Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 43
Viðskiptaráðs Íslands gaf út álit í
síðustu viku þar sem sjónum var
sérstaklega beint að ríkisstofn-
unum. Þær hafa lögbundnu hlut-
verki að gegna sem yfirleitt er
nokkuð skýrt afmarkað. Í álitinu
kemur fram að það blasi við að í
mörgum tilvikum fari starfsemi
ríkisstofnana út fyrir lögbundið
hlutverk þeirra. Mörkin séu oft
óljós milli þess sem menn telja
ríkið eiga að framkvæma og þess
sem markaðurinn sinnir alla
jafna. Hins vegar eigi það að
vera regla að um leið og einka-
aðilar hasla sér völll á ákveðnu
sviði að lögð séu niður sambæri-
leg verkefni hjá ríkisstofnunum.
Ýmis embætti ríkisins falla
undir þá skilgreiningu að vera
ríkisstofnanir. Þannig eru til
dæmis héraðsdómstólar og
sýslumannsembætti talin til rík-
isstofnana. Fjöldi ríkisstofnana
er um 240 en að minnsta kosti um
30 þeirra eru þess eðlis að um
samkeppni þeirra við einkaaðila
gæti verið að ræða. Er aðallega
um að ræða stofnanir sem hafa
einhvers konar víðtækara þjón-
ustuhlutverki að gegna heldur en
þeirri þjónustu sem leiðir af
stjórnsýslunni.
Í niðurstöðum álits Viðskipta-
ráðs kemur fram að mörk ríkis-
rekstrar og einkarekstrar séu
nokkuð skýr miðað við þá megin-
stefnumörkun sem ríkisstjórnir
síðustu ára hafa haft varðandi
ríkisrekstur. Með einkavæðingu
síðustu ára hafi markvisst verið
unnið að því að leggja niður sam-
keppni ríkisins við einkaaðila.
Sömu sjónarmið eigi við um rík-
isstofnanir. Það eigi að gera þá
kröfu til forstöðumanna ríkis-
stofnana að þeir sjái til þess að
stofnunin sé ekki í samkeppni á
markaðnum.
Viðskiptaráð bendir einnig á
að mikil ábyrgð hvíli einnig á
einkaaðilum. Þeir verði að búa
svo um hnútana að opinberir aðil-
ar upplifi ekki hvatningu til þess
að veita þjónustu sem er í sam-
keppni við einkaaðila. Þannig
þurfi einkaaðilar að meta það
með skipulegum hætti hvort rétt
sé að þiggja opinbera þjónustu
sem er í samkeppni við einka-
aðila, jafnvel þótt sú opinbera sé
veitt gegn vægara gjaldi eða
jafnvel ókeypis.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 15
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
NÝTT MEISTARAVERK- LEXUS IS 250
The pursuit of perfection
Nýr Lexus IS 250 er lúxusbíll sem vekur aðdáun vandlátra sérfræð-
inga og bílunnenda um allan heim.
Nýr Lexus IS 250 er algjört eðaltæki, einstök listasmíði þar sem
háþróuð tækni, þægindi og öryggi eru í öndvegi. Hann bíður þeirra
sem gera kröfur um framúrskarandi gæði.
Verð frá 3.800.000 kr.
Nýbýlavegur 6 • 200 Kópavogur • 570 5400 • www.lexus.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
32
3
11
/2
00
5
ÞARFTU Á ÞJÓNUSTU AÐ HALDA VEGNA FYRIRTÆKJAVIÐSKIPTA?
Fyrirtækjamiðlun veitir seljendum og kaupendum fyrirtækja þjónustu. Þjónustan felst í að aðstoða
aðila við að ná saman um fyrirtækjaviðskipti og gera alla nauðsynlega samninga vegna þess. Hér er
um víðtæka þjónustu að ræða sem byggist á reynslu og þekkingu og þar sem trúnaður er í fyrirrúmi:
Aðstoð við kaup á fyrirtækjum.
Aðstoð við sölu á fyrirtækjum.
Aðstoð við sameiningu fyrirtækja.
Aðstoð við fjármögnun fyrirtækjaviðskipta.
Aðstoð við stofnun fyrirtækja.
Jón G. Briem hrl. og löggiltur fyrirtækjasali.
Fyrirtækjamiðlun, Skipholti 50b, 105, Reykjavík. Símar: 561 9505 og 895 0209. Fax: 561 9501.
Tölvupóstur: jongbriem@trod.is. Vefsíða: www.fyrirtaekjamidlun.is
Sameppni ríkisfyrir-
tækja við einkaaðila
Endurskoða þarf reglulega þörfina
fyrir tilteknar ríkisstofnanir.
VIÐSKIPTARÁÐS ÍSLANDS GEFUR ÚT ÁLIT Í áliti Viðskiptaráðs Íslands kemur fram að það eigi að gera þá kröfu til forstöðumanna rík-
isstofnana að þeir sjái til þess að stofnunin sé ekki í samkeppni á markaðnum.
Fjöldi ríkisstofnana er um 240 en að minnsta kosti
um 30 þeirra eru þess eðlis að um samkeppni þeirra
við einkaaðila gæti verið að ræða.
14-15 Markadur-15 lesin 29.11.2005 14:28 Page 3