Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 2
2 30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
Heppnir fá þá eitthvað fallegt...
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Njörður, eru þessi samtök
eitthvað spes?
„Orðið spes er latína og merkir von.“
Njörður P. Njarðvík er stofnandi Íslands-
deildar samtakanna SPES International
sem annast og mennta munaðarlaus börn í
Afríkuríkinu Togo.
PARKÓDÍN Dæmi voru um að fíklar gengju
milli apóteka og sönkuðu að sér kódein-
lyfjum.
LYFJAMÁL Nærri lætur að fjöldi lyf-
seðla á Parkódíni hafi tvöfaldast frá
því að það var gert lyfseðlisskylt, að
því er fram kemur á vefsíðu Land-
læknisembættisins.
Ekki liggja fyrir tölur um hver
lausasala á Parkódíni var áður en
breyting var gerð 1. október 2005.
Þá er tekið fram að ekki hefur orðið
breyting á ávísunum á lyfið Par-
kódín forte, sem inniheldur kódein
í meira magni, en það hefur alltaf
verið lyfseðilsskylt.
Breytingin hefur gengið mun betur
fyrir sig en margir þorðu að vona.
Starfsfólk apótekanna mun ekki
hafa orðið fyrir áreiti af völdum
þeirra sem ekki gátu fengið lyfið
með sama hætti og áður en marg-
ir lyfjafræðingar og starfsfólk
apótekanna höfðu óttast slíkt. ■
Verkjalyfið Parkódín:
Tvöfalt fleiri
lyfjaávísanir
VETURINN FÆRIST YFIR Hin kalda hönd
Himalajafjalla er farin að teygja sig til
hamfarasvæðanna í Pakistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PAKISTAN Tveir hafa þegar látist
af völdum mikilla kulda á jarð-
skjálftasvæðunum í Pakistan og
óttast er að eins muni fara fyrir
tugþúsundum manna ef ekki berst
þangað meiri hjálp.
Í fyrradag voru meira en
hundrað manns fluttir á sjúkra-
hús með öndunarfærasjúkdóma
og tveir lifðu ekki af nóttina.
Þetta eru fyrstu dauðsföllin sem
hægt er að rekja beint til vetr-
arkuldanna. Vikum saman hefur
verið varað við því að hinn harði
vetur í Pakistan muni fella þús-
undir manna verði ekki brugðist
við á skilvirkari hátt. ■
Hamfarasvæðin í Kasmír:
Fólk farið að
deyja úr kulda
KÓLUMBÍA Nærri hundrað hafa lát-
ist og meira en þúsund heimili eru
rústir einar eftir gríðarleg flóð í
Kólumbíu undanfarna daga.
Rigningar í landinu síðustu
mánuði eru þær mestu í aldarfjórð-
ung og áhrifanna gætir um allt
land. Síðan í september hafa nítján
þúsund hús skemmst í flóðum og
aurskriðum og mestallt atvinnulíf
hefur nánast legið niðri í nokkrum
borgum.
Verst er ástandið í norðvestur-
hluta landsins og ríkisstjórnin legg-
ur nú kapp á að koma þangað mat,
lyfjum og öðrum nauðþurftum,
auk þess sem fjölmörgum neyðar-
skýlum hefur verið komið upp. ■
Neyðarástand í Kólumbíu:
Hundrað látnir
í rigningum
MONTREAL, AP Bandarískir embætt-
ismenn staðhæfðu á ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um loftslagsmál
sem fram fer í Montreal í Kanada
að ríkisstjórn þeirra legði meira
af mörkum en flest önnur ríki við
verndun andrúmsloftsins. Þeir upp-
skáru harða gagnrýni fyrir vikið.
Ráðstefnan hófst í fyrradag en
þar koma saman um það bil 10.000
sérfræðingar frá 180 ríkjum og
skeggræða um hvernig sporna
megi við hlýnun jarðar. Vonast er
til að samkomulag náist um aðgerð-
ir til að draga enn frekar úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Harlan Watson, einn samninga-
manna bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, benti fundarmönnum á
að síðan George W. Bush hefði tekið
við völdum hefðu Bandaríkin dregið
úr losun slíkra lofttegunda um sem
nemur 0,8 prósentum, enda þótt
þau ættu ekki aðild að Kyoto-bók-
uninni svonefndu. Auk þess verðu
stjórnvöld jafnvirði 300 milljarða
króna á hverju ári til rannsókna og
tækniþróunar í þessum geira.
Elizabeth May frá Kanada sak-
aði hins vegar Bandaríkjamenn,
sem losa allra þjóða mest af gróð-
urhúsalofttegundum, um að ætla
að eyðileggja Kyoto-bókunina. Hún
kvaðst þeirrar skoðunar að Bush-
stjórnin væri mesta umhverfisvá
jarðarinnar. - shg
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur yfir í Montreal:
Bandaríkin gagnrýnd harðlega
FUNDARGESTIR ÁVARPAÐIR Stephane Dion,
umhverfisráðherra Kanada og forseti ráð-
stefnunnar, bauð þingfulltrúana hjartanlega
velkomna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tvítugur maður í Reykjavík sætir
rannsókn lögreglu eftir að hafa
í tvígang verið kærður fyrir að
nauðga unglingsstúlkum, fimmtán
ára gömlum.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, staðfesti
að mál mannsins hefði komið inn á
borð lögreglu og væri í rannsókn.
