Tíminn - 11.07.1976, Síða 25
25
„Það er gott fyrir
prímadonnur að skúra
baðherbergi"
— segir nýjasta
óperustjarna
Svía, sem
í vetur söng
Carmen
í óperunni
í Stokkhólmi,
Hún er ein-
stæð móðir
og er nú
aftur ó
uppleið sem
söngkona
eftir
sjúkdóms-
erfiðleika
— Ég kviði þvi að einhver verði
hræddur við niig, segir Sylvla
Lindenstrand, sem veit að ýkt
virðing er ein af skuggahliðum
velgengninnar. Nú eftir að hún
hefur slegið I gegn I
„Rósakavalleranum” I sænska
sjónvarpinu og sem Carmen i
óperunni, vill hún helzt bara vera
Sylvia.
— Það er gott fyrir primadonn-
ur að skúra baðherbergi.
Og það getur lika verið gott
fyrir áheyrendur að vita að slikt
gerist þegar Carmen er búin að
taka rósina úr munninum. Og það
er endurleysandi að komast með
fæturna niður á jörðina til að geta
hugsað skýrt og fram á veginn —
ráðið er, að gera hreint og þá lfka
á klósettinu.
Nýja óperustjarna Svía er ekki
með neinn falskan tepruskap.
Hún er enn undrandi á að hún
skuli vera orðin eftirsótt við
óperuhús um allt meginlandið.
Sylviá Lindenstrand.
Hún er nógu hreinskilin til að
viðurkenna að henni finnst
skemmtilegt að látast. Annað
væri heimskulegt. Hún er nefni-
lega mjög falleg. Kann að tjá sig
persónulega og gerir það fúslega.
Hún notar mikið hendurnar þegar
hún talar.
Hún talar vel um alla meira að
segja kollega sina. Og segir við og
við.tala ég of mikið?
Hún er hógvær og segir að
margar fallegar raddir séu til,
sem ekki hafi enn komið fram i
dagsljósið. bað er mikils virði að
hafa strangan leik (og söng*)
stjóra.
Hún er skapmikil,var það þegar
á barnsaldri.Hún málaði,söng var
dugleg að læra, tilfinninganæm
og ráðrík.
Hún söng hástöfum á manna-
mótum á Vermalandi þegar hún
var tveggja og hálfs árs.
Fjögurra ára fór hún að hafa
áhuga á tónlist og þrettán ára var
hún heilluð af óperusöng. 18 ára
gömul hóf hún söngnám fyrir al-
vöru eftir að hafa sungið með
hljómsveitum á skóladansleikj-
um. 1 sex ár var hún i söngtimum
hjá Isabel Ghasal Öhlman og sótti
um inngöngu á músikaka-
demiuna og myndlistaskólann
Konstfack.
— En ég lagði málaralistina á
hilluna þangað til ég kemst á elli-
laun.
Tuttugu ára gömul og nýorðin
móðir söng Sylvia sitt fyrsta hlut-
verk i óperunni i Stokkhólmi.
Sonurinn Pierre er nú þrettán
ára, og hefur aldrei verið henni til
trafala. Þvert á móti er styrkur
að þvi og öryggi, að bera ábyrgð á
einhverjum. Hún er þó mjög
.sjálfsörugg og full af sjálfs-
trausti.
Þó kom sá timi að hún gagn-
rýndi sjálfa sig. kannski var það
óttinn við að gera ekki öllum til
^hæfisJ Kannski voru fyrstu
sigrarnir of auðveldir.
Hún söng — en án gleði. Sjaldan
er ein báran stök. Hún var sifellt
kvefuð og hás. í fjóra mánuði gat
hún alls ekki sungiö. Það var timi
til kominn að gefast upp.
— Ég trúi á eins konar náð segir
hún nú, þegar allt er yfirstaðið.
Eftir sextán sprautur i bakiö upp-
götvaðist að hún var með ofnæmi
og hún fékk bata.
Hjördis Schymberg söng-
kennari hjálpaöi Sylviu endan-
lega til að verða frjáls. Hún hefur
lært hjá henni i þrjú ár, bvi engin
takmörk eru fyrir hve mikið hægt
er að læra. Nú þorir Sylvia Lind-
enstrand að vera hún sjálf. Og
hún veit að hún getur það. Kann
að taka gagnrýni og lofi. En þeg-
ar slagsiða kemur á skipiö og hún
fær alltof mikið af lofi og rósum,
verður hún svolitið hrædd og
rugluð og sækir þrótt i að þvo
með ræstidufti og klút.
—Þýtt SJ)
Sunnudagur 11. júM l#7«.
22.15 Veöurfregnir. Danslög.
Heiöar Astvaldsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
MANUDAGUR
12. júli
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. landsmálabl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.55: Séra Páll Þórðarson
flytur (a.v.d.v.)
Morgunstund barnanna kl.
8.45: örn Eiðsson heldur
áfram að lesa „Dýrasögur”
eftir Böðvar Magnússon á
Laugarvatni (4). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli
atriða. Tónleikar kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Meloskvartettinn I Stuttgart
leikur Strengjakvartett nr. 1
eftir Schubert/Félagar úr
Vlnaroktettinum leika
Divertimento nr. 17 i D-dúr
eftir Mozart.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Römm
er sú taug” eftir Sterling
North. Þórir Friðgeirsson
þýddi. Knútur R. Magnús-
son les (2).
15.00 Miödegistónleikar.
Hljómsveitin Filharmonia
leikur „Svanavatnið” ball-
ettmúsik op. 20 eftir Tsjai-
kovski, Igor Markevitch
stjórnar. Nicolai Ghiauroff
syngur með kór og Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna ariur
úr óperunni „Prins Igor”
eftir Alexander Borodin,
Edward Downes stjórnar.
Joao Carlos Martins og
Sinfóniuhljómsveitin I
Boston leika Pianókonsert
eftir Alberto Ginastera,
Erich Leinsdorf stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
17.10 Tónleikar.
17.30 Sagan: „Ljónið, nornin
og skápurinn” eftír C.S.
Lewis. Kristin Thorlacius
þýddi. Rögnvaldur Finn-
bogason les (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Sverrir Runólfsson talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 Ur handraðanum.Sverr-
ir Kjartansson sér um þátt-
inn.
21.15 Islensk kammertónlist:
Fiðlusónata eftir Jón
Nordal. Björn Ölafsson og
höfundurinn leika.
21.30 V t v a r ps sa g a n :
„Ærumissir Katrlnar
Blum” eftir Heinrich Böll
Franz Gislason les þýðingu
sina (7).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaöar-
þáttur. Hólmfriöur Sigurð-
ardóttir garðyrkjufræðing-
ur talar um heimilisgarð-
inn.
22.40 Norskar visur og vlsna-
popp. Þorvaldur örn Arna-
son kynnir.
23.15 Fréttir. Dagskrárlok.
Kaupið bílmerki
Landverndar
kérndum
^ líf
Kerndum
/otlendiy
Til sölu hjá ESSO og SHELL
bensínafgreióslum og skrifstofu
Landverndar Skólavöróustíg 25