Tíminn - 12.09.1976, Blaðsíða 19

Tíminn - 12.09.1976, Blaðsíða 19
Sunnudagur 12. september 1976. TlMINN Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhús- inu við Lindargötu, sfmar 18300 — 18306. Skrifstofur f Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasfmi 19523. Verð I lausasölu kr. 50.00. Askriftar- gjald kr. 1000.00 á mánuði. ' Blaðaprent h.f. Stöðva konur IRA? Pólitiskir kenningasmiðir og fræðarar hafa gengið manna á meðal og kynnt það nýmæli, að dularfull lögmál valdi þvi, að af brotamanna, og þá einkanlega fjárglæframanna, sé að leita i einum stjórnmálaflokki. Að jarðveginum hæfilega erjuðum hefur siðan verið farið á flot með þessa kenningu i fjölmiðlum. Þess þarf auðvitað ekki að geta, að það er ekki flokkur upphafsmanna og boð- bera þessara kenninga, sem slikum ósköpum er undirorpinn. Þar i sveit finnast aðeins lömbin sak- laus og skinandi englar. Þessi nýja kenning hefur óneitanlega komið flatt á marga. 1 grandaleysi hefur fólk yfirleitt haldið, að brotamenn gætu hitzt I hvaða stjómmálaflokki sem væri, rétt eins og obbinn af mönnum i öllum flokk- um getur sem betur fer ekki annað kaflazt en hinar heiðarlegustu sálir. Nú er sagan hinn mikli dómari, ofar öllu skækla- togi samtimans. Hún kann að sjálfsögðu að greina frá þvi, hvaðan úr sveit brotamenn hafa komið á liðnum áratugum, ef þeir hafa á annað borð verið i tengslum við einhvern stjómmálaflokk. trr því að hin nýja kenning er fram komin og i hámælum höfð, væri ef til vill verðugt að kanna þetta mál, til dæmis i tið þeirra stjórnmálaflokka, sem enn starfa, og flokka þá, sem við sögu koma, einkum vegna auðg- unarbrota, eftir pólitiskum lit. Að slikri flokkun lokinni mætti sjá, hver fengi flesta og vænsta sauði i sinn dilk, og hver sker sig þar úr, ef einhver er. Þar með væri prófsteinn fenginn á það, hvaða hald er i orðum útbreiðslustjóra hinnar nýju kenningar og hjálparanda þeirra. Sérstaklega gæti þetta orðið ungu fólki undirstöðugóður fróðleikur, þvi að það minnist eðlilega ekki ýmissa atvika úr stjórnmála- sögunni, er hina rosknari rámar i. Svona könnun helgast meðal annars af þvi, að jafnan ber að hafa það, sem sannara reynist, auk þess, sem það hlýtur að vera nokkurs vert að fá sannaða eða afsannaða þá nýju kenningu, að afbrot hrannist upp i einum stjórnmálaflokki. 1 þessari könnun myndi koma við sögu, hverjir báru slika umhyggju fyrir heilsufari ,,ömmu’’, að þeir létu boðin ganga daglega til útlendra og inn- lendra togara út um allan sjó. Sjúkleika þeirrar heiðurskonu var svo einkennilega farið, að henni þyngdi ævinlega, þegar varðskip létu úr höfn, og ekki bráði af henni fyrr en þau sáust við hafsbrún á landleið. Grandskoðað yrði eyrnamark þeirra, sem fluttu faktúrur til landsins i tunnum. Huga mætti að þvi, hvort kosningastjórar flokka og fjárreiðumenn hafi komizt i annála eða flekkótt saga kunni að tengjast manni, sem lét draga fugl einn ónefndan, tákn hins frjálsa framtaks, á veggi rikulegra salar- kynna, svo að stallbræður hans mættu gleðja augu sin i boðum og á ráðstefnum við þanda vængi hans og bognar klær. Til greina kæmi, að grennslast eftir örlögum sjóða og fasteigna, ef þar fyndist innlegg i svona könnun. Og svona mætti lengi telja. Þessi romsa er ekki þulin neinumtil skemmtunar, heldur af marggefnu tilefni vegna alhæfingar af ófyrirleitnu tagi. úr þvi svo langt hefur verið gengið sem gert hefur verið að segja einn flokk röksemda- laust klakstöð afbrota, er bezt að svona könnun fari fram. Verðandi félagsfræðingar i háskólanum ættu helzt að annast hana, svo að ekki verði brigður- bornar á, að hlutleysis sé gætt. Friðarhreyfing kvenna á N-írlandi Kenning og veruleiki Þaö liöur varla einn einasti dagur, svo ekki sé minnzt á málefni Noröur-lrlands i brezkum fjölmiölum. Helzt eru þaö ódæöisverk hryöju- verkamanna IRA.sem fá rúm á forsiðum blaöanna, en stöku sinnum er drepiö á