Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 40

Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 40
2 ■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Sjöl og treflar Laugavegi 51 • s: 552 2201 Jólagjöfina fyrir börnin færðu hjá okkur „Gamli miðbærinn er í senn heim- ilislegur og heimsborgarlegur. Hér myndast iðulega vinaleg þorps- stemning eins og fyrsta daginn þegar kaupmennirnir í kring komu yfir til að bjóða okkur velkomin,“ segir Sól- veig Einarsdóttir, verslunarstjóri í Bútik í Bankastræti, sem er ný versl- un í eigu Rammagerðarinnar. „Bútik opnaði í nóvember, en hér var áður ferðamannaverslun Rammagerðarinnar. Við höldum áfram að stíla inn á ferðamenn sem eru duglegir að rölta um miðbæinn, en einnig Íslendinga og ekki síst miðbæjarfólkið,“ segir Sólveig sem sjálf býr alsæl í miðbænum. „Aukning forvitnilegra og flottra verslana eykst sífellt hér um slóðir og alltaf skemmtilegra með hverjum mánuðinum að labba Laugaveg og niður Bankastræti og Austurstræti. Miðbærinn er loks að taka við sér aftur eftir margra ára lægð. Hér spretta upp sérverslanir sem bjóða einstæðan varning, sem er gott mót- vægi við stóru keðjurnar sem finna má í verslanamiðstöðvum og þar sem hægt er að fá sama hlutinn í þrjátíu verslunum víðs vegar um heiminn,“ segir Sólveig, en Bútik selur fyrst og fremst íslenska hönnun í bland við sérvaldar vörur frá Skandinavíu. „Hér fást fágætir og ekki mikið fjöldaframleiddir hlutir; allur fatn- aður er íslenskur, en einnig fást hér loðhúfur frá Finnlandi, selskinn frá Grænlandi, gjafavörur frá Danmörku og skart frá Siggu og Tímó,“ segir Sólveig þar sem hún handfjatlar hlébarðamunstraða kanínuskinns- trefla innan um boli og listaverk Jóns Sæmundar, danskt postulín Anne Black, handprjónaðar lopapeysur Bergþóru Guðnadóttur undir merk- inu Farmers Market og fiskilampa eftir Dögg Auðunsdóttur og Fanneyju Antonsdóttur, svo fátt sé upptalið. „Miðbæjarstemningin er ein- faldlega frábær en fer auðvitað eftir veðri, sem svo eykur bara á fjörið. Það er gaman að skjótast milli búða til að forðast hríðarbyl og alltaf líf og fjör í menningarlífinu sem gerir hverja ferð í bæinn að sannkölluðu ævintýri.“ Hlébarðamunstruð kanínu- skinn og finnskar loðhúfur Art Form selur falleg kaffiglös hönnuð af Birni Dahlström. Stykkið kostar 1.640 og fást glösin í svörtu og grænu. Voodooman hnífa- sett. Fæst í Sipa og kostar 14.990. Ullarpeysa með rennilás úr Handprjónasam- bandinu. Kostar 11.400 krónur. Hugmyndir að jólagjöfum Gjafakort í Þjóðleikhúsið. Gjafakort fyrir einn kostar 2.700 krónur og 5.400 fyrir tvo. Bókin Jörðin fæst í Mál og Menningu og kostar 9.980 krónur. 1928 á Laugavegi er með fallega muni til sölu. Stóllinn kostar 14.500 og skemillinn er á 2.900 krónur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.