Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 16
30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR16
fréttir og fróðleikur
Herforingjastjórnin í Mjanmar tilkynnti í fyrra-
dag að stofufangelsisvist friðarverðlaunahafans
Aung San Suu Kyi yrði framlengd um óákveðinn
tíma en talið er að í það minnsta eitt ár líði
þar til Suu Kyi fái frelsi sitt á ný. Þessi sextuga
kona hefur eytt tíu af síðustu sextán árum í
einangrun.
Hvers vegna var hún hneppt í varðhald?
Árið 1988 hrifsaði her landsins til sín völdin
eftir mikla ólgu í samfélaginu og í kjölfar-
ið stofnaði Suu Kyi ásamt félögum sínum
svonefnda Lýðræðisfylkingu. Skömmu síðar
var hún hneppt í varðhald en það kom ekki í
veg fyrir að flokkur hennar vann yfirburðasigur
í kosningunum árið 1990. Herforingjastjórnin
ógilti hins vegar kosningaúrslitin.
Þessi gerningur, svo og varðhaldið yfir Suu
Kyi, vakti reiði bæði innan og utan Mjanmar
og athyglin sem málið fékk gerði sitt til að hún fékk
friðarverðlaun Nóbels árið 1991. Sú upphefð varð þó
ekki til að bæta hag Suu Kyi því hún sat í stofufangelsi til
ársins 1995 og frá árinu 2000 hefur hún lítið sem ekkert
frelsi haft.
Hverja fær hún að hitta?
Nánast engan. Eiginmaður hennar lést í Lundúnum
árið 1999 en hvorki hann fékk fararleyfi til Mjanmar né
Suu Kyi brottfararleyfi. Börn þeirra búa í Englandi og
hafa ekki séð móður sína í mörg ár. Félagar hennar í
Lýðræðisfylkingunni hittu hana síðast í maí á síðasta ári
en síðan þá hefur hún engan hitt nema eldabusku sína
og dóttur hennar.
Segir enginn neitt?
Bandarísk stjórnvöld gagnrýndu ákvörðun herforingja-
stjórnarinnar í fyrradag, svo og Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri SÞ og Amnesty International auk fjölda annarra.
FBL-GREINING: AUNG SAN SUU KYI
Friðardúfan sem foringjarnir óttast
> Meðalhiti í desember 2004
á nokkrum stöðum.
Svona erum við
0,
7°
Dalatangi
AkureyriReykjavík
H
iti
á
C
el
sí
us
Stykkis-
hólmur 0,
9°
Kirkjubæjar-
klaustur
-0
,8
°
-0
,2
°
-1
,5
°
Reiknað er með að í dag fari
fram eitt þúsundasta aftak-
an í Bandaríkjunum frá því
þær voru aftur teknar upp
þar eftir tíu ára hlé árið
1977.
„Drífum í þessu.“ Með þessum
hinztu orðum (á frummálinu: „Let‘s
do it“) dæmda morðingjans Gary
Gilmore hófst nýtt skeið í réttar-
farssögu Bandaríkjanna; nýtt skeið
dauðarefsinga. Bandaríkjamenn
fylgdust með af áhuga er Gilmore
var leiddur fyrir aftökusveit í
Utah fyrir 28 árum. Gilmore hlaut
reyndar fádæma frægð, um hann
voru samin rokklög og sjónvarps-
þættir. Norman Mailer skrifaði
skáldsöguna „Söngur böðulsins“
á grundvelli ævihlaups Gilmores,
en sjónvarpsþáttasería var gerð
eftir bókinni árið 1982 sem síðar
var gefin út sem bíómynd.
Nú þykja aftökur hins vegar
svo hversdagslegar fréttir vestra
að það eru fáir sem kannast við
nafn eins einasta af þeim 3.400
föngum sem bíða aftöku í banda-
rískum fangelsum. Af þessum
3.400 dauðadæmdu föngum eru
118 erlendir ríkisborgarar.
