Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 72
32 30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Það eru tæpir tveir
mánuðir þar til EM hefst í Sviss og
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari
mun tilkynna hópinn sem fer utan
væntanlega fyrr frekar en síðar.
Ísland lék þrjá æfingaleiki gegn
Noregi um síðustu helgi og Viggó
sagði eftir leikina að hann væri
svo gott sem búinn að velja hópinn
fyrir EM. Stóra spurningin er því
hvaða leikmenn það eru sem hann
tekur með til Sviss.
Í mínum huga eru 13 sæti frá-
tekin og því verður hart barist
um síðustu þrjú sætin. Ég geri
ráð fyrir þrem markvörðum
í þessum 16 manna hópi en
þori aðeins að eyrnamerkja tvö
þeirra. Birkir Ívar fer pott-
þétt út sem og Hreiðar Guð-
mundsson verði hann
heill heilsu.
Þá er það
þ r i ð j a
m a r k -
v a r ð a -
sætið og
slagurinn þar er á
milli Rolands Eradze, Gísla
Guðmundssonar og Hlyns
Morthens. Roland er klárlega
fyrsti kostur af þessum þremur
en líkamlegt ástand hans ræður
miklu um hvort hann fer utan.
Bæði Roland og Hreiðar hafa
verið nokkuð meiddir og því er
vart á annað hættandi en að taka
þrjá markverði á mótið.
Á listanum hér til hliðar sést
síðan hvaða útileikmenn eiga
bókað sæti til Sviss að mínu
mati. Allir hafa verið að
spila reglulega fyrir utan
Arnór Atlason sem ég tel
engu að síður öruggan í
hópinn. Fjórtánda sætið
hlýtur að falla í skaut
leikmanns sem
getur spil-
að vinstra
horn þar
s e m
Guðjón
Valur
Sigurðsson kemur væntanlega til
með að leika eitthvað sem skyt-
ta. Þá stendur valið á milli Loga
Geirssonar og Baldvins Þorsteins-
sonar. Logi hlýtur að standa fram-
ar enda reynslumeiri og getur
einnig leikið í stöðu skyttu.
Síðustu tvö sætin munu að
öllum líkindum falla til örvhents
manns, vinstri skyttu eða sterks
varnarmanns. Markús Máni er
svo gott sem úr myndinni og þá er
ekki ólíklegt að Vilhjálmur Hall-
dórsson fái að fljóta með. Barátt-
an um lokasætið er líklega á milli
Þóris Ólafssonar, Ásgeirs Arnar
Hallgrímssonar og Einars Arnar
Jónssonar. Eins og staðan er í dag
er líklegast að Þórir taki sætið
enda er Ásgeir Örn úti í kuldanum
hjá Viggó sem stendur.
Landsliðshópurinn fyrir Evrópumeistaramótið í handbolta verður valinn innan skamms:
Slegist um síðustu farmiðana til Sviss
ÖRUGGIR Á EM:
BIRKIR ÍVAR GUÐMUNDSSON
HREIÐAR LEVÝ GUÐMUNDSSON
ROLAND VALUR ERADZE / GÍSLI GUÐ-
MUNDSSON / HLYNUR MORTHENS
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON
ÓLAFUR STEFÁNSSON
SNORRI STEINN GUÐJÓNSSON
EINAR HÓLMGEIRSSON
ALEXANDER PETERSON
RÓBERT GUNNARSSON
SIGFÚS SIGURÐSSON
VIGNIR SVAVARSSON
JALIESKY GARCIA PADRON
ARNÓR ATLASON
ENN Í MYNDINNI:
LOGI GEIRSSON
BALDVIN ÞORSTEINSSON
ÞÓRIR ÓLAFSSON
ÁSGEIR ÖRN HALLGRÍMSSON
EINAR ÖRN JÓNSSON
VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON
MARKÚS MÁNI MICHAELSSON MAUTE
ÍÞRÓTTASKÝRING
HENRY BIRGIR GUNNARSSON
henry@frettabladid.is
HANDBOLTI Hinir kunnu þjálfarar
Alfreð Gíslason hjá Magdeburg
og Júlíus Jónasson hjá ÍR eru
sammála um að það herbragð
Viggó Sigurðssonar, þjálfara
íslenska landsliðsins í handbolta,
að láta Ólaf Stefánsson leika mun
meira sem leikstjórnanda liðsins á
næstu mótum, geti reynst öflugur
leikur.
Örvhentir miðjumenn eru
og hafa alltaf verið af skornum
skammti í handboltanum og segir
Alfreð að einföld ástæða sé fyrir
því. „Það eru mun meiri not fyrir
þá örvhentu leikmenn sem koma
fram í stöðurnar hægra megin á
vellinum,“ segir Alfreð. Staðan
hjá íslenska liðinu í dag er hins
vegar einmitt sú að Viggó hefur úr
fjölmörgum vinstri handar mönn-
um að velja og því hefur hann efni
á að setja skyttu á borð við Ólaf
Stefánsson á miðjuna.
„Hann getur orðið öflugt vopn,“
sagði Júlíus við Fréttablaðið.