Hann gat ekki staðfest að lög-
reglu hefði borist þriðja málið,
sem sagt er snúa að fjórtán ára
gamalli stúlku. - óká
Kærður vegna unglingsstúlkna:
Sakaður um
nauðganir
ATVINNULÍFIÐ Um 400 norræn
dótturfyrirtæki eru starfrækt í
Eystrasaltslöndunum, þar af eru
tólf íslensk fyrirtæki með hátt í
2.000 starfsmenn. Fimm þessara
fyrirtækja starfa í byggingar- eða
málmiðnaði. Þetta kemur fram í
skýrslu um umsvif norrænna fyr-
irtækja í Eystrasaltsríkjunum sem
norrænu stéttarfélögin létu vinna.
Í Eistlandi starfrækja Íslending-
ar eitt dótturfyrirtæki í byggingar-
iðnaði. Það hefur 110 starfsmenn.
Í Lettlandi eru tvö byggingarfyr-
irtæki með 560 starfsmenn auk
málmiðnaðarfyrirtækis með 16
starfsmenn. Í Litháen er íslensk
verksmiðja með 100 starfsmenn en
búist er við að þeir verði 250 um
áramót.
Til viðbótar eru sjö önnur fyrir-
tæki í eigu Íslendinga, eitt í Lithá-
en og sex í Lettlandi. Þessi fyrir-
tæki hafa samtals rúmlega þúsund
s t a r f s m e n n .
Flest eru fyr-
irtækin í mat-
vælaiðnaði en
eitt framleiðir
fatnað og annað
er í efnaiðnaði.
Jyrki Raina,
framkvæmda-
stjóri norræna
málmiðnaðar-
s a m b a n d s i n s
N o r d i s k a
Metall, segir að
það hafi komið
norrænu sam-
böndunum á
óvart hversu
stór íslensku
fyrirtækin séu
í Eystrasaltslöndunum. Nú sé það
verkefni félaganna að ákveða
hvernig eigi að nálgast þau og bæta
kjör þessara starfsmanna.
Í langflestum tilfellum eru
starfsmenn íslensku fyrirtækjan-
na ekki í stéttarfélögum. Þorbjörn
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Samiðnar, segir í frétta-
bréfi félagsins að næsta verkefni
verði að afla nánari upplýsinga
um starfsemi fyrirtækjanna,
hvort þau hafi gert kjarasamn-
inga og virði almennar leikreglur
á vinnumarkaði.
ghs@frettabladid.is
Með 2.000 starfs-
menn í Eystrasalti
Íslendingar reka hátt í 20 fyrirtæki af 400 norrænum fyrirtækjum í Eystrasalts-
ríkjunum. Í flestum tilfellum eru starfsmenn íslensku fyrirtækjanna ekki í
stéttarfélögum. Kannað verður hvort þau virði leikreglur á vinnumarkaði.
Norræn könnun hefur leitt í ljós að Íslendingar reka um 20 fyrirtæki af þeim 400 norrænu
fyrirtækjum sem starfrækt eru í Eystrasaltsríkjunum.
SJÁVARÚTVEGUR „Á þremur árum
hefur sjóður um aukið verðmæti
sjávarafla lagt til rúmar 400 millj-
ónir króna til 145 verkefna. Óhætt
er að segja að þau verkefni hafi
verið að velta rúmum milljarði
króna,“ segir Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra.
Einar kynnti í gær starfsemi
AVS-sjóðsins á blaðamannafundi í
HB Granda í Örfirisey en markmið-
ið með þeim sjóði er að auka verð-
mæti sjávarafla, líkt og skammstöf-
unin gefur til kynna. „Þetta sýnir
okkur að sjávarútvegurinn er ekki
bara, eins og menn hafa gjarnan
álitið, frumframleiðslugrein heldur
þvert á móti margbrotin atvinnu-
grein og í raun þekkingariðnaður,“
bætir Einar við.
Styrkir hafa verið veittir til
verkefna á markaðssviðum, í
fiskeldi, líftækni og á tækni- og
þróunarsviðum. Á meðal verk-
efna sem sjóðurinn hefur styrkt
má nefna framleiðslu Samherja á
formuðum fiskbitum, eldi á villt-
um þorskseiðum og eldisseiðum
í Ísafjarðardjúpi sem Hraðfrysti-
húsið Gunnvör hefur umsjón með,
geymsla og flutningur á lifandi
humri, sem Skinney - Þinganes
stendur í, og vinnsla Reykofnsins
í Grundarfirði á sæbjúgum.
Sjóðurinn lánar að hámarki
helming af kostnaði hvers verk-
efnis en einnig vinnur hann með
öðrum sjóðum. - jse
Sjóður um aukið verðmæti sjávarafla hefur veitt 400 milljónum til 145 verkefna:
Ekki bara frumframleiðslugrein
EINAR K. GUÐFINNSSON OG FRIÐRIK FRIÐRIKSSON Friðrik, stjórnarformaður AVS-sjóðsins,
setur fundinn í HB Granda í gær en Einar K. Guðfinnsson situr við hlið hans.
Þorbjörn Guðmunds-
son, framkvæmda-
stjóri Samiðnar, segir
að kannað verði
hvort fyrirtækin hafi
gert kjarasamninga
og virði almennar
leikreglur á vinnu-
markaði.