Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 30
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Engin ákvörðun hefur verið tekin
innan stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur um hvort fyrirtæk-
ið selji hlutabréf sín í Jarðborun-
um en Fjárfestingafélagið At-
orka hyggst leggja fram yfir-
tökutilboð í Jarðboranir í desem-
ber. Orkuveitan er næststærsti
hluthafinn í Jarðborunum með
þrettán prósenta hlut.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar, segir
að það sé ekki eins brýnt fyrir fé-
lagið að vera eigandi í fyrirtækj-
um og áður. „Það hefur verið
rætt í nokkurn tíma innan Orku-
veitunnar um að selja hlutinn en
ekki verið tekin ákvörðun með
formlegum hætti hvernig það
gerist.“
Selji Orkuveitan hlut sinn til
Atorku má telja frekar líklegt að
Atorka nái 90 prósentum hluta-
fjár og geti farið fram á innlausn
annarra hluta. Tuttugu stærstu
hluthafarnir í Jarðborunum fara
með um 89 prósent hlutafjár, þar
af eiga tveir stærstu hluthafarnir
um 70 prósent.
Greiningardeild KB banka tel-
ur að kauptilboð frá Atorku verði
of lágt og hvetur hluthafa til að
ganga ekki að því. Greiningar-
deildin kemst að þeirri niður-
stöðu í nýju verðmati á Jarðbor-
unum að markaðsvirði þess ætti
að vera 2,3 milljörðum meira en
það er í raun og veru. Verðmats-
gengið ætti að vera 31,1 króna á
hvern hlut en tilboð Atorku mun
sennilega miðast við gengið 25
krónur á hlut. Atorka mun greiða
fyrir bréfin með eigin bréfum á
genginu sex sem greiningar-
deildinni finnst vera léleg skipti.
Miðað við forsendur KB
banka er hlutur Orkuveitunnar
um 300 milljónum króna verð-
mætari en tilboð Atorku hljóðar
upp á.
Gylfi Héðinsson, annar eig-
anda Byggingafélags Gylfa og
Gunnars (BYGG), segir að ekki
hafi verið tekin afstaða til hugs-
anlegs tilboðs frá Atorku og það
verði ekki gert fyrr en það liggi
fyrir. BYGG á um fjögurra pró-
senta hlut í Jarðborunum. Þar
að auki er Saxbygg, sem sam-
anstendur af BYGG og Saxhóli,
með eins prósents hlut.
Vika Frá áramótum
Actavis Group 3% 23%
Bakkavör Group 3% 96%
Flaga Group -6% -17%
FL Group 4% 58%
Grandi 2% 18%
Íslandsbanki -1% 45%
Jarðboranir 4% 21%
Kaupþing Bank 0% 45%
Kögun 7% 26%
Landsbankinn -2% 93%
Marel 0% 30%
SÍF 1% -14%
Straumur 0% 60%
Össur 3% 46%
*Miðað við gengi í Kauphöll í gær
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Veltur á næststærsta
hluthafanum
Orkuveitan kann að ráða úrslitum um hvort Atorka nái að
taka Jarðboranir yfir. KB banki ræður hluthöfum eindregið
frá því að taka tilboðinu.
Netverslun hefur auk-
ist mjög hér á landi á
árinu en Viktor Ólason,
framkvæmdastjór i
Netleiða, segir að
dæmi séu um að þau
fyrirtæki sem bjóða
vörur til sölu á Netinu
hafi meira en þrefald-
að veltu sína á árinu.
Þjóðverjar og Danir
hafa nýverið birt nið-
urstöður um netversl-
un í landinu þar sem
fram kemur að hún
hefur vaxið hraðar en
nokkru sinni fyrr.
„Það eru ekki til
nein nákvæm mæli-
tæki yfir þetta hér í
heild sinni en ég veit
að margir viðskipta-
vinir okkar á Netleið-
um hafa margfaldað
tekjur sínar. Dæmi
um vörur sem seljast
vel á Netinu eru get-
raunir, utanlands-
ferðir, bækur og raf-
magnstæki og það
er ekkert sem bend-
ir til annars en þetta
muni stóraukast,“
segir Viktor. - hb
Hærri
lánshæfis-
einkunn
Alþjóðlega Matsfyrirtækið Fitch
hefur hækkað einkunn Lands-
bankans fyrir fjárhagslegan
styrk úr C í B/C. Landsbankinn er
því kominn með sömu einkunn og
KB banki og Íslandsbanki í fjár-
hagslegum styrk
Íslensku bankarnir fá allir
langtímaeinkunnina A og
skammtíma einkunnina F1 og
stuðningseinkunn 2. Mat Fitch er
að horfur séu stöðugar.
