Tíminn - 12.09.1976, Side 24

Tíminn - 12.09.1976, Side 24
24 TÍMINN Sunnudagur 12. september 1976. Forráðamenn leiðangursins 1967, prófessor Atkinson, Raul Johnáton, ásamt Magnási Magnússyni. Kuml eða móður kviður? Leyndardómarnir um forsögu mannsins verða ef til vill aldrei ráðnir. Sérhver nýr fornleifa- fundur eða uppgötvun bætir viö nýjum kenningum en fáum stað- hæfingum. Einn þessara leyndar- dóma, sem staðizt hefur ti'mans tönn og ágengni forleifafræðinga, hefúr staðið mönnum fyrir sjón- um iBretlandi i liðlega fimm þús- und ár. Þetta er Silbury hæöin i Wiltishire byggð með óvéfengjan- legri verkfræðiþekkingu og er stærsta hæð i Evrópu frá fornöld sem vitað er til að hafi verið gerð af manna höndum. 1 marga áratugi hefur hæð þessi freistað fornleifafræðinga en engum tekizt að svipta hulinni afgátunni, sem hún geymir. Ekki alls fyrir löngu kom þó maður nokkur fram með kenningu, sem hann telur varpa ljósi á allan sannleikann i málinu. Þetta er Michael Dames, lektor i sögu og listum við háskólann i Birmingh- am. Hann rannsakaði hæðina i átta ár og hefur nö ritað bók um niðurstöður sínar. Það er engin tilviljun, segir hann að uppskeru- háti'ðin er i ágúst og hann er sann- færður um það, að Silbury hæðin sé minnismerki frá fornöld og að, að kvöldi uppskeruhátiðarinnar verði tákn þess ráðin. Ef ekið er eftir þjóðveginum A4 frá London i vestur, blasir hæöin við þar sem hún ris upp úr ökrun- um, mllu vegar suður af Avebury Circle, miðja vegu á milli Calne og Marlborough og nær yfir fimm og hálfa ekru af landi. Við fyrstu sýn virðist þetta vera grasi vax- inn gjallhaugur, flatur að ofan og 130 feta hár. En þar sem ekki eru neinar kolanámur I nágrenninu getur þaðekki staðizt. Þarna eru aöeins kalklönd Wiltishire, pilvið- ur Kennet-dalsins, hveiti og lerki, — og hvarvetna gefúr að lita vis- bendingar um forna búsetu manna. í Avesbury Circle eru fjölmargar menjar frá bronsöld og þykja þær hinar merkilegustu sinnar tegundar I Evrópu. Beint norður af Silbury hæðinni er Windmill hæöin, en eftir henni er menning manna, sem þarna bjuggu á nýju steinöld (kringum 3000 f. Kr.) nefnd. Silbury var viðfangsefni þjóð- sagna á þessu svæði löngu áður en John Aubrey var uppi. Nefndur Aubrey kom til Avebury árið 1648 til aö rannsaka hæðina. Það voru ekki neinar ritaðar heimildir til um hana og yfirleitt engin vit- neskja en þjóðsagan segir aö Sil kóngur hafi verið grafinn þarna með hesti sinum, og að hæöin hafi verið reistá meðan verið var að flóa mjólkurdreytil. Arið 1968 sagöi gamall fjárhirðir Pepys þessa sömu sögu og hugmyndin að þarna væri grafin manneskja hlaðin gulli ásamt hesti fékk byr undir váða vængi. Arið 1723 gróf fornleifafræðingurinn Will- iam Stukeley upp beinagrind efst Ihæöinni. Hann dro þá ályktun að þetta væru leifar. hins forna konungs. Þessu var fljótlega af- neitaðþvifremur þótti liklegra að hann hefði verið grafinn neðst I hæðinni en ekki efst. En Stukeley hafði þó rétt fyrir sér, er hann sagði að hæðin væri forsöguleg. Vitað var að rómverski vegurinn sem A4fylgir að hluta hafibeygt i kringum hæðina og þar af leiðir að hún hlýtur að hafa verið þarna á fyrstu öld e. Kr. 1 lok átjándu aldarinnar jókst enn áhuginn á hæðinni. Arið 1796 gerði greifinn af Norðymbralandi út leiðangur á hana. Hann réð námaverkamenn úr tinnámum i Cornwall til að grafa lóðrétt göng frá miðjum toppnum niður á botn, eitthundrað og þrjátiu fetum neð- ar. London Journal sagði svo af þessum leiðangri: „Þeir hafa grafið holu i toppinn. Fornleifa- fræðingarnir gera sér vonir um að úr iðrum fjallsins fái þeir gull og gersemar.” En þeir urðu einskis visari. Að minnsta kosti var eina skýrslan sem rituð var um leiðangurinngefin út nær tutt- ugu árum siðar, og hún var stutt. Þar segir: „Eini hluturinn, sem fannst á botninum var þunn eikarflis. Uppgröfturinn hefur sannað að engin ástæða sé til að ætla að þetta sé forn legstaður.” Ekki vildu þó allir fallast á þessi rök. Ariö 1849 sagði John Merewether deildarforseti við Hereford háskólann aö eitt væri vist og það væri aö leiöangurinn frá 1776 heföi alls ekki fundið miðjuna á hæðinni. Með tilstyrk Fornleifafræöistoftiunarinnar stjórnaöi hann uppgraftarleiö- angri til að leita að hinni týndu gröf. I þetta skipti voru göngin grafin lárétt og voru sex oghálft fet á hæð. Uppgröfturinn varö gagnslaus og ákvað Fornleifa- fræðistofiiunin að hæðin gæti ekki veriö grafreitur. Þá komu upp kenningar af öðrum toga spunnar t.d. um sólardýrkun, djöfladýrk- un og að allar hæðirnar i upplandi Wiltishire væru eitt griðarstórt stjörnukort og táknaði Silbury jörðina. Arið 1922 reyndi hinn frægi fornleifafræöingur sir Flanders Petrie að finna leiðina að gröfinni en varð frá aö hverfa. Rannsókn var gerö úr lofti en ekkert nýtt kom þar fram sem varpaö gæti ljósi á málið. Farið var með málmleitartæki yfir hæðina en kalk og möl var það eina sem fannst. Arið 1959var enn ein rannsóknin gerð. Það var F. T. McKim sem stjórnaöi henni og notaði hann jarðeðlisfræðilega tækni við að skrá viönám mis- munandi steintegunda við raf- magni. Hann fann ekkert merki- legt fremur en hinir. Þá var það árið 1967 að BBC stóð fyrir rann- sóknsem var stjórnað af pófessor Richard Atkinson frá háskólan- um i Cardiff. Þatta er umfangs- mesta rannsóknin sem gerð hef-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.