Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 40
2 ■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Sjöl og treflar
Laugavegi 51 • s: 552 2201
Jólagjöfina
fyrir börnin
færðu hjá
okkur
„Gamli miðbærinn er í senn heim-
ilislegur og heimsborgarlegur. Hér
myndast iðulega vinaleg þorps-
stemning eins og fyrsta daginn þegar
kaupmennirnir í kring komu yfir til
að bjóða okkur velkomin,“ segir Sól-
veig Einarsdóttir, verslunarstjóri í
Bútik í Bankastræti, sem er ný versl-
un í eigu Rammagerðarinnar.
„Bútik opnaði í nóvember, en
hér var áður ferðamannaverslun
Rammagerðarinnar. Við höldum
áfram að stíla inn á ferðamenn sem
eru duglegir að rölta um miðbæinn,
en einnig Íslendinga og ekki síst
miðbæjarfólkið,“ segir Sólveig sem
sjálf býr alsæl í miðbænum.
„Aukning forvitnilegra og flottra
verslana eykst sífellt hér um slóðir
og alltaf skemmtilegra með hverjum
mánuðinum að labba Laugaveg og
niður Bankastræti og Austurstræti.
Miðbærinn er loks að taka við sér
aftur eftir margra ára lægð. Hér
spretta upp sérverslanir sem bjóða
einstæðan varning, sem er gott mót-
vægi við stóru keðjurnar sem finna
má í verslanamiðstöðvum og þar sem
hægt er að fá sama hlutinn í þrjátíu
verslunum víðs vegar um heiminn,“
segir Sólveig, en Bútik selur fyrst og
fremst íslenska hönnun í bland við
sérvaldar vörur frá Skandinavíu.
„Hér fást fágætir og ekki mikið
fjöldaframleiddir hlutir; allur fatn-
aður er íslenskur, en einnig fást hér
loðhúfur frá Finnlandi, selskinn frá
Grænlandi, gjafavörur frá Danmörku
og skart frá Siggu og Tímó,“ segir
Sólveig þar sem hún handfjatlar
hlébarðamunstraða kanínuskinns-
trefla innan um boli og listaverk Jóns
Sæmundar, danskt postulín Anne
Black, handprjónaðar lopapeysur
Bergþóru Guðnadóttur undir merk-
inu Farmers Market og fiskilampa
eftir Dögg Auðunsdóttur og Fanneyju
Antonsdóttur, svo fátt sé upptalið.
„Miðbæjarstemningin er ein-
faldlega frábær en fer auðvitað eftir
veðri, sem svo eykur bara á fjörið.
Það er gaman að skjótast milli búða
til að forðast hríðarbyl og alltaf líf
og fjör í menningarlífinu sem gerir
hverja ferð í bæinn að sannkölluðu
ævintýri.“
Hlébarðamunstruð kanínu-
skinn og finnskar loðhúfur
Art Form selur falleg kaffiglös
hönnuð af Birni Dahlström.
Stykkið kostar 1.640 og fást
glösin í svörtu og grænu.
Voodooman hnífa-
sett. Fæst í Sipa og
kostar 14.990.
Ullarpeysa með
rennilás úr
Handprjónasam-
bandinu. Kostar
11.400 krónur.
Hugmyndir að jólagjöfum
Gjafakort í
Þjóðleikhúsið.
Gjafakort fyrir
einn kostar
2.700 krónur og
5.400 fyrir tvo.
Bókin Jörðin fæst í
Mál og Menningu og
kostar 9.980 krónur.
1928 á Laugavegi er
með fallega muni til
sölu. Stóllinn kostar
14.500 og skemillinn
er á 2.900 krónur.