Fréttablaðið - 01.12.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 01.12.2005, Síða 4
4 1. desember 2005 FIMMTUDAGUR BERLÍN, AP Angela Merkel, kanslari Þýskalands, boðaði í stefnuræðu sinni í þýska Sambandsþinginu í gær að halda þeim kerfisumbót- um áfram sem lagt hefði verið af stað með í tíð fyrri ríkisstjórnar, með það að markmiði að blása nýjum þrótti í efnahags- og þjóðlíf Þýskalands. Hún hét því einnig að koma tengslunum vestur um haf í samt lag, en andstaða fyrrverandi kanslarans Gerhards Schröder við Íraksstríðið setti mark sitt á samskipti ríkisstjórnar hans við ráðamenn í Washington. Merkel lét þess reyndar getið að ásakanir um leynilega fanga- flutninga á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um loft- helgi og flugvelli Þýskalands og fleiri Evrópulanda yllu nýrri spennu í samskiptunum við Bandaríkin. Hún treysti því hins vegar að í Washington væru þess- ar áhyggjur Evrópumanna tekn- ar alvarlega og bráðlega tækist að upplýsa málið þannig að það yrði samstarfi bandamannanna beggja vegna Atlantshafs ekki til trafala. Merkel kvað líka afdráttar- laust að orði í tilefni af fréttum af því að mannræningjar hefðu rænt þýskri konu í Írak. Hún sagði stjórn sína ekki láta kúga sig, en meðal krafna mannræn- ingjanna er að þýsk stjórnvöld skeri á öll samskipti við Íraks- stjórn. Kanslarinn lét einskis frekar getið um stefnu stjórnar sinnar í Íraksmálum. Í ræðunni gaf Merkel enn fremur til kynna breyttar áhersl- ur í Evrópustefnunni. Lagði hún áherslu á að stjórn hennar vildi eiga sem best samskipti við minni ríki álfunnar, en í þeirra röðum voru ekki allir sáttir við þá áherslu sem stjórn Schröders lagði á að eiga nána samleið með Frökkum. Stefnuræðan verður rædd í Sambandsþinginu það sem eftir er vikunnar. - aa Fyrsta stefnuræða Angelu Merkel nýs Þýskalandskanslara: Heldur umbótum Schröders áfram MERKEL BOÐAR BJARTSÝNI Kanslarinn lagði áherslu á tækifærin sem fælust í hinu nýja stjórnarsamstarfi stóru flokkanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Sýning á laugardag frá kl. 12 - 18 GRENSÁSVEGI 14 / 108 REYKJAVÍK / 566 6820 Árgerð 2006 er komin í hús! Komdu við og sjáðu ný og glæsileg mótorhjól ásamt flottasta mótorhjólafatnaði á markaðinum frá FOX og THOR. Full búð af nýjum og flottum vörum. HEILBRIGÐI Alnæmissamtökin á Íslandi halda upp á Alþjóðlega alnæmisdaginn í dag en einkunn- arorð dagsins að þessu sinni eru hreinskilni og víðsýni. Sex Íslendingar hafa greinst HIV-smitaðir á landinu það sem af er þessu ári en þeim hefur farið fækkandi hin síðari ár sem greinast jákvæðir. Er það öfug þróun við það sem gerist erlendis þar sem lítilsháttar aukning hefur orðið á sama tíma. - aöe Alþjóðlegi alnæmisdagurinn: Sex Íslendingar smitast á árinu SJÁVARÚTVEGUR Björgólfur Jóhanns- son, framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað, mun láta af störfum um áramótin og mun Aðalsteinn Helgason taka við starfi hans. Aðalsteinn er viðskiptafræð- ingur og hefur lengi starfað sem framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja. Hann tekur við góðu búi þar sem rekstur Síldarvinnsl- unnar hefur verið með ágætum undanfarin ár. - aöe Síldarvinnslan: Björgólfur læt- ur af störfum GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 30.11.2005 Gengisvísitala krónunnar 63,2 63,5 108,99 109,51 74,42 74,84 9,984 10,042 9,353 9,409 7,816 7,862 0,528 0,531 89,95 0,49 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 104,9115 ÞJÓNUSTUSAMNINGAR „Það var vinur Magnúsar í Brasilíu sem réð okkur. Magnús hafði samband við hann. Við höfum verið tvo mánuði án launa, október og nóvember,“ segir Paulo Alves frá Receefe í Brasilíu. Alves er einn tíu manna frá Rec- eefe sem verið hafa í vinnu hjá fyrirtækinu Nýgifs sem er í eigu Magnúsar Guðmundssonar. Fimm þeirra hafa gefið sig fram við Tré- smíðafélag Reykjavíkur og kvartað sáran undan illri meðferð