Tíminn - 12.09.1976, Blaðsíða 31

Tíminn - 12.09.1976, Blaðsíða 31
Sunnudagur 12. september 1976. TÍMINN 31 HLJÓMPLÖTUDOMAR NÚ-TÍMANS Stuðmenn — Tivolí Steinar hf. ★ ★ ★ ★ ★ ~r FYRSTA plata Stuðmanna „Sumar á Sýrlandi” er án efa ein merkilegasta plata, sem gefin hefur verið út hér á landi bæði hvað varðar frumlegheit, gæði og hve auðveldlega hún gekk i alla aidurshópa iands- manna. Af þeim sökum eru Stuðmenn i töluverðri hættu nú, þvi að nýja platan „Tivoli” býð- ur ekki upp á nein ný frumleg- heit, þannig að þeir sem ætla að „endurlifa” stemninguna af „Sumar á Sýrlandi” verða fyrir miklum vonbrigðum I fyrstu. „Tivoli” er ekki plata, sem menn gripa við fyrstu heyrn, margt á henni þarf sinn tima, en þegar fram liða stundir eru það beztu lögin, en það er einmitt reglan við góðar plötur. Tónlistarlega séð er „Tivoli” mikið stökk fram á við, lögin eru flóknari, undirspilið þró- aðra og allt yfirbragð plötunnar ber vott um vandvirkni og kunn- áttu. Lögunum má skipta i þrjá hluta. Hefðbundin „Stuðmanna- lög, rokk og létt Spilverkslög, en þau eru mjög áberandi á þessari plötu, og ef þau eru sýnishorn af þvi, sem Spilverkið er að gera bak við tjöldin má búast við miklu frá þeirri hljómsveit. „Tivoli” fjallar, eins og nafn- ið ber með sér, um Tivoli sáluga og þá undraveröld sem Tivoli er. Stuðmenn taka fyrir ýmislegt sem þar kem- ur fram, og tekst þeim oft frábærlega upp. „Herra Reykjavik” er ein smelln- asta lýsingin, er segir frá fegurðarsamkeppni sem þar var haldin. Þar tekst þeim frá- bærlega vel að lýsa hinum mikla „kroppi” Herra Reykja- Reykjavikur. „Söngur Fjall- konunnar” i frönsku hjóli er eitt sniðugasta lagið með mein- fyndnum texta. Þau tvö lög sem liklegust eru til vinsælda eru „ölina og ég”, og „Biólagið”. Þau eru bæði hörku Stuðmannalög, hröð, fyndin og melódisk. Hægt væri að segja mikið frá öllum lögum plötunnar, þvi öll hafa margt til brunns að bera, en ég ætla að hlifa ykkur við meiri upptaln- ingu, enda kemur obbi lands- manna til með að heyra lögin á næstu mánuðum. Hljóðfæraleikur á plötunni er frábær, sérstaklega er þáttur Jakobs Magnússonar stór, en hann gerir mikla hluti á pianó og orgel. Þáttur Þórðar Arna- sonar ér samt langmestur. Hann sér um nær allan gitarleik og tekur öll sóló. Það er sama hvort það er rafmagnsgitar eða kassagitar, hann skilar öllu af mikilli kunnáttu og fimi. Um sönginn er óþarfi að fara mörg- um orðum, Spilverkið hefur hingað til sungið frábærlega og er það sama upp á teningnum hér. „Tivoli er plata sem ég mæli eindregið með, og á meðan við eigum hæfileika fólk á borð við Stuðmenn er islenzk popptónlist ekki i neinni hættu. „A/leð sínu nefi" ★ Vilhjálmur Vilhjálmsson í essinu sínu VILHJALMUR VILHJALMS- SON, söngvarinn góðkunni, hef- ur nú eftir talsvert hlé komið aftur fram á sjónarsviðið með nýja plötu, sem hann hefur nefnt „Með sinu nefi”, en textarnir á plötunni eru allir eft- ir Kristján frá Djúpalæk. 1 siðustu viku kynnti Vil- hjálmur plötu sina fyrir popp- fréttariturum, og sagði þá m.a. frá sinum fyrstu kynnum við skáldið frá Djúpalæk. Sagði Vil- hjálmur , að fyrir mörgum ár- um hefði hann verið blaðamað- ur hjá Degi á Akureyri og hefði Kristján þá verið við samá starf hjá verkamanninum- — Dagur hafði efni á þvi að senda blaða- mann sinn i leigubil á blaða- mannafundi, en verkamaöurinn ekki. Það varð þvi úr, að Kristján fékk alltaf aö fljóta með mér og tókst með okkur góð vinátta, sagði Vilhjálmur. A plötu sinni syngur Vilhjálm- ur ellefu lög eftir þekkta tón- listarmenn, fjögur lög eru eftir ^Gunnar Þórðarson, tvö eftir Agúst Pétursson og jafnmörg eftir Svavar Benediktsson. Þá eiga Magnús Kjartansson, Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiriksson sitt lagið hver. Vilhjálmur sagði frá kynnum sinum við alla þá menn, sem unnið hefðu með honum að gerð plötunnar, en það er stór hópur manna, bæði popphljómlista- menn og eldri tónlistarmenn, sem þekktir voru á dögum „Þórðar sjóara” en það vinsæla lag flytur Vilhjálmur m.a. á þessari plötu sinni. Um útsetningar á lögunum sáu nokkrir menn, þ.