Robin Lovitt heitir sá fangi sem
væntanlega mun njóta þess vafa-
sama heiðurs að vera þúsundasti
maðurinn sem tekinn er af lífi frá
því ákveðið var í flestum ríkjum
Bandaríkjanna árið 1976 að taka
upp dauðarefsingar á ný. Það var
gert í kjölfar dóms Hæstarétt-
ar Bandaríkjanna sem staðfesti
gildi laga sem kváðu á um þar að
lútandi breytingu á ákvæðum um
þyngstu refsingu í bandaríska
réttarkerfinu.
Lovitt var dæmdur fyrir að
stinga mann til bana með skærum
í leikjasalarráni í Virginíuríki árið
1998. DNA-próf á sýni af morð-
vopninu leiddi ekki til ótvíræðrar
niðurstöðu og í millitíðinni hefur
skærunum verið hent, að sögn
vegna skorts á geymsluplássi. Í
október síðastliðnum vísaði Hæsti-
réttur því á bug að málið skyldi
tekið upp aftur. Einn verjenda
Lovitts, Kenneth Starr – sá sem fór
fyrir sakarannsókninni á hendur
Bill Clinton þáverandi Bandaríkja-
forseta – tjáði AP að þótt hann sty-
ddi almennt dauðarefsingar ætti
hún að hans mati ekki við í máli
Lovitts. Fyrir því væru ýmsar
ástæður að sögn Starrs, en þyng-
st vægi að búið væri að eyða eina
DNA-sönnunargagninu.
Aftökur á tíu daga fresti
Ólíkt máli Lovitts var mál Gil-
mores á allra vörum á sínum tíma
og var um það fjallað í helztu fjöl-
miðlum heims.
Á þeim 28 árum sem liðin eru
frá fullnægingu dauðadómsins
yfir Gilmore hafa aftökur farið
fram vestra á tíu daga fresti að
meðaltali. Nokkur ríki Bandaríkj-
anna – einkum og sér í lagi Texas,
Virginía og Oklahoma – hafa
skapað sér orðstír fyrir skilvirkni
við framfylgd dauðadóma. Í tólf
af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna
eru dauðarefsingar ekki við lýði.
Næstir á undan Lovitt til að
vera teknir af lífi voru Eric Nance
á mánudag, en hún fór fram í Ark-
ansas, og John Hicks, sem fékk
banvæna sprautu í fangelsi í Ohio
í gær.
Á síðustu þremur áratugum
hafa alls 122 dauðadæmdir fangar
fengið dóminn mildaðan eða verið
sýknaðir. Langflest þessara mála
hafa komið upp á síðustu 15 árum,
eða eftir að DNA-prófanir urðu
útbreiddar. Þessi staðreynd hefur
ýtt undir efasemdir um réttlæti
dauðarefsingakerfisins.
Umræðan um dauðarefsingar
vestra snerist áður fyrr að mestu
um fælingarmátt þeirra, það er,
hvort þær fældu menn frá því
að fremja glæpi sem slík refsing
lægi við. Nú snýst umræðan fyrst
og fremst um það hvort yfirvöld-
um sé treystandi til að ganga úr
skugga um að þau taki ekki af lífi
saklausan mann.
„Í réttarkerfi okkar eru gerð
mistök. Viðurkenni maður þetta
þýðir það að maður verði að vera
búinn undir að það komi óhjá-
kvæmilega til þess að einhverjir
séu dæmdir til dauða fyrir glæpi
sem þeir frömdu ekki,“ hefur
AP eftir Thomas Hill, lögmanni
í Washington D.C. sem er verj-
andi dauðadæmds manns í Ohio.
„Munurinn á dauðarefsingu og
ævilöngu fangelsi er að sannist
síðar að réttarmorð hafi átt sér
stað er hægt að bæta úr mistök-
unum að hluta með því að láta
fangann lausan,“ segir Hill.
En fylgjendur dauðarefsingar
segja að andstæðingar þeirra séu
ríkt, frjálslynt menntafólk sem
láti hin raunverulegu fórnarlömb
liggja óbætt hjá garði með því að
beina sjónum svo mjög að þeim
dauðadæmdu.
„Frá því árið 1999 hafa 100.000
saklausir borgarar verið myrt-
ir í Bandaríkjunum, en enginn
sinnir því að minnast þeirra,“
hefur AP eftir Michael Paranzino,
framkvæmdastjóra samtakanna
Throw Away the Key sem styðja
dauðarefsingar.