viðleitni ráöamanna til aö koma I veg fyrir eöa draga úr moröum og eyðileggingu verömæta. Fyrir nokkru var þó hinum flennistóru fyrirsögnum af nýjustu afrekum moröingj- anna á Noröur-Irlandi, ýtt burtu af forsiöum brezku blaö- anna og i stað þeirra mátti sjá fréttir af félagsskap norð- ur-i'rskra kvenna, sem ætlar sér meira þrekvirki, en öllum helztu stórmennum brezka heimsveldisins hefur tekizt að framkvæma, þ.e. aö stöðva blóösúthellingarnar á Norð- ur-lrlandi. Þessi samtök ætti þó að virða, þvi vopn þeirra er ekki drápstæki heldur kærleikur og guðstrú. í AGÚSTMANUÐI, þegar nokkrir illvirkjar voru á flótta undan lögreglunni eftir eitt hryilingsverkið, ók bilstjóri þeirra bifreið sinni á saklaus- an barnahóp, sem var á friö- samri göngu meö móður sinni. Þrjú börn — systkini — létust þegar, en móðir þeirra slasað- ist hættuiega og mun aldrei biða þess bætur — hvorki á sáiu né likama. Þessi atburður, sem átti sér staö 10. ágúst, var tilefni þess — en ekki orsök — að 32 ára gömul kona ákvað að hætta lífi sinu og berjast gegn ófögnúð- inum. Betty Williams var nefnilega vitni að drápinu. Nokkrum dögum siðar hófst Betty Williamshanda. Hún fór með undirskriftalista um eitt fjölbýlasta hverfi kaþólikka i Belfast, en sjálf er hún ka- þólsk. Þar bað hún bláókunn- ugt fólk, að skrifa undir friðaráskorun. A þeim degi var stofnuð litiö nefnd kvenna, Frá friðargöngu kvenna i Belfast. HVAÐ GERIST NÆST? Þessu er ekki auðvelt að svara. En reynslan af fyrri samtökum, sem störfuðu á svipuðum grundvelli er ekki uppörvandi. Frú Doherty reyndi fyrir fjórum árum, að koma kvennasamtökum á legg eftir „Blóðsunnudaginn” fræga, en þau lognuðust fljót- lega út af. Reyndar er ástandið þegar orðið erfitt hjá Betty Willi- ams. Börn hennar hafa orðið fyrir árásum. Timasprengju hefur verið komið fyrir i húsa- garðinum hjá henni, en hún sprakk reyndar ekki. Múr- steinum hefur verið varpað inn um gluggann á ibúð henn- ar. Svo slæmt er ástandið orð- ið, að hún hefur orðið að senda börn sin á brott. Ekki verður séð annað, en samtök hennar liði undir lok, eins og fyrirrennari hennar. En alla vega hefur eitthvað raunhæft verib gert til að betr- umbæta hugarfarið á Norður- Irlandi. MLÓ tók saman. Betty Wiiiiams til vinstri og Mairead Corrigan. sem stefnir að þvi að koma á friði á Norður-írlandi. Meðal þeirra kvenna, sem strax tóku þátt i baráttunni, er Mairead Corrigan. Hún sá ekki atburðinn, þegar börnin þrjú voru drepin, en hún heyrði um hann nógu snemma. Þau voru nefnilega systkini hennar. Samtök þessara kvenna hafa þegar hlotið gifurlega góðar undirtektir á Norður-Ir- landi. Haldnar hafa verið þrjár fjöldagöngur. 1 þeirri fyrstu tóku tiu þúsund konur þátt. Tuttugu þúsund gengu i annað skiptið. Og i þriðju göngunni voru þátttakendur orðnir 25 þúsund, og þá voru eiginmennirnir farnir að koma með. BETTY WILLIAMS bygg- ir samtök sin á mannlegri skynsemi. ,,Ég er vel gift og hamingjusöm móðir. Þar til fyrir fjórum til fimm árum haföi ég einungis áhuga á fjölskyldu minni og iþróttum. En þá byrjuðu hryðjuverkin. Ég eins og þúsundir annarra mæðra, töluðum um hvað hægt væri að gera, en alltaf i hljóði og aðeins við þá sem við gátum treyst. En sprengjan sprakk, þegar börnin þrjú lét- ust. Þaö hafa áður átt sér stað harmleikir, en þessi geröi út- slagið. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir þvi, að h'f mitt er i hættu. Ég er hrædd, en þetta er verk, sem verður að vinna. TIL AÐ BYRJA með, þá hlaut starf Betty Williams mikið rúm i fjölmiðlum. En fréttir af samtökum hennar eru óðum að hörfa undan nýjústu fregnum af afrekum morðingjanna. Og það á sennilega eftir að ganga af samtökum hennar dauðum. Fleira kemur til. Mótmælendum er illa við hana, þvi hún er kaþólsk. Versti óvinur hennar er þó IRA, en þeir gruna hana um, að veita Bretum upplýsingar. —JH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.