Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 22

Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 22
[ ] �������������������������������� ���������������������������������������������������������� ������������������������������������������������������������ ��������������������������������������� �������������������������������������������� ��������������� ��������������������������������� ������������������� ��������������� ������������������ ��������������� ����������������������������� Upplýsingaþjónusta Vegagerðarinnar opin alla daga kl. 07:00 – 22:00 í vetur Færð og veður Textavarp síður 470–490 Talvél sími 1779 Engin gjöld eru tekin fyrir að leita upplýsinga hjá Vegagerðinni 1777 www.vegagerd in . i s Hin rómaða áramótaferð Útivistar í undraveröldinni Básum. Njótið áramótanna á ógleymanlegan hátt í heimkynnum huldufólksins. Brottför frá BSÍ kl.8 föstudaginn 30. desember. Aðventu- og áramótaferðir hafa yfir sér sérstakan sjarma. Hópferðir í fjallaskála í skamm- deginu eiga miklum vinsældum að fagna og nú er sá tími runninn upp. Um síðustu helgi efndi Úti- vist til árlegrar fjölskylduferðar í Bása sem er ævintýraheimur á þessum tíma árs og um næstu helgi, 3. til 4. desember, er önnur aðventuferð á döfinni hjá Úti- vist. Það er jeppaferð í Bása og lagt af stað í hana kl. 10 á laug- ardeginum frá Hvolsvelli. Dag- skráin snýst um léttar göngur, góða stemningu og kvöldvöku. Fararstjórar í þeirri ferð eru Guðrún Inga Bjarnadóttir og Guðmundur Eiríksson. Ferðafélagið er að undir- búa áramótaferð í Þórsmörk og ætlar þar með að endurvekja gamlan og góðan sið. Um er að ræða þriggja daga ferð þar sem lagt verður af stað frá Mörkinni 6 föstudaginn 30. desember kl. 10 og komið til baka á nýárs- dag um kl. 18. Á dagskránni eru meðal annars gönguferðir, gönguskíðaferðir, jakahlaup á Krossá, stjörnuskoðun, grýlu- kertatínsla og snjóhúsagerð. Auk þess verður spilað, bæði á hin ýmsu spil og á gítar, haldnar kvöldvökur, grillað, kveikt í áramótabrennu og flugeldum fírað upp. Farið verður á stórum breyttum fjallajeppum og farar- stjóri verður Páll Guðmundsson. Frestur til að skrá sig í ferðina er til 10. desember. ■ Léttar göngur og góð stemning í óbyggðum Það er góð tilbreyting að gista í fjallaskála í skammdeginu. Verslunarferðir til annarra landa hafa alltaf verið vinsælar hjá Íslendingum. Það getur verið sniðugt að skreppa í helgarferð til útlanda og gera góð kaup fyrir jólin og upplifa annars konar menningu í leiðinni. Vel yfir þrjú þúsund Íslending- ar munu eyða jólunum sínum á heitum ströndum Kanaríeyja á vegum íslenskra ferðaskrif- stofa. Staðurinn er einstaklega vinsæll á meðal fjölskyldufólks. Það verður ekki annað sagt um hina ágætu íslensku þjóð en að hún er með eindæmum ferðaglöð. Gömul tugga reyndar en verður aldrei of oft kveðin. Þessi ferða- gleði virðist líka vera að aukast með hverju árinu sem líður. Þó svo að fleiri fyrirtæki hafi verið að koma inn á ferðamarkaðinn eru allar ferðaskrifstofurnar sammála um að aldrei fyrr hafi verið eins mikil eftirspurn. Jólaferðir til suð- lægra slóða hafa um nokkurn tíma verið mjög vinsælar hjá köldum Íslendingum. Slíkar ferðir hafa þó notið vaxandi vinsælda und- anfarin ár, sérstaklega á meðal fjölskyldufólks. Hjá Apollo, sem stofnaði útibú sitt hér fyrir ekki svo löngu síðan, fengust þau svör að yfir hundrað manns yrðu á vegum fyrirtækisins erlendis yfir jólin, flestir á Taí- landi, Egyptalandi og síðan að sjálfsögðu á vinsælasta áfangastað Íslendinga um jólin, Kanaríeyj- um. Langflestir Íslendingar sem hyggja á einhvers konar sólarferð- ir í jólamánuðinum fara þangað. Þannig fara 600-800 Íslendingar á vegum Heimsferða þangað, um 100 á vegum Sumarferða og um 800 Íslendingar fara á vegum Úrval Útsýnar til Kanaríeyja og verða þar yfir jólin. Þessar tölur eru einungis yfir þá Íslendinga sem verða á Kanaríeyjum yfir hájólin en margir koma einnig um áramótin. Svo virðist sem aðrir sólþyrst- ir Íslendingar sem ekki kjósa að fylgja hjörðinni til Kanaríeyja velji samt sem áður Spán sem áfangastað sinn, því næstflestir fara til Alicante eða Benidorm á Spáni yfir jólin. Auk sólskinsferða fara fjöl- margir Íslendingar í margs konar ferðir um jólin. Sumir fara á skíði og fjölmargir halda á fram- andi slóðir í Asíu. Auk þess halda fjölmargir í borgarferðir og í heimsóknir til ættingja erlendis. Helsta ástæða þessa ferða- brjálæðis landans telja flestar ferðaskrifstofurnar vera mikla verðlækkun á ferðum. Úrvalið er líka að aukast mikið og á eftir að aukast mun meira. Það er því útlit fyrir að þessir stóru þætt- ir, verð og úrval, eigi eftir að batna til muna, til hagsbóta fyrir ferðaþyrsta Íslendinga. ■ Fjölskyldur leita í sólina um jólin Kanaríeyjar eru langvinsælasti áfangastaður þeirra sem kaupa sér pakkaferðir yfir jólin. Það er fyrirhyggju langafa Gunnlaugs Jónassonar að þakka að Gistihúsið Egilsstað- ir var byggt fyrir rúmum hund- rað árum. „Langafi minn, Jón Bergsson, er sagður hafa sagt, „Hér verða vegamót,“ segir Gunnlaugur Jónasson, en hann og kona hans, Hulda Daníelsdóttir, eiga og reka Gistihúsið Egilsstaði. Langafi Gunnlaugs var varað- ur við miklum gestagangi þegar hann keypti jörðina rétt fyrir þarsíðustu aldamót en hann lét það ekki á sig fá og byggði stórt hús í skandinavískum herra- garðsstíl. Gunnlaugur og kona hans vinna sífellt að endurbótum á húsinu, sem er á fjórum hæðum og hefur ásamt átján herbergjum afar góða fundaaðstöðu. Jafn- framt er veitingastaður rekinn þar á sumrin. Hægt er að panta mat fyrirfram fyrir hópa á veturna. ■ Hér verða vegamót Gunnlaugur Jónasson og Hulda Daníelsdóttir eigendur Gistihússins Egilsstaða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.