Öruggur meirihluti styður
dauðarefsingar
Samkvæmt niðurstöðum Gallup-
könnunar sem gerð var vestra í
október hefur stuðningur meðal
Bandaríkjamanna við dauðarefs-
ingar ekki mælzt minni í 27 ár. En
það er samt yfirgnæfandi meiri-
hluti sem styður þær. 64 prósent
aðspurðra segjast nú styðja þær.
Þúsundasta aftakan hefur orðið
tilefni nýrra umræðna í Banda-
ríkjunum um rökin með og á móti
dauðarefsingum. Í tveimur ríkjum
– Illinois og New Jersey – er í gildi
tímabundin frestun á fullnægingu
allra dauðadóma, og stjórnskipað-
ar nefndir í Kaliforníu og Norð-
ur-Karolínu eru að skoða fram-
kvæmdina í þessum ríkjum, að því
er Upplýsingamiðstöð um dauða-
refsingar, félagasamtök með höf-
uðstöðvar í Washington, upplýsir.
Þegar nánar er að gáð kemur í
ljós að um helmingi færri dauða-
dómar eru nú kveðnir upp árlega
vestra en á meðalári á tíunda ára-
tugnum. Aftökum hefur fækkað um
40 af hundraði frá því árið 1999. En
áhrifamiklir aðilar þrýsta nú á að
ferlinu við uppkvaðningu og full-
nægingu dauðadóma verði hraðað.
Í báðum deildum Bandaríkjaþings
eru lagafrumvörp til skoðunar
sem myndu draga úr möguleik-
um dauðadóms-sakborninga til að
áfrýja til alríkisdómstóla.
Formælendur frumvarpanna
segja að slíkar áfrýjanir tefji
fullnægingu dauðadóma um allt
að 15 ár. Andmælendur – þar á
meðal bandaríska lögmannafélag-
ið – segja að verði þetta að lögum
geti alríkisdómstólar ekki fjallað
um flest slík mál og réttarmorðum
óhjákvæmilega fjölgi.
Þúsundasta aftakan vekur
umræður í Bandaríkjunum
DAUÐAREFSINGUM MÓTMÆLT Andstæðingar dauðarefsinga mótmæla í Connecticut í lok maí í vor, þegar fyrsta aftakan í því ríki í 40 ár stóð
fyrir dyrum. Langflestir Bandaríkjamenn styðja dauðarefsingar. NORDICPHOTOS/AFP
JOHN HICKS Tekinn
af lífi í Arkansas
í gær, sá 999. í
Bandaríkjunum frá
árinu 1977. MYND/AP
ROBIN LOVITT
Áformuð aftaka
hans í Ohio í dag er
sú 1000. síðan þær
hófust á ný vestra.
MYND/AP
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mikil rykmengun hefur
mælst í Reykjavík
undanfarna daga með
tilheyrandi svifryki.
Lúðvík Gústafsson,
hjá mengunarsviði
Umhverfissviðs Reykja-
víkurborgar, segir
mengun ekki oft fara
yfir hættumörk.
Hvaða efni eru í svif-
ryki? Fyrst og fremst
er það uppspænt malbik, steinar, tjara
og grjót sem er notað í malbiksgerð.
Einnig er í rykinu jarðvegsagnir og salt.
Hefur mengunin oft farið yfir
hættumörk? Nei, það hefur ekki oft
gerst. Samkvæmt reglugerð má styrkur
svifryks vera yfir umhverfismörkum allt
að 35 daga á ári. Ársgildin hafa verið
rétt undir þeirri tölu.
Er hættulegt að ganga meðfram
helstu umferðaræðum borgarinnar
þegar mengunin er mikil? Það er
ekki gott að anda svona ryki að sér,
sérstaklega ef menn eru að hjóla eða
skokka, og anda þar af leiðandi hraðar.
Fyrir fullfríska einstaklinga er það
óhætt í eitt til tvö skipti, en börn og
fólk sem er veikt fyrir í öndunarfærum
ætti ekki að ganga nálægt götunum.
SPURT & SVARAÐ
SVIFRYK
Ekki bráð-
drepandi
LÚÐVÍK
GÚSTAFSSON
Umhverfissviði
Reykjavíkur-
borgar.