„Andstæðingurinn er vanur því
að mæta rétthentum miðjumanni
sem fer meira til hægri en þarna
erum við komnir með mann sem
fer líklega meira til vinstri. Þetta
er mjög einföld breyting en getur
samt orðið til þess að trufla vörn
andstæðinganna,“ segir Júlíus.
Ólafur þótti standa sig mjög
vel sem leikstjórnandi á æfinga-
mótinu sem haldið var í Póllandi
fyrir skemmstu, en þar stóð
íslenska liðið uppi sem sigurveg-
ari. Athygli vakti að í leiknum
gegn Danmörku á því móti kaus
Ulrich Wilbek, þjálfari liðsins,
að breyta varnartaktík sinni úr
hinni hefðbundnu 6-0 vörn í 5-1
vörn, þar sem fremsti varnarmað-
ur mætti Ólafi mjög framarlega.
Alfreð segir að sjálfur láti hann
sitt lið ekki spila neina sérstaka
vörn á móti örvhentum leikstjórn-
anda. „En það eru sérstök varn-
arafbrigði til að loka á örvhenta
skyttu og það ætti alveg að gilda
um örvhentan miðjumann,“ segir
hann.
Víst þykir að Snorri Steinn
Guðjónsson og Ólafur Stefáns-
son munu sjá um að spila stöðu
miðjumanns íslenska liðsins á EM
í Sviss sem hefst í lok janúar, en
Snorri stóð sig frábærlega í þrem-
ur æfingaleikjum gegn Norð-
mönnum um helgina. En athygli
vekur að Snorri Steinn er rétt-
hentur og eðli málsins samkvæmt
munu Viggó og lærisveinar hans
því þurfa að ná að útfæra fléttur
liðsins í sóknarleiknum fyrir hinn
örvhenta Ólaf. „Með örvhentan
miðjumann breytast hreyfingarn-
ar í sóknarleiknum talsvert, þar
sem allar leikfléttur miða við að
miðjumaðurinn sé rétthentur,“
segir Alfreð og bætir því við að
það skipti litlu máli fyrir varn-
arleikinn hvort að leikmennirnir
þar séu örvhentir eða rétthentir.
Alfreð hefur þó litlar áhyggjur
af því að Ólafur ráði ekki við stöð-
una, enda fór hann illa með læri-
sveina hans í keppninni um kon-
ungsbikarinn á Spáni um síðustu
helgi, en þar lá Magdeburg fyrir
Ciudad Real í úrslitaleiknum með
níu mörkum.
„Ólafur var frábær í báðum
leikjunum sem ég sá þar sem hann
spilaði reyndar í sinni hefðbundnu
stöðu sem skyttu. Hann er í topp-
formi – ég get vottað það,“ segir
Alfreð. vignir@frettabladid.is
Getur verið mjög öflugt vopn
Ólafur Stefánsson getur orðið mjög öflugur sem leikstjórnandi íslenska landsliðsins í handbolta, að mati
Alfreðs Gíslasonar og Júlíusar Jónassonar, og er líklegur til að trufla varnir andstæðinganna.
ÓLAFUR STEFÁNSSON Hefur verið að spila þó nokkuð í stöðu leikstjórnanda fyrir Ciudad
Real á tímabilinu í ár og mun koma til með að gera slíkt hið sama fyrir íslenska landsliðið
á næstu misserum.
Knattspyrnumaðurinn Almir Cosic, sem
lék með Leikni Fáskrúðsfirði í 2. deildinni
í sumar en var eitt sinn var undir smásjá
enska stórliðsins Newcastle, er líklega á
leið til Breiðabliks, sem einmitt vann sér
sæti í Landsbankadeild karla á síðustu
leiktíð. Gosic, sem kemur frá Bosníu-
Hersegóvínu, mætti á æfingu hjá liðinu í
síðustu viku og spilaði í kjölfarið æfingaleik
með liðinu gegn Fram. „Mér leist mjög
vel á allar aðstæður hjá Breiðablik og
vonast til að geta verið með liðinu á næsta
tímabili. Ég tel mig vera nógu góðan til að
leika í efstu deild,“ sagði Gosic í samtali
við Fréttablaðið í gær, en hann hefur nú
verið búsettur á Íslandi í tæplega eitt ár
og líkar mjög vel við land og þjóð. „Hér
er yndislegt að vera og ég stefni á að vera
hér í allavega 10 ár til viðbótar,“ segir Gosic
sem er 29 ára gamall og á að eigin sögn
5-6 góð ár eftir í boltanum.
Gosic lék lengi með liði FC Zeljeznicar
og vakti mikla athygli fyrir góða frammi-
stöðu með liðinu í Evrópukeppninni árið
2002. Þar lék liðið m.a. gegn Newcastle
sem í kjölfarið bauð eina milljón punda
í Gosic. Því tilboði var hafnað og tveimur
árum síðar varð hann samningslaus. Tilvilj-
un réð því að hann kom til Fáskrúðsfjarðar
en það var fyrir tilstuðlan góðvinars síns.
sem búið hefur hér á landi í nokkurn tíma.