á.m. Magnús Ingimarsson og náungi að nafni Njudni, en hann vill ekki gefa nafn sitt upp. Njudni var lika andleg stoð og stytta Vilhjálms við gerð plötunnar. Það er enginn vafi á þvi, að þess plata Vilhjálms er ein bezta plata, sem komið hefur út hérlendis á þessu ári, en fjallað verður um plötuna nánar i Nú-timanum von bráöar. tJtgefandi plötunnar er Fálk- inn. Vilhjálmur Vilhjálmsson setur plötu sina á fóninn, meö honum á myndinni eru Þorvaldur Steingrimsson, ólafur Haralds- son hjá Fálkanum og Magnús Kjartansson. Nú-timamynd: Róbert. „Fram og aftur blindgötuna" SENN kemur á markaðinn þriðja plata Magnúsar Þórs Jónssonar, sem þekktari er undir nafninu Megas, en þessi nýja plata var tekin upp I stúdiói Hljóðrita I júlimánuði siðast- liðnum. Platan nefnist „Fram & aftur blindgötuna”. Megas gaf sina fyrstu plötu út árið 1971 en önnur plata hans kom á markað i september i fyrra og nefndist Millilending. Nýja platan er gefin út af hljómplötufyrirtækinu Hrim, og er þetta fyrsta plata útgáfunn- ar. Megas semur eins og áður alla texta og öll lög sjálfur auk þess sem hann stjórnar upptök- unni og gerð umslagsins. Eftirtaldir hljóðfæraleikarar aðstoðuðu Megas á plötunni: Pálmi Gunnarsson, Sigurður Karlsson, Þorsteinn Magnús- son, Lárus Grimsson, Birgir Guðmundsson, Aagot óskars- dóttir og Þorleifur Gislason. Megas leikur sjálfur á munn- hörpu — og svo syngur hann einnig. Vinsœldalisti LP-plötur Bandarikin a eð g r* > > « a t/3 m tn vi 03 iO 4> Es A œ : Peter Frampton — Frampton Comes Alive....33 Fleetwood Mac.............................59 : Jefferson Starskip — Spitfire............10 : George Benson — Breezin’.................22 i BozScaggs—Silk Degress...................26 i Linda Ronstadt — Hasten Down The Wind.... 3 : LouRawIs — All Things In Time............15 i Wild Cherry.............................. 8 i Chicago X............................... 11 John Denver — Spirit...................... 2 i War — Greatest Hits...................... 2 Wings At The Speed Of Sound...............23 : NeiIDiamond — Beautiful Noise............11 l Barry Minilow — This One’s For You....... 4 i Aerosmith—Rocks..........................16 HelenReddy—Music.Music ................... 5 Steve Miller Band —Fly Like An Eagle......16 l Commodores — Hot On The Tracks...........10 : Diana Ross Greatest Hits................. 6 Eagles—Their Greatest Hits 1971-1975 .....28 Gunnar Hermannsson kveður Paradís... ... og hefur Jóhann Þórisson verið ráðinn í hans stað A \kí Jú / Breytingar hjá Paradís EFTIR ÞESSA helgi mun liðsskipan hljómsveitarinnar Paradisar breytast þvi Gunnar Hermannsson, bassaleíkarí, sem hefur verið i hljómsveitinni frá upphafi hefur ákveðið að láta af störfum og setjast á skólabekk. Gunnar hyggst leggja stund á raffræði- nám i Iðnskólanum i vetur og leggja bass- ann á hilluna, eins og iþróttafréttaritarar myndu orða það. í stað Gunnars hefur Paradis ráðið bassaleikarann Jóhann Þórisson, sem áður lék með hljómsveitinni Dögg Jóhann hefur þegar byrjað að æfa með Paradis og mun hljómsveitin koma i fyrsta sinn fram með Jóhanni um næstu helgi. Pétur Kristjánsson söngvari er nú sá eini, sem hefur verið i hljómsveitinni frá stofnun.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.