Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 12
12 30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
REYKJAVÍK: Kringlan – Smáralind – Bankastræti 5 – Faxafen 12 GARÐABÆR: Miðhraun 11 – AKUREYRI: Glerárgata 32
BRETLAND Breska blaðið Daily
Mail greindi frá því í vikunni að
á Bretlandi sé talið að árlega lifi
um fimmtíu fóstur af þegar reynt
er að eyða þeim. Sum eru sögð lifa
jafnvel fleiri en eina aðgerð.
Um er að ræða fóstureyðingar
sem gerðar eru þegar meira en
fimm mánuðir eru liðnir af með-
göngunni. Hingað til hefur verið
talið að aðeins um einstök tilfelli
á ári hverju hafi verið að ræða
en þessar tölur gefa til kynna að
vandamálið sé mun útbreiddara.
Líklegt er að umræðan um
fóstureyðingar nái nýjum hæðum
með þessum fréttum enda eru
þær umdeildar. ■
Deilt um fóstureyðingar:
Fóstrin sögð
lifa aðgerðina
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli leigu-
bílstjóra, sem ráðist var á og hann
skorinn á háls aðfaranótt þriðju-
dagsins 27. júlí í fyrra, hófst í
gærmorgun með vettvangskönnun
í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem
árásin átti sér stað.
Maðurinn sem sakaður er um
árásina var sýknaður í Héraðsdómi
Reykjavíkur í lok febrúar á þessu
ári, en í byrjun október ógilti Hæsti-
réttur þann dóm og vísaði málinu á
ný heim í hérað til aðalmeðferðar og
dómsálagningar. Taldi Hæstiréttur
ekki annmarka á rannsókn lögreglu
í málinu, líkt og Héraðsdómur auk
þess sem dómurinn hefði átt að
kanna frekar ákveðna þætti sem
fram komu í málinu. Í leigubílnum
voru fjórir menn og átti túrinn að
kosta tæpar 2.000 krónur.
Ásgeir Elíasson, leigubílstjórinn
sem fyrir árásinni varð, fagnaði þá
ákvörðun Hæstaréttar og kvaðst
hafa fengið endurnýjaða trú á rétt-
arkerfið. Hann segist enn vera að
fóta sig eftir árásina, en slapp þó
ótrúlega vel. Skurðurinn sem hann
fékk í árásinni var sextán sentí-
metra langur og sauma þurfti í
hann 56 spor.
Mennirnir sem voru í leigubíln-
um eru allir fæddir á árunum 1947
til 1956, hafa komið við sögu lög-
reglu og voru undir áhrifum vímu-
efna. - óká
Mál leigubílstjóra sem skorinn var á háls í Vesturbænum aftur fyrir dómi:
Endurnýjuð trú á réttarkerfið
HNÍFUR Vopnið sem notað var við árásina
á leigubílstjórann kom ekki fram við rann-
sókn lögreglu á málinu.
JARÐSKJÁLFTI VIÐ PERSAFLÓA Leitað er að
heillegum hlutum í rústum húsa í þorpinu
Zirang eftir að 5,9 stiga jarðskjálfti skók
írönsku eyjuna Qeshm í Persaflóa. Tíu
létust og sjötíu slösuðust.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VARNARLIÐIÐ Fulltrúar banda-
ríska hersins og herspítalans á
Keflavíkurflugvelli hafa frá því í
sumar margsinnis komið að máli
við ráðamenn Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja til að kynna sér
aðstöðu og kanna hvaða heilbrigð-
isþjónustu mætti kaupa af henni.
Þetta segir Sigríður Snæ-
björnsdóttir, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að viðræður stæðu yfir milli
fulltrúa varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli annars vegar og Land-
spítala - háskólasjúkrahúss hins
vegar um að spítalinn taki að sér
aukna sjúkraþjónustu fyrir varn-
arliðsmenn þar sem leggja eigi
herspítalann á Vellinum niður
sem slíkan.
„Ástæðan fyrir því að þeir eru
að leita eftir þjónustu er fyrst og
fremst sú að þegar flugherinn
tekur við af sjóhernum á næsta
ári mun sjúkrahús þeirra loka því
að bandaríski flugherinn rekur
almennt ekki sjúkrahús í Evrópu,“
segir Sigríður. „Heilsugæsla mun
áfram verða veitt á Vellinum. Á
undanförnum vikum hafa sér-
fræðingar varnarliðsins komið
hingað á HSS og hitt lækna og
annað starfsfólk til að kynna sér
starfsemina. Þeir hafa lagt fram
beiðni um að HSS veiti meðal
annars alla lyflæknisþjónustu,
almenna skurðlæknisþjónustu,
kvensjúkdómaþjónustu, almenna
bráðaþjónustu og veiti ráðgjöf
í lyflækningum og barnalækn-
ingum. En þar sem HSS býður
ekki upp á fullkomnar vaktir á
skurðstofu alla daga ársins vildu
þeir ekki að fæðingaþjónustu yrði
beint til okkar. Nú á fimmtudag-
inn er von á yfirlækni ameríska
flughersins í Evrópu ásamt fleiri
fulltrúum hersins til að skoða
aðstöðu og hitta starfsfólk á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.“ - jss
Framkvæmdastjóri Heilbrigðistofnunar Suðurnesja:
Herinn vill kaupa þjónustu
VARNARLIÐIÐ Vill kaupa heilbrigðisþjón-
ustu af Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
DÓMSMÁL Karlmaður um þrítugt
var dæmdur í fimm mánaða fang-
elsi fyrir fíkniefnasmygl í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær.
Maðurinn faldi innvortis 140
grömm af efni sem hann taldi
vera kókaín og var gripinn með
það í Leifsstöð í nóvember í
fyrra við komuna til landsins frá
Amsterdam í Hollandi.
Maðurinn játaði innflutning-
inn greiðlega, en við greiningu
efnanna kom í ljós að einungis 60
grömm voru kókaín en 80 grömm
reyndust vera staðdeyfilyf. Var
hann því svikinn af seljendum
efnisins ytra.
Málið sótti, fyrir hönd sýslu-
mannsins á Keflavíkurflugvelli,
Eyjólfur Ágúst Kristjánsson,
en málið dæmdi Guðmundur L.
Jóhannesson héraðsdómari.
- óká
Fékk fimm mánaða fangelsi:
Kókaínsmyglari
svikinn
JERÚSALEM, AP Talið er nánast
öruggt að Shimon Peres, fyrr-
verandi leiðtogi ísraelska Verka-
mannaflokksins, muni tilkynna í
dag að hann hyggist ganga til liðs
við nýstofnaðan flokk Ariels Shar-
ons forsætisráðherra.
Peres kvaðst
myndu skýra
frá ákvörðun
sinni í kvöld
þegar frétta-
menn ræddu við
hann í Barce-
lona í gær. Hann
fór svo hlýjum
orðum um Sharon og sagði sókn-
arfæri stjórnmálanna liggja þar.
Sögusagnirnar fengu byr undir
báða vængi í gær þegar Dalia
Itzik, einn nánasti samstarfsmað-
ur Peres, yfirgaf Verkamanna-
flokkinn. ■
Shimon Peres:
Sagður ætla í
flokk Sharons
SHIMON PERES