Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 34
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN6 Ú T L Ö N D Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Svissnesk fyrirtæki hafa tekið sér stöðu í hópi verðmætustu fyr- irtækja Evrópu en þýsk fyrir- tæki hafa aftur á móti helst úr lestinni. Fyrir tuttugu árum áttu Þjóðverjar sjö fyrirtæki á lista tíu verðmætustu fyrirtækja Evr- ópu, samkvæmt samantekt Fidelity International sem birtist í Financial Times, en eiga ekkert í dag. Stærsta fyrirtæki Evrópu að markaðsvirði er franska olíu- samsteypan Total sem er um 140 milljarða evra virði. Fyrir tveim- ur áratugum var Total í 88. sæti en tveir stórir samrunar við önn- ur fyrirtæki komu því á flug. Svissnesku fyrirtækin Novartis, Nestlé, Roche og UBS koma á eftir í næstu sætum. Finnski símaframleiðandinn Nokia er í níunda sætinu. Sviss á fjögur fyrirtæki á list- anum en Frakkar og Spánverjar tvö. Þýski bílaframleiðandinn Daimler var í öðru sæti listans árið 1985 en hefur nú fallið í 21. sæti. Siemens, Allianz, Deutsche Bank, Bayer, BASF og Hoechst falla einnig af listanum. Dvín- andi máttur þýskra stórfyrir- tækja endurspeglast í veiku efnahagskerfi og vantrú fjár- festa á hlutabréfamörkuðum þar í landi. Fyrir tuttugu árum var Royal Dutch Shell stærsta fyrirtæki Evrópu en þá var markaðsvirði þess um sextán milljarðar evra. Royal Dutch Shell er nú einungis skráð í Bretlandi og væri enn á toppnum ef bresk fyrirtæki væru ekki undanskilin í saman- tektinni. Listinn bendir einnig til þess að fyrirtæki sem sérhæfðu sig í bíla-, véla- og efnaframleiðslu hafa vaxið minna á kostnað lyfja- framleiðenda og fjarskiptafyrir- tækja sem fara upp fyrir þau.                   !"! #$ !"!  Þýski bílaframleiðandinn Daimler var í öðru sæti listans árið 1985 en hefur nú fallið í 21. sæti. Siemens, Allianz, Deutsche Bank, Bayer, BASF og Hoechst falla einnig af listanum. Dvínandi máttur þýskra stórfyrirtækja endurspeglast í veiku efnahagskerfi og vantrú fjárfesta á hlutabréfamörkuðum þar í landi. Sviss byggir upp stórfyrirtæki Sjö þýsk stórfyrirtæki sem voru í hópi stærstu fyrirtækja Evrópu árið 1985 eru þar ekki lengur. Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 10,12 Lev 37,99 0,28% Carnegie Svíþjóð 110,50 SEK 7,85 3,24% Cherryföretag Svíþjóð 24,80 SEK 7,85 -0,43% deCode Bandaríkin 9,16 USD 63,43 -4,11% EasyJet Bretland 3,29 Pund 108,42 9,36% Finnair Finnland 10,56 EUR 74,23 2,21% French Connection Bretland 2,65 Pund 108,42 6,03% Intrum Justitia Svíþjóð 70,00 SEK 7,85 2,78% Keops Danmörk 20,70 DKR 9,95 10,75% Low & Bonar Bretland 1,19 Pund 108,42 8,65% NWF Bretland 5,93 Pund 108,42 -2,49% Sampo Finnland 13,81 EUR 74,23 0,90% Saunalahti Finnland 2,50 EUR 74,23 1,63% Scribona Svíþjóð 17,50 SEK 7,85 12,41% Skandia Svíþjóð 44,30 SEK 7,85 4,43% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 1 9 , 1 5 2 , 9 1 % Smokkar mæli- kvarði á verðbólgu Eins og flestar þjóðir fylgist Kýp- ur með verði ákveðinna neyslu- vara sem áður fyrr voru brauð, smjör og aðrar nauðsynjavörur. Hagstofan þar í landi íhugar nú að bæta smokkum og rislyfinu Vi- agra í vörukörfu sínu sem notuð er til að mæla verðbólgu í landinu. Kýpur hyggst nú uppfæra listann til þess að geta metið verðbólguna á nákvæmari hátt. Vörur og þjón- ustutegundir