Tíminn - 11.07.1976, Page 37
Sunnudagur 11. JúU 1976.
TÍMINN
H
Skólaslit
Skógum
i
Landspróf var þreytt viö
skólann i siöasta sinn eins og lög
gera ráð fyrir. Að þessu sinni
þreyttu 24 prófiö. 19 þeirra hlutu
einkunnina 6 eða meira 2 stóöust
ekki próf, en hinir hlutu heimild
til endurtöku. Hæstu aöaleinkunn
á landsprófi hlaut Guðbjörg A.
Jónsdóttir, Skógum,9,2 og var þaö
jafnframthæsta einkunn I skólan-
um á landsprófi.
Frá þvi aö Skógaskóli tók til
starfa haustiö 1949 hafa þá alls
533 nemendur lokið landsprófi frá
skólanum, af þeim hafa 507
staðizt landspróf miöskóla meö
einkunnina 5 eða hærra, en 421
hefur hlotiö einkunnina 6 eöa
meira og öölast rétt til inngöngu i
menntaskóla, eru þaö tæplega 79
af hundraði þeirra, sem þreytt
hafa landspróf viö skólann frá
upphafi.
Gagnfræðaprófi luku 28 nem-
endur. Ellefu hlutu rétt til inn-
göngu i menntaskóla eöa fram-
haldsdeildir gagnfræöaskóla.
Hæstu einkunn á gagnfræöaprófi
fékk Maria Guömundsdóttir,
Haga, Holtum 8.38.
í fimmta bekk, sem starfaði á
tungumála- og raungreinasviöi
stóðust alir próf. Hæstur þar varö
Páll Pétursson Litluheiöi, Mýrdal
meö 7.71.
Sýslunefnd Rangárvallasýslu
færöi skólanum aö venju bækur til
þess að verðlauna þá nemendur,
sem skarað höfðu fram úr I námi.
Héraösskólanum í Skógum var
slitiö laugardaginn 22. mai siöast-
liöinn. Þótt ekki lægju þá fyrir
endanlegar niöurstöður prófa.
Skólinn starfaöi með svipuöu
sniöi í vetur og undanfarin ár. 1
skólanum voru fimm bekkjar-
deildir og þar af var ein tvískipt.
Nemendur i skólanum voru 114 og
voru 65 þeirra i heimavist, hinir
voru ýmist búsettir i Skógum eöa
þeim var ekiö i skólann daglega
úr báöum Eyjafjallahreppum og
Dyrhólahreppi. Hafa nemendur i
skólaakstri aldrei verið fleiri en i
vetur, en akstur meö nemendur i
skólann hefur aukizt mjög hin
siðari ár.
Danska og þýzka sendiráöiö
veitti verðlaun þeim nemendum
sem beztum árangri höföu náö i
dönsku og þýzku á lokaprófi.
Þá gaf lionsklúbburinn Suöri i
Vik verðlaunabækur þeim nem-
endum, sem hæsta einkunn höföu
hlotið i stærðfræöi á landsprófi og
gagnfræðaprófi. Gjöf þessi er til
að heiðra minningu Guömundar
Magnússonar, en hann var einn af
aðalhvatamönnum að stofnun
klúbbsins og stærðfræðikennari
viö Skógaskóla viö ágætan orðstir
um skeiö.
Skógar undir Eyjafjöllum.
Félagsstarf var blómlegt i vet-
ur. Árshátiö var haldin 13. april.
Á árshátiö sýndu nemendur m.a.
fimleika, þætti úr Delerium
Búbónis og nokkrir nemendur
sungu undir stjórn Þóröar
Tómassonar, sem lék meö á lang-
spil.
Að vanda var haldin bindindis-
hátiö i skólanum, en til hennar er
boöiö öllum nemendum úr efsta
bekk barnaskólanna I Mýrdal og
Rangárvallasýslu. A bindindis-
hátið hélt Þorvarður örnólfsson
ræðu auk skólastjóra, en börn úr
barnaskólunum I Skógum og á
Hvolsvelli sáu um skemmtiatriöi.
Þá var og haldiö i skólanum
fermingarbarnamót undir stjórn
sr. Halldórs Gunnarssonar i Jíólti
Til þessa móts var boöið öllum
fermingarbörnum I sýslunni.
Hinn 1. mai komu i heimsókn I
skólann nemendur, sem út-
skrifuöust fyrir tiu árum, færöu
þeir skólanum rausnarlega
peningagjöf til kaupa á kennslu-
tækjum.
Heilsufar var gott I skólanum I
vetur og námsárangur góöur. All-
ir nemendur skólans gengust
undir vorpróf nema einn.
í fyrsta bekk hlaut hæsta eink-
unn Þorbergur Albertsson, Skóg-
um 8.57. Einn nemandi fyrsta
bekkjar var fluttur I annan bekk
án vorprófs vegna veikinda.
Unglingapróf þreyttu 19 nem-
endur og stóöust þaö allir. Hæstu
einkunn á unglingaprófi hlaut Jón
Ingvar öskarsson MiöbælisbÖkk-
um, A-Eyjafjöllum 8.50.
I almennum miöskólabekk voru
24 nemendur. Luku þeira allir prófi
og stóðust þaö. Hlutskörpust varö
Unnur Jónsdóttir, Holti, Stokks-
eyrarhreppi meö 7.63.
Félög með þjálfaö starfslið í þjónustu við
Sjðh'u sinnum
iviku
Sjötíu sinnum í viku hefja þotur okkar sig til flugs í
áætlunarferð, samkvæmt sumaráætlun til 12 staða
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Þessi mikli ferðafjöldi þýðir það, að þú getur ákveðið
ferð til útlanda og farið nær fyrirvaralaust.
En það þarf talsvert til að þetta sé mögulegt. Það
þarf traust starfsfólk og góðan flugvélakost.
Við höfum hvort tveggja. Við höfum 2 Boeing og
3 DC8 þotur, og 1600 starfsmenn, marga með
langa og gifturíka reynslu að baki, í þjónustu okkar,
Starfsfólk okkar hefur ekki aðeins aðsetur á ísiandi.
500 þeirra starfa á flugstöðvum og skrifstofum
okkar í 30 stórborgum erlendis.
Hlutverk þess er að greiða götu þína erlendis.
Ætlir þú lengra en leiðanet okkar nær, þá er ekki
þar með sagt að við sleppum alveg af þér hendinni,
þá tekur ferðaþjónusta okkar við, og skipuleggur
framhaldið í samvinnu við flest flugfélög heims, sem
stunda reglubundið flug, og fjölda hótela.
Þegar þú flýgur með vélum okkar, þar sem reyndir
og þjálfaðir flugmenn halda um stjórnvölinn, og þér
finnst að þú sért að ferðast á áhyggjulausan, þægi-
legan og öruggan hátt, þá veistu að það er árangur
af samstarfi alls starfsfólks okkar, sem á einn eða
annan hátt hefur lagt hönd á plóginn til þess að svo
mætti verða.
FLUGFÉLAG LOFTLEIDIR
LSLANDS