Að sögn Fitch endurspeglar
hækkun lánshæfimatsins mikinn
vöxt, góða arðsemi og sterka eig-
infjárstöðu sem og aukna fjöl-
breytni í tekjustofnum í kjölfar
kaupa á minni erlendum fyrir-
tækjum. Lánshæfimatseinkunn-
irnar taka einnig tillit til stöðu-
töku bankans í íslenskum hluta-
bréfum og möguleika á auknu
flökti í sumum tekjustofnum. -hh
Netverslun þrefaldast
Bjartsýni neytenda óx í nóvem-
ber samkvæmt væntingarvísi-
tölu Gallup.
Neytendur voru svartsýnastir
í október það sem af er
ári, en tóku gleði sína á
ný í nóvember. Vísi-
talan mældist 122,7
stig og er það hæsta
gildi sem mælst
hefur í nóvember-
mánuði.
Væntingavísitalan
er samsett úr mati á
mismunandi þáttum.
Það sem drífur vísitöl-
una upp nú er mikil
hækkun á mati fólks á ástandinu
eftir sex mánuði. Frá síðustu
mælingu hefur óvissu um kjara-
samninga verið eytt og kann það
að skýra auknar væntingar.
Talsverður munur er
á afstöðu fólks eftir bú-
setu og tekjum.
Þannig hækkar vísi-
talan minna hjá íbú-
um höfuðborgar-
svæðisins og fólk
með hærri tekjur en
250 þúsund lítur bjart-
ari augum á framtíð-
ina en þeir sem hafa
lægri laun. -hh
ALFREÐ ÞORSTEINSSON, STJÓRNARFORMAÐUR OR, OG BENT S. EINARSSON,
FORSTJÓRI JARÐBORANA Orkuveitan, sem er næststærsti hluthafinn í Jarðborunum,
hefur ekki tekið afstöðu til yfirtökutilboðs Atorku Group sem berst á næstunni.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Spurðist
fyrir um skattrannsóknir á Alþingi. Fram
koma að sex af hverjum hundrað fyrirtækj-
um hafa sætt almennri endurskoðun skatt-
skila.
Rannsaka sex
af hundrað
Sex af hverjum hundrað fyrir-
tækjum sem eru á lista yfir hund-
rað stærstu fyrirtæki landsins
hafa sætt almennri endurskoðun
skattskila. Þetta kemur fram í
svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur,
þingmanns Samfylkingarinnar
sem birt var í gær. „Hjá 36 öðr-
um fyrirtækjum hafa einstakir
þættir skattskila verið skoðaðir.
Upplýsingar um árangur eða
skattbreytingar vegna þess eftir-
lits liggja ekki fyrir,“ segir með-
al annars í svari fjármálaráð-
herra.
Jóhanna óskaði eftir upplýs-
ingum um ýmis atriði sem varða
skatteftirlit og undanskot frá
sköttum en alls var um að ræða
fimm spurningar.
Meðal þess sem kemur fram í
svarinu er að hugmyndir eru inn-
an fjármálaráðuneytisins um að
skattaleg málefni stórfyrirtækja
verði til meðferðar á einum stað
innan skattkerfisins. Starshópur
innan fjármálaráðuneytisins
kannar nú grundvöll á því að slík-
ur hópur taki til starfa. - hb
KEYPT MEÐ TÖLVU Sífellt fær-
ist í aukana að vörur séu keyptar
á Netinu hér á landi.
Bjartsýni vex á ný
Vandamál hafa verið við út-
reikning vísitalna í Kauphöll Ís-
lands undanfarna tvo daga.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kauphöllinni er séð fyrir end-
ann á þessum vandræðum. Að
sögn Kauphallarinnar var verið
að uppfæra viðskiptakerfi
Kauphallarinnar sem leiddi til
villu í kerfinu. Talið er að eldri
forrit hafi ekki náð að fylgja eft-
ir breytingum við uppfærsluna.
Ekki tókst að senda út rétt
lokagildi á vísitölunnar í fyrra-
dag, en í gær var gildið rétt.
Villan var í tölvum í Noregi og
urðu starfsmenn Kauphallar-
innar varir við að vísitalan var
ekki rétt reiknuð. Var útreikn-
ingi vísitölunnar þá þegar hætt.
Á mánudag leit út fyrir að vísi-
talan hefði farið niður fyrir
fimm þúsund stig, en sú var
ekki raunin. Næstu daga á vísi-
talan að reiknast rétt og vand-
ræði Kauphallarinnar því að
baki. - hh
KOMIÐ Í LAG Vísitölur í Kauphöllinni voru
rangar vegna reiknivillu í tölvu. Útreikningur
vísitalna var stöðvaður, en nú á allt að vera
komið í samt lag.
Vísitöluvandræði í Kauphöllinni
Uppfærsla í viðskiptahugbúnaði olli reikningsskekkju í vísitölu Kauphallarinnar.
02_03_Markadur 29.11.2005 16:17 Page 2