta þess, að lög og textar á þessari plötu eru að sjálfsögðu eftir Megas sjálfan (við erum vist búnir að geta þess!) en þeir sem aðstoða hann við gerð plötunnar eru Pálmi Gunnarsson, bassaleikari, Sigurður Karlsson, trommuleik- ari, Lárus Grimsson, hljómborðs- og flautuleikari og Þorsteinn Magnússon gitarleikari. Pálmi Gunnarsson mun radda með Megasi. Að sögn Ingibergs Þor- kelssonar er enn ekki ákveðið hverjir leika á önnur blástur- hljóðfæri á plötunni. Hinn brezki hljóðstjóri, Tony Cokk, sér um hljóðstjórn plötunn- ar. Plata Megasar (sem enn hefur ekki hlotið nafn) er fyrsta verk- efni Hrim hf. en að sögn Ingibergs er hljómplötufyrirtækið með ýmislegt annað I bigerð, sem þó verður ekki látið uppiskátt að svo komnu máli. — En það er langt frá þvi að þetta sé siðasta platan sem gefin verður út með Megasi, við höfum ákveðið að gefa út 26—27 plötur með honum, en hafðu þó þetta siðasta i sviga, sagði Ingibergur og hló. Myndin er af Megasi I stúdiói Hljóðrita. JOHN OG PAUL HJÁLPA RINGO VIÐ PLÖTUGERÐ dregið úr sögusögnunum, eftir að ljóst varð, að George Harrison, er væntanlegur til Los Angeles innan tiðar, eftir að hafa um stundarsakir hvilt sig I Bretlandi eftir veikindi, sem voru ekki eins alvarleg og talið var I fyrstu. Lagið sem Lennon hefur samið fyrir Ringo heitir ,,A Dose Of Rock ’N’ Roll” en lagið sem Paul hefur samið heitir ,,Pure Gold”. Meðal hljóðfæraleikara á plötu Ringos má nefna Jesse Ed Davis, Dr. John og trommuleikara Led Zeppelin, John Bonham. TELJA MA alveg öruggt að áriö 1976 verði algjört met ár I hljómplötuútgáfu á Islandi en á siöustu vikum hafa islenzkar plötur streymt á markaðinn og enn fleiri eru væntanlegar á næstu vikum. Nýlega sendi hljómplötufyrirtækið Steinar hf. á markaðinn plötu, sem nefnist „I kreppu” og hefur áður verið um hana fjallað hér i Nú-tímanum, en á þessari plötu koma fram hljóm- sveitirnar Dögg, Kaktus, Þokkabót, Diabolus In Musica, Liðs- sveitin,svo og Ómar óskarsson fyrrum gilarleikari Pelican. All- ir textar plötunnar fjalla um einhvers konar kreppu. Hið nýja hljómplötufyrirtæki Gunnars Þórðarsonar Ýmir, hefur nú sent frá sér fyrstu plöturnar og eru þær með Engilbert Jensen og Halla og Ladda. Vitað er um fjölmargar plötur, sem væntanlegar eru á næstunni og má þar m.a. nefna plötu Paradísar sem mun að öll- um likindum koma á markaðinn innan tveggja vikna, plötu með Stuðmönnum (þeir eru enn úti við plötugerð) og plötu með Dia- bolus In Musica. Nú-timinn vill taka það fram, vegna lesenda sinna, að sum hljómplötufyrirtæki virðast ekki hirða um það að senda okkur plötur til umsagnar. Okkur hefur t.d. ekkiborizt nýja platan með Rió-trióinu frá Fálkanum, né sólóplata Jóhanns Helgasonar, sem Svavar Gests (SG-hljómplötur) gefur út. MEGAS er nú byrjaður að vinna að sinni þriðju LP-plötu, sem gef- in verður út af nýju hljómplötu- fyrirtæki, Hrlm hf. að nafni, sem Ingibergur Þorkelsson veitir for- stöðu. Plata Megasar er ein af þremur fyrstu plötunum, sem teknar eru upp I Hljóðrita- stúdíóinu I Hafnarfirði, eftir þær — Ástæöurnar fyrir þvi að ég tók þessu boöi, að koma til tslands voru tvær. t fyrsta lagi langaði mig til að gera eitthvaö upp á eigin spýtur og I öðru lagi hafði ég aldrei komið til Evrópu fyrr og taldi þvi rétt að nýta þetta tækifæri, sem kom upp I hendurnar á mér, sagði Charles McGray, bandariski plötusnúð- urinn, sem ráðinn hefur verið I Sesar næstu þrjá mánuði, er Nú-tlminn tók hann tali 1 vik- unni. Hann var I óða önn aö borða hamborgara þegar okkur bar að garði 1 Sesar skömmu eftir kvöldmatinn, en gaf sér þó tima til þess að svara nokkrum spurningum. Charlie er aðeins átján ára gamall, en hefur unniö sem plötusnúður frá þvl hann var fjórtán ára en ekki I diskótekum nema ieittár, áðurenhann kom hingað til lands. — Ég vissi ekkert um tsland áður en ég fór, nema hvar þaö var á hnettinum, sagði Charlie. — Ég bjó