Fréttablaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 45
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 17
S K O Ð U N
Greining Íslandsbaka sendi frá sér
nýtt rit um verðbólguhorfur. „Stig-
vaxandi þensla í hagkerfinu und-
anfarin misseri myndar nú þrýst-
ing á verðlag og mun reynast einn
helsti drifkraftur verðbólgu á
næsta ári. Mörg teikn eru nú um
að spenna fari vaxandi í íslensku
efnahagslífi. Einn mælikvarði á
stöðu efnahagslífsins er fram-
leiðslubilið, sem mælir frávik í
framleiðslu hagkerfisins frá því
framleiðslumagni sem endur-
speglar þjóðhagslegt jafnvægi.“
„Framleiðslubil hefur tvíþætt
gildi sem kvarði á umsvif efna-
hagslífsins. Annars vegar gefur
framleiðsluslaki til kynna þá
möguleika til vaxtar sem fyrir
hendi eru til skamms tíma, án þess
að þjóðhagslegu jafnvægi væri
raskað. Hins vegar gefur spenna
eða slaki í framleiðslu mikilvægar
vísbendingar um væntanlega þró-
un launa og verðlags. Spenna í
framleiðslu er þannig gjarnan
ávísun á hraðari hækkanir í þess-
um stærðum í náinni framtíð, en
slaki bendir til þess að launakröfur
verði minni og verðlag stöðugra.“
„Mat okkar bendir til þess að
framleiðsluspenna hafi farið vax-
andi síðustu misseri eftir þann
slaka sem fyrir hendi var 2002-
2003. Ekki eru horfur á að dragi úr
spennunni fyrir en 2007, en þá
eykst framleiðslugeta í stóriðju
töluvert ásamt því að eftirspurn
minnkar samkvæmt þjóðhagsspá
okkar.
Sterkt samband er gjarnan talið
ríkja milli framleiðsluspennu og
verðbólguþróunar, og gefur mat á
því sambandi fyrir Ísland til
kynna að 1% framleiðsluspenna
yfir 12 mánaða tímabil, mæld í
hlutfalli við jafnvægisframleiðslu-
getu, auki verðbólgu um 0,8 pró-
sentustig frá því sem ella væri. Ef
þetta samband er nýtt með spá
okkar um þróun hagvaxtar, ásamt
forsendum um gengisþróun, í ein-
falt líkan til að spá fyrir um verð-
bólguþróun næstu ár fæst spá sem
er keimlík hinni eiginlegu verð-
bólguspá okkar. Í síðarnefndu
spánni er hins vegar fyrst og
fremst stuðst við mat á launaþró-
un sem kvarða á innlendan verð-
bólguþrýsting þegar til lengri tíma
er litið. Verðbólga á næsta ári
verður þannig að miklu leyti af
völdum þenslu í hagkerfinu, en
árið 2007 knýja gengisbreytingar
verðbólgu,“ segir Greining Ís-
landsbanka.
Framleiðsluspenna fer áfram vaxandi
!"#$%&
%&'
(
&)**+&,
& )- . -
"
/$0123&2 -4
35
67 89:1
; 9 <<=9>>>
!
1
?
;
(@
A7 @
@
?7?
@?B2 &C &$D-
-
"
#
Flottur í
bankanum
Vikan var dáldið skrýtin fannst
mér að minnsta kosti. Ég hélt að
bankaheimurinn væri að farast
þegar ég opnaði Moggann á
fimmtudaginn. Fullyrt var að verð-
bréf bankanna hefðu lækkað. Ég
hélt reyndar ró minni enda hafði ég
séð hvernig hlutabréfin stóðu þeg-
ar markaðir lokuðu daginn áður.
Svo áttaði ég mig á því að þetta var
allt út af nokkurra punkta hækkun
á skuldabréfum þeirra á eftir-
markaði. Ég þekki engan Íslending
sem sú breyting hafði áhrif á.
Annars sýndist mér fréttin vera
að greiningardeild Royal Bank of
Scotland hefði hlaupið á sig. Ftich
var nýbúið að gefa Íslandsbanka og
KB banka fína einkunn og einhver
eftirskjálfti þegar einhverjir sjóðir
taka til hjá sér er ekkert til að hafa
stórar áhyggjur af.
Það kom líka á daginn að maður-
inn sem tók sparifé út af bundinni
bók í KB banka um árið hafði eng-
ar áhyggjur. Davíð kom fram í
nýju hlutverki og bað menn að róa
sig. Flott hjá honum. Ég held að
hann verði flottur í bankanum ef
hann heldur svona áfram.
Ég heyri líka að hann sé allur
annar maður. Hann er farinn að
tala við Fréttablaðið og svo fréttist
af honum í „lunch“ með KB strák-
unum að ræða stöðuna. Mér skilst
að það hafi farið vel á með þeim.
Ég bíð líka spenntur eftir því
hvernig hann kynnir vaxtaákvörð-
un Seðlabankans og Peningamál á
föstudaginn. Ákvörðunin hlýtur að
markast af því hvað Seðlabanki
Evrópu gerir. Ef evrópski Seðla-
bankinn hækkar vexti, þá hefur
það náttúrulega áhrif á íslensk fyr-
irtæki sem skulda mikið í útlönd-
um. Það minnkar þörf fyrir hækk-
un hér.
Hvað sem gerist býst ég frekar
við að krónan styrkist í kjölfarið.
Það eru margir að bíða með útgáfu
skuldabréfa í krónum þangað til
vaxtalínurnar skýrast. Halldór er
búinn að segja að það þurfi ekki að
hækka vexti. Það þýðir að til að
taka af tvímæli um sjálfstæðið má
Seðlabankinn ekki láta hann hafa
rétt fyrir sér svo hækkunin verður
örugglega einhver. Sennilega er
bara sniðugt að skella sér í eitt er-
lent lán fyrri föstudaginn og taka
einhverja góða stöðu. Það eru alltaf
tækifæri á markaði ef maður kann
til verka.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Mat okkar bendir til þess að framleiðsluspenna hafi
farið vaxandi síðustu misseri eftir þann slaka sem
fyrir hendi var 2002-2003. Ekki eru horfur á að dragi
úr spennunni fyrr en 2007, en þá eykst framleiðslu-
geta í stóriðju töluvert ásamt því að eftirspurn
minnkar samkvæmt þjóðhagsspá okkar.
16-17 Markadur- lesin 29.11.2005 14:33 Page 3