Tíminn - 15.08.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 15. ágúst 1976
r
Ingólfur Davíðsson:
Bvggtog búið
gamla daga
135
I
Frú Margrét Gunnarsdóttir
frá Njálsstöðum í Norðurfirði,
nú búsett i Reykiavik, hefur
tekið þessar myndir. Norður-
fjörður á Húnaflóaströndum
gengur norðvestur úr Trékyllis-
vik, milli Krossnesfjalls og
Urðarness. Þetta er litill fjörð-
urum 3km. á lengd og litiðyfir
lkm.ábreidd. Láglent og gras-
lendi allmikið við fjarðarbotn-
inn og stendur þar þorpið
Norðurfjörður, og þarna er að-
setur Kaupfélags Stranda-
manna. Myndirnar eru teknar á
árunum 1947-1951. Tvær sýna
heyskaparfólk við vinnu sina og
litinn áhorfanda. Bóndi heldur á
stóru fangi og annar beygir sig
eftir öðru. Létt yfir fólkinu i
góða veðrinu.
En oft er þokusamt á
Ströndum! Snjóalög viða mikil
á vetrum, en kjarngott land er
til næst sbr. visuna gömlu ,,A
Ströndum eru fén svo feit að
fæstir siðan eta, þeir sem eru
úr annarri sveit en innfæddir
það geta”. Trjáreki hefur jafn-
an verið mikill á Ströndum, haf-
straumar bera þangað rekavið
(aðallega barrtré) frá norður-
ströndum Evrópu og Siberiu.
Sjálfsagt er fiskhjallurinn
gamli, sem sést á einni mynd-
inni, gerður úr íekavið. Á
bátana hefur margur fiskurinn
verið dreginn. Krökkunum
þykir ekki ónytt, að fá að vera i
heyvagninum og Brúnn er sjálf-
sagtspakur. Ein myndin sýnir
útimjaltir á Njálsstöðum fyrir
rúmum aldarfjórðungi. Börnin
koma úr heyvinnunni að horfa á
og kálfurinn hefur hausinn niðri
i mjólkurdallinum sinum.
Þokan er að setjast á fjöllin.
Myndir af Norðurfjarðarkon-
unum þremur hátiðabúnum er
frá árinu 1947. Skaflar i hliðun-
um. Konan til vinstri (á
upphlut) er Gi'slina Valgeirs-
dóttir húsfrú i Steinstúni, i
miðju á peysufötum Sigurlina
Valgeirsdóttir húsfrú Norður-
firði og til hægri hjá grindun-
um, húsfrú Valgerður Valgeirs-
dóttir Njálsstöðum.