heima hjá móður minni og systur og mamma var svolitið kvlðin, þegar ég sagði henni að ég vildi fara til Islands og vinna þar. Hún full- vissaði sig um það, að þetta væri allt i bezta lagi og ég var lika strax staðráðinn i þvf að fara. Charlie er fæddur I New York og starfaði þar. Hann sagði okkur að I bernsku hefði hann leikið á trommur, congós og saxafón, en hefði hætt þvi, þar sem önnur áhugamál hefðu orð- iö yfirsterkari. Við ræddum nokkuð um disco-tónlistina, sem svo til ein- göngu er leikin á diskótekum um þessar mundir og hafa for- ráðamenn Sesar lagt á það áherzlu við Charlie að hann leiki þá tegund tónlistar svo til ein- göngu. Disco-souliö er afsprengi Phylli-„sándsins” og er þar af leiöandi angi soul-tónlistar- innar. Það eru ekki ýkja mörg ár siðan þessi tónlist ruddi sér rúms, en disco-souliö skiptist I ýmsa flokka eftir blæbrigðum tónlistarinnar, Charlie sagði að disco-souliö ,,Langaði til að gera eitt- hvað upp á eigin spýtur" John Lennon og Paul McCartney munu báðir aöstoða fyrrverandi fé- laga sinn, Ringo Starr, við plötugerð á næstunni, en upptaka plötunnar er að hefjast I Los Angeles I Bandarikjunum. Enn- fremur hafa þeir ,,fé- lagar” John og Paul báðir samið lög sérstaklega fyrir þessa plötu Ringos og munu þeir radda með honum I þeim lögum. Þá mun Lennon leika á hljomborð I tveimur lögum á plötunni. Þessi frétt hefur að sjálfsögðu vakið upp þann gamla draug, að Bitlarnir ætli nú að koma saman aftur, og ekki- hefur væri langvinsælasta tónlistin I diskótekum New-Yorkborgar, og flytjendurnir væru ýmist hvitir eöa svartir — þó oftar hvltir. Við spurðum Charlie að þvl, á hvaöa tónlist hann hlustaði þeg- ar hann ætti fri I diskótekinu, eöa hvort hann hlustaði yfir höf- uð nokkuð á tónlist þegar hann ætti fri. — Jú ég hlusta á tónlist, en það fer bara eftir þvl hvernig mér liður, á hvers konar tónlist ég hlusta. Stundum hlusta ég á rokktónlist, stundum á soul- tónlist og stundum á jass. — Hvað finnst þér um Bltl- ana? — Ég hef ekki hlustað mjög mikið á Bitlana, þó finnst mér sum lög þeirra góð og önnur ekki. Charlie kvaðst hafa hlustaö á nokkrar Islenzkar plötur, en sagöisthins vegar enn ekki hafa heyrt ineinnihljómsveit. — Mér þykir ýmsar islenzkar plötur ágætar, t.d. gaf einn vinur minn mér plötu um daginn, sem mér þykir mjög góð. Ég man bara ekki hvað hún heitir, þvi ég á svo erfitt með að muna Islenzku orðin. En Charlie gat sýnt okkur plötuna og það var nýja plata Engilberts Jensen, sem hann átti við. Þessi ungi bandarlski plötu- snúður hefur þegar eignast nokkra islenzka vini, þótt ekki hafi hann dvalist hér nema I nokkra daga, og hann sagði að sér likaði vel að vinna hérna. Við spurðum hann að þvi, hvort ekki væri erfltt að gera islenzkum danshúsagestum til geðs, og sagði hann, að það væri ekkert sérstaklega erfitt nema I undantekninga tilvikum. — Þaö erallmikiðum það, að fólkkomi til min og biöji um einhver sér- stök lög, og það er oft fólk sem ekki er að dansa. Ég verð hins Charlie plötusnúður í Sesar heimsóttur vegar að hafa það hugfast, að það er mittstarf að halda fólki á dansgólfinu, og get þvi ekki allt- af uppfyllt óskir fólksins. Að lokum spuröum við Charlie aö þvi hvað hann ætti margar LP-plötur og kvaðst hann eiga um 600, en hefði komiö með 250 með sér hingað til lands. Gsal— mynd Arni Páll Topp-textar koma út Það færist slfellt i vöxt, að textar á hljómplötum séu gefnir út með plötum sem koma á markaðinn en þó fylgja textar hvergi nærri með öilum þessum plötum. 1 fyrra tók ungur maður sig til og endurvakti gömlu textaritin, og nú er hann aö endurvekja útgáfuna frá þvl I fyrra. t rit- inu sem nú er komið á markaðinn (heitir Topp- textar) eru textar af plötum Rió-trlós, Bimklóar, Engil- berts Jensen, Spilverksins, Rúnars Júliussonar og af Kreppuplötunni, svo og úrvals erlendir textar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.