Fréttablaðið - 30.11.2005, Page 47
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Höfðabakki 3 | 110 Reykjavík | Sími 557-8200 | www.logoprent.is
Verðin miðast við magn 1-100 stk. Merking innifalin.
Mun meira úrval í boði. Vinsamlega hafið samband við sölumenn.
Jólagjafir fyrirtækisins
Stílhreinar jólagjafir sem allar er hægt að merkja með þínu „logo“.
Golfæfingasett m/Pútter
Verð: 3.862 kr.
Klukka m/bíl sem hreyfist
Verð: 1.195 kr.
Fjölhæfur skiptilykill
Verð: 1.295 kr.
Borðklukka m/snúningskúlu
Verð: 1.550 kr.
Hjálmar Blöndal
skrifar
„Verkefnið er að skila okkur
mjög góðum tekjum,“ segir
Pálmi Guðmundsson, markaðs-
stjóri fjölmiðlafyrirtækisins 365,
spurður um tekjur af Idol-keppn-
inni sem nú stendur hvað hæst.
Áætlað er að heildarvelta 365 af
verkefninu sé rúmlega 400 millj-
ónir króna samkvæmt heimild-
um Markaðarins.
Pálmi segir að tekjuskiptingin
sé þannig að mestu tekjurnar
komi af áskriftum og auglýsing-
um en auk þess skili keppnin 365
tekjum í formi kostana, útgáfu-
samninga og fleira. „Við höfum
opnað Idol-verslun í Hagkaup í
Smáralind þar sem við seljum
ýmsan varning sem tengist
keppninni og sífellt meira er um
að fyrirtæki séu að tengjast
vörumerkinu, til dæmis eru seld
leikföng og nú er til að mynda í
sölu Idol-ís og fleira í þá veru,“
segir Pálmi.
Hann segir að 365 hafi nýverið
fest kaup á vörumerkinu Idol fyr-
ir Ísland og geti því sent keppnina
út eins lengi og forsvarsmenn 365
hafi áhuga á. „Miðað við þennan
árangur sem við höfum náð af
keppninni geri ég ekki ráð fyrir
öðru en við munum líta til annarra
verkefna af þessu tagi. Við byrj-
uðum með Viltu vinna milljón og
svo höfum við sýnt Það var lagið
sem eru dæmi um sérleyfi sem
við höfum keypt. Þannig að við
höldum áfram enda eru viðtökur
mjög góðar ef marka má auglýs-
ingar sem eru oftast uppseldar í
Idol-stjörnuleit margar vikur
fram í tímann,“ segir Pálmi. Hann
vildi ekki gefa upp kaupverðið á
Idol-vörumerkinu en sagði það
sanngjarnt miðað við þær tekjur
sem hlytust af því. Idol-stjörnu-
leit mældist einn vinsælasti þátt-
urinn í nýrri fjölmiðlakönnun
IMG Gallup en Pálmi segir að
áhorfið muni aukast eftir því sem
líða taki á keppnina, reynslan
sanni það.
Idol-stjörnuleit
veltir 400 milljónum
365 hefur keypt vörumerkið Idol fyrir Ísland
FRÁ IDOL-PARTÍI HILDAR VÖLU Áhorfendur fylkja sér um keppendur á lokasprettinum.
Myndin var tekin í Idol-partíi Hildar Völu sem bar sigur úr býtum í keppninni í fyrra.
IDOL-STJARNAN HUNG William Hung tróð á dögunum upp í Smáralind en hann varð
helst frægur fyrir að ná litlum sem engum tökum á því sem keppt er að í keppninni.
18-19 Markadur- lesið 29.11.2005 15:18 Page 3