„Hann hefur verið á reynslu hjá okkur
og mér líst ágætlega á hann. Við erum í
viðræðum við Leikni um að fá hann til
okkur og stefnum á að gera það. „Hann er
klárlega með hæfileika og ég sé ýmislegt
í honum,“ segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, við Fréttablaðið í gær, en
Cosic er samningsbundinn Leikni fram
yfir næsta tímabil og þarf
Breiðablik því að greiða
fyrir leikmanninn ætli
það sér að fá hann. „Ég
á ekki von á öðru en að
við náum saman,“ segir
Magnús Ásgrímsson,
formaður knatt-
spyrnudeildar
Leiknis
Fáskrúðs-
firði.
ALMIR COSIC FRÁ BOSNÍU-HERSEGÓVÍNU: Á LEIÐ Í LANDSBANKADEILDINA
Ætlar að vera á Íslandi næstu tíu árin
JÚLÍUS JÓNASSON Segir að örvhentur miðju-
maður geti ruglað varnir andstæðinganna
en einnig samherja sína.
KÖRFUBOLTI Kristleifur Andrés-
son hefur verið ráðinn þjálfari
úrvalsdeildarliðs Hattar en hann
tekur við starfinu af Kirk Baker.
Kristleifur er 46 ára íþróttakenn-
ari sem er alinn upp á Stóra-Kro-
ppi í Borgarfirði en hefur verið
viðloðandi íþróttalífið á Austur-
landi síðan 1985 er hann gerðist
íþróttakennari á Eiðum.
Kristleifur er ekki ókunngur
starfinu þar sem hann þjálfaði
meistaraflokkinn leiktíðina 2003-
04, hann var síðan liðsstjóri síð-
asta vetur en hefur þjálfað yngri
flokka félagsins í vetur.
„Það verður að vaða í verk-
efnið. Við getum allt eins skráð
okkur úr deildinni ef við ætlum að
falla,“ segir Kristleifur í frétta-
tilkynningu frá Hetti. „Fyrst og
fremst þarf að breyta hugarfari
leikmanna. Ef menn eru tilbún-
ir að snúa við blaðinu og berjast
upp á líf og dauða getur ýmislegt
gerst.“
- hbg
Körfuknattleikslið Hattar:
Búið að ráða
nýjan þjálfara
FÓTBOLTI David Beckham, leikmað-
ur Real Madrid, hefur sent skila-
boð til Thierry Henry hjá Arsen-
al um að velja Real Madrid fram
yfir Barcelona fari svo að hann
kjósi að yfirgefa Highbury eftir
18 mánuði, en þá rennur samning-
ur hans við félagið út. Beckham
segir að það yrði ótrúlegt að fá
Henry til Real.
„Hann er einn af bestu fram-
herjum heims og það yrði mikill
missir fyrir Arsenal ef hann færi.
Vonandi kemur hann til Real því
það er rétt hægt að ímynda sér
hvað gerist ef hann fer til Barce-
lona og spilar við hlið Ronaldinho
og Samuel Eto´o.“ - vig
David Beckham:
Vill fá Henry
til Real Madrid
DAVID BECKHAM Vill alls ekki sjá Thierry
Henry fara til Barcelona.
FÓTBOLTI Nígeríski framherjinn
Kanu hjá WBA segist helst vilja
vera áfram hjá félaginu og hjálpa
því að halda sæti sínu í úrvals-
deildinni, en hann hefur sterk-
lega verið orðaður við sölu frá
WBA eftir að hafa fundið sig vel
í fremstu víglínu liðsins það sem
af er leiktíð.
„Ég hef fengið tilboð víða en
ég hef aldrei svikið mín loforð. Ég
lofaði að hjálpa WBA að bæta sig
og ég ætla mér að standa við það
loforð. Ég mun ekki fara fyrr en
liðið er búið að festa sig í sessi sem
úrvalsdeildarfélag,“ segir Kanu.
- vig
Kanu er eftirsóttur:
Áfram hjá WBA
> Loksins, loksins
Við óskum íslensku frjálsíþróttafólki
innilega til
hamingju
með nýju
æfingaað-
stöðuna í
Laugardals-
höll. Nýja
húsið er sann-
kölluð bylting fyrir
frjálsíþróttafólk
sem hefur búið
við ömurlegan kost
í Baldurshaga allt of
lengi. Það er vonandi
að nýja aðstaðan laði
að fleiri krakka í frjálsar
og í kjölfarið eignumst
við fleiri afreksíþrótta-
menn á borð við Völu
Flosadóttur og Þóreyju
Eddu Elísdóttur.
Sindri á Ólympíuleikana
Sindri Pálsson, landsliðsmaður í skíða-
íþróttum, náði um helgina lágmarki fyrir
Ólympíuleikana í vetraríþróttum sem fara
fram í Tórínó á Ítalíu í febrúar á næsta
ári. „Ég á meira inni heldur en ég sýndi
á mótinu. Nú þarf ég bara að æfa vel og
reyna að ná fram mínu besta á Ólympíu-
leikunum.“