sem bæta á við eru 153 talsins og má þar nefna hár- eyðingarvörur, augnlinsur, hárgel, handfrjálsan símabúnað, tóma geisladiska og heimsókn til hnykkjarans. - hhs Jólaverslunin vest- anhafs fer heldur hægar af stað í ár en í fyrra ef marka má fyrstu sölutölur sem birtar voru af rannsóknastofnun- um verslunarinnar í Bandaríkj- unum um liðna helgi. Shopp- erTrak rannsóknarsetrið, sem mælir veltu í um 45.000 verslun- um í Bandaríkjunum, tilkynnti að jólaverslunin færi aðeins hægar af stað en í fyrra eða um 0,9 pró- sent þrátt fyrir að búist hafði verið við að hún myndi aukast. Talsmaður ShopperTrak sagði að jólaverslunin í fyrra hefði sett öll met og því væri ekkert óeðlilegt við fyrstu sölutölur og þær væru í raun góðar þegar litið væri til síð- asta árs en beðið væri eftir því að meiri skriður kæmist á verslunina. Stærsta verslanakeðja heims, Wal-Mart, fer ekki varhluta af því en verslanakeðjan hóf útsöl- ur fyrr en venjulega og hefur boðið ýmis tilboð á sérvöldum vörum alveg frá 1. nóvember. Talsmenn Wal-Mart sögðust bú- ast við því að jólaverslunin í ár yrði að minnsta kosti fjórum pró- sentum meiri en í fyrra. - hb Jólaverslun vestanhafs róleg T Í U V E R Ð M Æ T U S T U F Y R I R T Æ K I E V R Ó P U Í O K T Ó B E R 2 0 0 5 Fyrirtæki Land Virði* 1. Total Frakkland 145 2, Novartis Sviss 120 3. Nestlé Sviss 118 4. Roche Sviss 100 5. UBS Sviss 93 6. Sanofi-Aventis Frakkland 88 7. BSCH-BCO Santander Spánn 78 8. Telefónica Spánn 77 9. Nokia Finnland 76 10.ENI Ítalía 73 * Markaðsvirði í milljörðum evra T Í U V E R Ð M Æ T U S T U F Y R I R T Æ K I E V R Ó P U Í S E P T E M B E R 1 9 8 5 Fyrirtæki Land Virði* 1. Royal Dutch Shell Holland 17 2. Daimler Benz Þýskaland 12 3. Siemens Þýskaland 11 4. Allianz Þýskaland 7 5. Deutsche Bank Þýskaland 7 6. SchweizBankgesell Sviss 5 7. Assicurazioni Generali Ítalía 4 8. Bayer Þýskaland 4 9. BASF Þýskaland 4 10.Hoechst Þýskaland 4 * Markaðsvirði í milljörðum evra Heimild: Fidelity/Financial Times Nú er tími bónusgreiðslanna í bandaríska fjármálageiranum sem í öðrum geirum. Bónustímabilið í ár virðist ætla að verða það stærsta í fimm ár ef marka má frétt New York Magazine. Starfsmenn sumra fyrirtækja eiga þó von á talsvert stærri summum en aðrir. Á Wall Street er pening- unum ekki skipt bróðurlega frekar en annars staðar en væri það svo fengi hver starfsmaður Goldman Sachs 500 þúsund bandaríkjadollara jólabónus. Það er hvorki meira né minna en tæpar 32 milljónir íslenskra króna. Ætla má að flestir starfsmannanna fái þó töluvert lægri upphæð en það í sinn vasa en þó er líklegt að þeir muni hafa efni á jólagjöfunum í ár. - hhs Kökunum skipt Únsan af gulli rauf í gær fimm hundruð dala múrinn í fyrsta skipti síðan í desember árið 1987. Paul Merrick, sérfræðingur í hrávöru- og gjaldeyrissamning- um hjá RBC Capital, býst ekki við miklum hækkunum á gull- verði á næsta ári. Hann segir í samtali við Financial Times að japanskir kaupendur hafi verið áberandi að undanförnu og vilji frekar setja peningana sína í „ör- uggt skjól“ en að fjárfesta í verð- bréfum og gjaldmiðlum. Gull á þá enn nokkuð í land með að ná því verði sem það var í árið 1980 en þá fór únsan í 800 dali - eþa Gull rýfur 500 dala múrinn 06_07_Markadur-lesin 29.11.2005 14:08 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.