Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 38

Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 38
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN10 F R É T T A S K Ý R I N G Ríkisendurskoðun tekur ekki beina af- stöðu til þess hvort lánasamningar, sem Íbúðalánasjóður hefur gert við banka og sparisjóði, hafi verið í samræmi við lög og reglur. Þetta kemur fram í nýrri stjórn- sýsluúttekt sem Ríkisendurskoðun hefur gert á sjóðnum. Þar segir að með hliðsjón af stöðu og hlutverki Fjármálaeftirlitsins, sem sjálfstæðs eftirlitsaðila með fjár- málastarfsemi, sé rétt að það úrskurði um slík álitamál í samræmi við lög. Bent er á að Fjármálaeftirlitið hafi verið upplýst um eðli þessara lánasamninga og látið þá við- gangast. Hins vegar gagnrýnir Ríkisendurskoð- un að það hafi ekki verið tilkynnt formlega þegar Íbúðalánasjóður hóf að nota þessa lánasamninga sem hluta af áhættustýr- ingu sinni. Betur hefði átt að vanda til verka í því tilviki og kynna fyrir markaðs- aðilum. Horfa verði til þess að stjórnend- ur Íbúðalánasjóðs hafi með þessu verið að forða sjóðnum frá yfirvofandi tjóni vegna mikilla uppgreiðslna íbúðalána og koma þokkalegu jafnvægi á milli eigna og skulda. Sé horft framhjá efasemdum um lögmæti þessara lánasamninga sýnist Rík- isendurskoðun að þessir gjörningar hafi tryggt hagsmuni sjóðsins með nokkuð við- unandi hætti. KEYPTI LÁN BANKANNA Í einföldu máli má segja að Íbúðalánasjóð- ur hefur notað milljarða króna, sem hafa komið í kassann vegna uppgreiðslu íbúða- lána í kjölfar þess að fjármálafyrirtæki fóru að bjóða hagstæð íbúðalán í fyrra- haust, til að kaupa lánasamninga sem bankar og sparisjóðir hafa gert við kaup- endur fasteigna. Þannig hefur Íbúðalána- sjóður tryggt að hann fái áfram tekjur af þessum peningum sínum því til sjóðsins renna afborganirnar af íbúðalánunum. Hins vegar vita viðskiptavinirnir ekki bet- ur en að þeir séu áfram að greiða bankan- um sínum fyrir lánið. Ekkert breytist gagnvart þeim. Sparisjóðirnir hafa notað þessa aðferð mikið við að fjármagna sín íbúðalán, einnig Landsbankinn, Íslands- banki minna en KB banki ekki neitt. Íbúðalánasjóður fjármagnar starfsemi sína til langs tíma. Peningana sem hann tekur að láni notar hann til að lána aftur til íbúðakaupa og þiggur þóknun fyrir. Þegar fjölmargir greiddu upp lán sín var hætta á að misræmi yrði á milli eigna og skulda. Þá hefði sjóðurinn ekki lengur haft tekjur af peningunum en þyrfti samt áfram að borga sjálfur fyrir að fá þá að láni. Þess vegna var mikilvægt fyrir stjórnendur Íbúðalánasjóðs að finna nýtt hlutverk fyr- ir peningana og fá áfram tekjur af þeim til að standa undir afborgunum. Lánasamn- ingarnir redduðu þeim vanda og kaupin á þeim voru skilgreind innan heimilda til áhættustýringar. ATHUGASEMD EFTIRLITSINS Í stjórnsýsluúttektinni kemur fram að Fjármálaeftirlitið hafi tæplega hálfu ári eftir að lánasamningar voru fyrst gerðir, eða 10. maí 2005, gert Íbúðalánasjóði það ljóst að samningar af þessu tagi væru orðnir verulegur þáttur í starfsemi sjóðs- ins. Áður hefði eftirlitið ekki gert athuga- semdir enda var talið í upphafi að samn- ingarnir hefðu verið gerðir til að bregðast við vanda á tilteknum tímapunkti. Í ljósi þess að þetta var orðinn stór þáttur í starf- semi sjóðsins þyrfti að huga betur að og styrkja reglurnar sem bjuggu að baki. Það gerði Árni Magnússon félagsmála- ráðherra svo í september síðastliðinn þeg- ar hann gaf út reglugerð þar sem skýrt var orðað að Íbúðalánasjóði væri heimilt að gera slíka samninga í áhættustýringar- skyni. Forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs höfðu þá lengi haldið því fram að þetta væri þegar heimilt. Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við það enda hafi Fjármálaeftirlitið verið með í ráðum. EKKI BUNDIÐ VIÐ VERÐBRÉF Í umfjöllun Ríkisendurskoðunar um álita- mál sem snúa að lánasamningunum er vitnað í álitsgerð Jóhannesar Sigurðsson- ar, hæstarréttarlögmanns og prófessors við Rannsóknastofnun í fjármálafræðum við Háskólann í Reykjavík, frá því í ágúst síðastliðinn. Var hún unnin fyrir Samtök atvinnulífsins. Jóhannes sagði meðal annars að Íbúða- lánasjóður hefði heimild til þess að eiga viðskipti með verðbréf í því skyni að stýra áhættu en lánasamningar við fjármálafyr- irtæki uppfylltu ekki þau skilyrði. „Sam- kvæmt reglunum er sjóðnum heimilt að eiga viðskipti með eigin verðbréf og önnur verðbréf í því skyni að stýra áhættu. Lána- samningarnir uppfylla ekki skilyrði þess að vera verðbréf,“ sagði Jóhannes. Þessu mótmælti Árni Páll Árnason lög- maður og sagði Jóhannes gefa sér rangar forsendur. „Þvert á móti er sjóðnum heim- ilt samkvæmt lögum og reglugerðum að eiga önnur viðskipti en með verðbréf í áhættustýringarskyni,“ sagði Árni Páll. Í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar segir að Íbúðalánasjóður telji að heimildir til áhættustýringar séu alls ekki bundnar við viðskipti með verðbréf. Í því sambandi bendi sjóðurinn á að í samræmi við lög og reglur beri honum að stunda áhættustýr- ingu. Í lögskýringum sé gert ráð fyrir að sjóðurinn beiti hefðbundnum aðferðum við þá stýringu. Skýrt sé tekið fram í reglugerð að aðferðir sjóðsins við áhættu- stýringu verði að vera skilgreindar og staðfestar í stjórn að fenginni umsögn Fjármálaeftirlitsins. Í reglugerð séu heim- ildir til áhættustýringar ekki bundnar við verðbréf. Því séu lánasamningar eðlilegir enda hafi Fjármálaeftirlitið ekki gert neinar athugasemdir þar að lútandi. BÆTA VERÐUR UPPLÝSINGAGJÖF Að mati Ríkisendurskoðunar er ekki hægt að gagnrýna Íbúðalánasjóð fyrir fram- kvæmdina við kerfisbreytingu á lánum sjóðsins sem tók gildi um mitt síðasta ár. Það verð, sem fundið hafi verið þegar eig- endur húsbréfa skiptu þeim yfir í nýju íbúðabréfin, hafi tekið mið af tillögum ráð- gjafa. Farið hafi verið varlegar ef eitthvað er. Einnig verði að skoða markmiðið með skiptunum, en það var að skipta umtals- verðu magni bréfa og tryggja með þeim hætti skjóta og örugga verðmyndun með íbúðabréf. Telur Ríkisendurskoðun að þessi markmið hafi náðst samhliða því að skila Íbúðalánasjóði tekjum. Einnig kemur fram að í ljósi mikilla uppgreiðslna íbúðalána hefði Íbúðalána- sjóður átt að fara hægar í sakirnar við út- gáfu nýrra íbúðabréfa. Þó það hafi verið í samræmi við heimildir sjóðsins var kostur á að endurlána uppgreiðslufé á ásættan- legum kjörum. Þetta er í samræmi við það sem greiningardeildir bankanna hafa haldið fram. Síðasta uppgjör Íbúðalánasjóðs hefði líka mátt vera ítarlegra að mati Ríkisend- urskoðunar. Það er einnig í samræmi við gagnrýni greiningardeilda bankanna á upplýsingagjöf sjóðsins. Í þeirri gagnrýni hefur komið fram að Íbúðalánasjóður er stærsti útgefandi skuldabréfa á Íslandi. Bréf sjóðsins séu undirstaða skuldabréfa- markaðar og myndi verðtryggða vaxtafer- ilinn, sem sé undirstaða allrar verðlagn- ingar á fjármagnsmarkaði og vaxtarófs á Íslandi. Lýsir efasemdum um lögmæti lánasamninga Í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar er ekki tekin afstaða til þess hvort lánasamningar banka og sparisjóða við Íbúðalánasjóð hafi verið löglegir. Bent er á að Fjármálaeftirlitið var með í ráðum frá upphafi við gerð þeirra. Björgvin Guðmundsson segir Ríkisendurskoðun gagnrýna Íbúðalánasjóð fyrir upplýsingagjöf. FRÁ FUNDI FORSVARSMANNA ÍBÚÐALÁNASJÓÐS Mikill styrr hefur staðið um Íbúðalánasjóð undanfarna mán- uði. Hafa stjórnendur sjóðsins oft þurft að svara harðri gagnrýni, bæði frá bönkum og Samtökum atvinnulífsins, varðandi starf- semi hans. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar kemur fram að farið var eftir lögum þegar brugðist var við breyttum aðstæðum á íbúðalánamarkaði. 10_11_Markadur-lesið 29.11.2005 14:18 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.