Tíminn - 12.09.1976, Page 9
Suniiudagur 12. september 197(1.
TiMINN
9
Jon Lunka lektor talar um tsland viö opnun liátiöarinnar.
sem mér bárust þegar verið var
að bjóða mér til Noregs, að hug-
ur fylgdi máli, en þó verð ég að
segja, að viðtökurnar fóru langt
fram úr björtustu vonum min-
um. Ég gisti fyrstu nóttina á
Hótel Vinstra og var þar fram á
næsta dag. Þá kom þangað til
min Sigurd Vikör, lektor og
kona hans, og tóku mig með sér
heim til sin. Þar bjó ég i fjóra
sólarhringa og þau hjónin gerðu
allt sem hugsanlegt var til þess
að mér liði sem allra bezt. Einn
daginn óku þau með mig i bil
sinum til Lillehammer, þar sem
við skoðuðum listasafnið og
snæddum á útiveitingahúsi,
mjög fögru og sérkennilegu.
Háttvisi og fágað
viðmót
Þó að ég nefni ekki alla með
nöfnum, sem greiddu götu mina
og gerðu mér dvölina i Noregi
ánægjulega, þá þýðir það ekki,
að ég hafi gleymt hinum, sem
ekki eru nefndir á nafn. Sann-
leikurinn er sá, að ég myndi
aldrei endast til þess að telja
alla upp, þvi i raun og sannleika
á ég ölíum þakkir að gjalda,
sem á vegi minum urðu i þess-
ari ógleymanlegu ferð.
Jon Lunke er einn af þeim
fimmtán máttarstólpum, sem
bera uppi þessi hátiðahöld. Að
kvöldi dagsins, þegar mál-
verkasýningin var opnuð, bauð
hann okkur heim til sin, um
þrjátiu manns. Þar var setzt að
veizluborði sliku, að ég hei
sjaldan séð annað eins. Á eftir
var is, kaffi og koniak i smá-
staupum. Það var skálað fyrir
lslandi, og Lunke sagði: Nú
syngjum við islenzka þjóðsöng-
inn. Þetta var gert, og ég undr-
aðist, hve vel og rétt menn
sungu þetta ljóð og lag, sem
mörgum hefur reynzt erfitt i
meðförum, jafnvel tslendingum
sjálfum. — Nú, auðvitað stóð ég
upp á eftir. þakkaði fyrir mig og
stakk upp á þvi að nú yrði
skáláð fyrir Noregi, og norski
þjóðsöngurinn sunginn, sem
lika var gert.
Þó að ég nefndi koniak hér að
framan, þá skal enginn halda,
að þarna hafi verið setzt að
drykkju. öðru nær. Ég gat lika
um smástaup, það orð má
gjarna undirstrika. Þegar nokk-
uð var liðið á kvöld, stóðu menn
upp, þökkuðu fyrir ánægjulega
stund og fóru, hver til sins
heima, allir I einu. Þetta var
ekki nætursvall, heldur vina-
mót, fágað og menningarlegt,
eins og Norðmenn eru sjálfir.
Þarna virtist allt koma af sjálfu
sér. Gestrisni og höfðingskapur
frænda okkar i Noregi brást
ekki nú fremur en endranær, og
háttvisi þeirra og fágað viðmót
mun verða mér lengi i minni.
—VS.
Agúst Petersen listmálari.
Nú sleppum við Allegro lausum - kraftmiklu ”dýri" af þeirri tegund, sem fer lipurlega
um frumskóg umferðarinnar. x ,
Með þiálu framhjóladrifi smýgur hann í beygjurnar og hefur gott tak a veginum, jafn-
vel á hálum vetrarbrautum. Undir vélarhlifinni leynist kraftmikil þverliggjandi vel. Auk
þess er fimm stiga girkassi (1500-gerðin) og fádæma góð vökvafjöðrun,
Hydragas, sem tryggir að ”dýrið” þitt er ávallt tryggilega með öll hjólin
á veginum. Sérstaklega styrktir diskahemlar á framhjól-
um veita þér einnig aukið öryggi og tryggingu; þú getur «
snarhemlað ef nauðsyn krefur. Og í þessum nýja Allegro^l
Combi er farangursrými, sem gæti rúmað
1320 lítra af vatni.
En það sem kannski vekur hvað mesta
athygli við Allegro er hve
neyzlugrannt ”dýr” hann er.
Hann eyðir litlu benzíni, hóf-
iegt verð er á varahlutum.
Það er ótrúlega ódýrt að
eignast þetta "hlaupadýr”.
RUSTin
©P. STEFÁNSSON HF. “S
HVERFISGÖTU 103 REYKJAVÍK SÍMI 26911 POSTHOLF 5092
Þak- og sprungu-
þéttingar
Notum eingöngu hina heimsþekktu
álkvoðu.
Tek að mér verkefni út um land. 10 ára
ábyrgð á efm og \ mnu.
Upplýsingar i sima 20390 og 24954.
Auglýsið í Tímanum