vinnu- veitandans. Þeir eru nú á heimleið. „Raunin er sú að þeir hafa solt- ið heilu hungri. Þetta eru fimm menn. Svo eru aðrir fimm sem af einhverjum ástæðum eru enn að vinna. Magnús er með einhvern mjög dularfullan þjónustusamn- ing sem hann kallar svo og fram- vísar,“ segir Halldór Jónasson, starfsmaður hjá Trésmíðafélagi Reykjavíkur, en félagið hefur tekið mennina fimm upp á arma sína. Halldór segir Magnús hafa feng- ið leyfi fyrir mennina frá Útlend- ingastofnun og Vinnumálastofnun í skjóli þess að um þjónustusmning sé að ræða. Mennirnir voru sagðir vera sérfræðingar frá fyrirtæki sem kallað var Brazilian Gyps- ium. Magnús segir mennina ekkert kannast við slíkt fyrirtæki. „Ég er að undirbúa skaða- bótakröfu upp á milljónir,“ segir Magnús Guðmundsson, eigandi Nýgifs. Hann gefur þó ekki upp hvern hann ætli að lögsækja. Magnús segir það vera fjarri lagi að hann sé einhvers konar þræla- haldari. Hann segist hafa greitt þeim hverjum og einum 250 þúsund krónur í mánaðarlaun og veitt þeim góðan aðbúnað á gistiheimili á Akranesi og í leiguíbúð í Kópavogi. Þeir hafi síðan launað sér greið- ann með því að valda stórtjóni á vinnustað. Einn hafi meira að segja gerst svo frakkur að stela af sér bíl, klessukeyra aðra bíla og stinga svo af. Hann kveðst í þokkabót hafa fengið hótanir frá afrískum vini mannanna. „Þessir strákar hafa ekkert landvistarleyfi. Þeir koma inn á þjónustusamningi sem er að öllum líkindum ekki fokheldur. Þetta er eitthvað sem Magnús hefur bara búið til. Þetta er glæpsamlegt, ekkert annað,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Trésmíða- félags Reykjavíkur. Magnús Guðmundsson varð þekktur fyrir nokkrum árum þegar hann framleiddi heimildar- mynd gegn málstað Grænfriðunga og mælti fyrir hvalveiðum. ghs@frettabladid.is / saj@frettabladid.is Vinna kauplaust og svelta heilu hungri Fimm brasilískir verkamenn gáfu sig fram við Trésmíðafélag Reykjavíkur í gær eftir að hafa unnið kauplaust í tvo mánuði. Magnús Guðmundsson hjá Nýgifs, fyrirtækinu þar sem mennirnir unnu, segist ekki vera þrælahaldari. FÉLAGASMÁL Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur boðað til karlaráðstefnu um jafnrétt- ismál milli klukkan níu og tólf í Salnum í Kópavogi í dag. Meðal fjölda fyrirlesara eru Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslands- banka, og Þráinn Bertelsson rit- höfundur. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum, með þeirri undantekningu að frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrr- um forseti Íslands, ávarpar hana og situr hana sem verndari og heiðursgestur. Í tilkynningu ráð- uneytisins kemur fram að karlar séu hvattir til að sækja ráðstefn- una og að aðgangur sé ókeypis meðan húsrúm leyfir. - óká Ein kona situr karlaráðstefnu: Karlar ræða jafnréttismál ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra stendur í dag fyrir karlaráðstefnu í Salnum í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. BRASILÍSKIR VERKAMENN Þeir voru sagðir vera sérfræðingar frá fyrirtækinu Brazilian Gypsium. Mennirnir kannast ekkert við það og fulltrúar Trésmíðafélags Reykjavíkur telja þjónustusamninginn ekki vera fokheldan. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BAGDAD, AP Sjónvarpsstöðin al- Jazeera hefur birt myndir af fjór- um friðarsinnum sem eru í haldi samtaka sem kalla sig Sverð rétt- látu herdeildanna. Þá er þýskur fornleifafræðingur og íraskur bílstjóri hennar í gíslingu mann- ræningja. Fjórmenningarnir eru á vegum kristinna friðarsamtaka í Írak sem í yfirlýsingu í gær sögð- ust harma að það sem fólk þeirra berðist fyrir hefði orðið til þess að það væri nú í höndum mann- ræningja. Níu manns létust í skotárás uppreisnarmanna á smárútu í bænum Baqouba í gærmorgun. ■ Uppreisnin í Írak: Myndband birt af gíslunum Í GÍSLINGU Fjórmenningarnir eru frá Kan- ada, Bandaríkjunum og Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.