Fréttablaðið - 30.11.2005, Síða 74
30. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR34
� � LEIKIR
� 19.15 Selfoss og Haukar mætast í
DHL-deild karla.
� 19.15 Keflavík og Breiðablik
mætast Iceland Express-deild
kvenna.
� � SJÓNVARP
� 18.30 Bestu bikarmörkin á Sýn.
Mörk með Man. Utd.
� 19.35 Enski deildarbikarinn á Sýn.
Leikur Man. Utd og WBA.
� 21.35 Meistaradeildin á Sýn.
Fréttaþáttur.
� 22.05 Strákarnir í Celtic á Sýn.
� 22.20 Handboltakvöld á Rúv.
� 22.30 Enski deildarbikarin á Sýn.
Leikur Man. Utd og WBA.
Endursýning.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
27 28 29 30 1 2 3
Miðvikudagur
NÓVEMBER
MÁNUDAGUR 10. október 2005
70-71 (18-19) SPORT 29.11.2005 17:26 Page 3
HANDBOLTI Mótanefnd HSÍ svaraði
erindi handknattleiksdeildar ÍR í
gær en ÍR-ingar vildu fá leik sínum
gegn ÍBV 17. desember seinkað
um einn dag. Upprunalegu kær-
unni var vísað frá en mótanefndin
féllst á að seinka leiknum í gær
um nokkra klukkutíma.
„Hann átti að vera klukkan
tvö en hefur verið færður til hálf
sex. Strákarnir okkar sem verða
í prófum þurfa því að spila leik
klukkutíma eftir að þeir koma
úr prófum,“ sagði Hólmgeir
Einarsson, stjórnarmaður hjá
ÍR, en hann var ekki sáttur við
úrskurðinn. „Hvernig heldurðu
að strákarnir séu eftir fjögurra
tíma próf? Ég er hundsvekkt-
ur með þennan úrskurð. Ég tel
að við handboltamenn séum að
drepa okkur innan frá með svona
vinnubrögðum. Það er þrjóskast
út í eitt og ef fram heldur sem
horfir verður handboltinn á sama
stalli og blakið eftir tvö til þrjú
ár.“ - hbg
Kæra vegna leiks ÍR og ÍBV:
Leiknum aðeins
seinkað
HÓLMGEIR EINARSSON Hundfúll út í móta-
nefnd HSÍ og spáir handboltanum sömu
örlögum og blakinu haldi hreyfingin áfram
að vinna gegn sjálfri sér.
HANDBOLTI Valur og Stjarnan
skildu jöfn í æsispennandi leik
í Laugardalshöll í gærkvöld þar
sem hart var barist allan tímann.
Á lokasekúndunni jöfnuðu gest-
irnir úr Garðabæ metin en þar var
að verki Titi Kalandadze sem var
markahæstur Stjörnumanna með
sjö mörk. Patrekur Jóhannesson
fékk að finna til tevatnsins eftir
aðeins 30 sekúndur þegar Ægir
Jónsson rak hendina í andlit hans
og lá Patrekur óvígur eftir og tók
ekki meira þátt í leiknum.
„Þetta var grimmileg árás, það
er einhver hefndarhugur í þeim
frá því í bikarleiknum en það
þýðir ekkert að væla yfir þessu,
svona er þetta bara,“ sagði Sig-
urður Bjarnason, þjálfari Stjörn-
unnar, eftir leikinn en hann var
ánægður með sína menn, „Við
vorum klaufar að missa þetta
niður undir lokin en Valsmenn
eru með frábært lið. En það er
enginn vafi á því að við áttum
að klára þennan leik enda erum
við yfir allan tímann. Ég er mjög
ánægður með alla þá baráttu sem
við sýndum í þessum leik. Þetta
var mjög skemmtilegur leikur,
einn sá allra skemmtilegasti í
vetur og ég vona að áhorfendur
geri sér grein fyrir því að hér
er verið að spila topp handbolta.
Hérna eru að berjast tvö sterk lið
þar sem mikið er undir og það var
allt til fyrirmyndar í þessum leik,
góð dómgæsla og góður leikur að
beggja hálfu,“ sagði Sigurður.
Baldvin Þorsteinsson átti
góðan dag í Valsliðinu en hann
skoraði fimm mörk og var ánægð-
ur með leikinn í heild sinni, „Það
var fín stemning og fín barátta í
liðinu. Við vorum kannski ekki að
spila okkar besta bolta en hugar-
farið var til staðar og það er mjög
jákvætt. Það er ekki margt sem
fór úrskeiðis hjá okkur, kannski
mátti nýta færin betur. Vörnin í
fyrri hálfleik var frekar slöpp, en
heilt yfir var þetta fínn leikur hjá
okkur og við vorum á endanum
bara óheppnir að fara ekki með
sigur af hólmi. Þetta datt ekki
okkar megin í kvöld en við áttum
samt fínan leik,“ sagði Baldvin að
lokum. hjalti@frettabladidi.is
Jafntefli í baráttuleik
Valur og Stjarnan skildu jöfn í spennandi leik í Laugardalshöll í gær, 32-32.
ELVAR FRIÐRIKSSON Elvar Friðriksson,
leikmaður Vals, er tekinn föstum tökum en
hann skoraði þrjú mörk í leiknum.
FÓTBOLTI Ívar Ingimarsson og
félagar í Reading náðu ekki að
ógna liði Arsenal á Highbury í
gær, þegar liðin mættust í ensku
deildabikarkepninni.
Arsenal komst yfir á tólftu
mínútu og var þar að verki Spán-
verjinn ungi, José Reyes. Robin
van Persie kom Arsenal svo í 2-0
undir lok fyrri hálfleiksins. Ant-
onio Lupoli, táningur í liði Arsen-
al, bætti þriðja markinu við um
miðjan síðari hálfleik.
Doncaster hélt áfram að koma
á óvart í keppninni er liðið lagði
úrvalsdeildarlið Aston Villa að
velli með þremur mörkum gegn
engu. Leikmenn Aston Villa léku
skelfilega illa og er ljóst að David
O‘Leary, knattspyrnustjóri liðs-
ins, þarf að fá leikmenn sína til
þess að spila betri fótbolta ef
ekki á illa að fara í vetur.
Birmingham City lenti í erfið-
leikum gegn Millwall á útivelli.
Birmingham komst yfir í fyrri
hálfleik með marki frá Julian
Gray, en Dunne jafnaði leikinn
í upphafi síðari hálfleiks og þar
við sat. ■
Reading mætti ofjörlum sínum í enska deildabikarnum í gær:
Arsenal lagði Ívar og félaga
ÍVAR INGIMARSSON Ívar lék með Reading
í gær en átti í erfiðleikum gegn sprækum
framherjum Arsenal.
HANDBOLTI Lemgo, sem Ásgeir
Örn Hallgrímsson og Logi Geirs-
son leika með, tókst ekki að leg-
gja Kiel að velli í þýsku bikar-
keppninni í handbolta í gærkvöld
en Kiel hafði betur á heimavelli
sínum, 40-36.
Logi var að spila sinn fyrsta
leik í langan tíma, en hann hefur
verið frá vegna meiðsla í næstum
hálft ár.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og
Logi Geirsson voru ekki á meðal
markaskorara Lemgo. Logi á enn
eftir að komast í sitt besta form og
má reikna með því að hann muni
fá að spila meira í næstu leikjum,
en hann fékk í gærkvöld. - mh
Stórslagur í handboltanum:
Kiel lagði
Lemgo að velli