Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Það kemst
enginn fram hjá
Guðna
edda.is
Í þessari skemmtilegu bók er rakinn ferill Guðna í
máli og myndum. Guðni er sagnamaður af guðs náð
og í farsælu samstarfi við Þorstein J. hefur orðið til
frábær bók, sem kætir alla þá sem unna góðum
sögum – fótboltasögum.
„Það eina sem ég hefði viljað hafa öðruvísi
við Guðna Bergsson er að hann hefði verið
miklu yngri þegar ég tók við Bolton-liðinu.
Þá væri hann ennþá að spila.“
Sam Allardyce, framkvæmdastjóri Bolton Wanderers.
„Guðni Bergs er einn erfiðasti
andstæðingur sem ég hef leikið gegn.“
Ruud Van Nistelrooy, framherji Manchester United
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
Kynbundið ofbeldi hefur verið nokkuð til umfjöllunar að
undanförnu. Konur eru beittar sví-
virðilegu ofbeldi um allan heim.
Það er hræðileg staðreynd.
ÚT er komin nokkuð athyglisverð
bók sem fjallar um konur sem
hefna sín á fyrrverandi eiginmönn-
um og kærustum. Þær rispa bílana
þeirra og baka fyrir þá kökur sem
í er tíðablóð, svokallaðar Túrkökur.
Ég las viðtal við höfunda bókarinn-
ar, sem var allt á léttum nótum og
fór að velta fyrir mér hvernig það
liti út ef karlmenn skrifuðu svona
bók. Þar væri hægt að hvetja menn
til að rispa bíla og brjóta rúður hjá
fyrrverandi kærustum og jafnvel
hafa uppskrift að Brundbollum.
Ég er ansi hræddur um að það yrði
allt vitlaust.
BANDARÍSKI hermaðurinn
Lynndie England var dæmd, fyrr
á árinu, í þriggja ára fangelsi fyrir
pyntingar og ofbeldi gegn föngum
í Abu Ghraib fangelsinu í Írak.
Lynndie er kona og fórnarlömb
hennar voru karlmenn. Myndir af
henni þar sem hún teymdi nakta
menn í bandi hafa farið um allan
heim. Henni fannst þetta örugg-
lega fyndið enda kannski orðin
langþreytt á karlrembu samstarfs-
manna sinna.
OFBELDI gegn körlum er dulið
vandamál í íslensku samfélagi.
Margir karlmenn á Íslandi búa
við heimilisofbeldi. Það er fullt
af konum sem beita menn sína
andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Margir menn búa við kúgun og
ofríki á heimili sínu. Það er fjöldi
karlmanna á Íslandi sem fær ekki
eðlilega umgengni við börnin sín
vegna þess að barnsmæður þeirra
meina þeim það. Og hvað með dren-
gi sem eru beittir ofbeldi af mæðr-
um sínum vegna þess að þeim er
illa við karlmenn? Hvað ætli það
sé algengt? Og hvaða viðhorf ætli
slíkir menn hafi til kvenna þegar
þeir fullorðnast?
AFSTAÐAN til ofbeldis gegn
körlum er einkennilega fordóma-
full. Ég sá einu sinni umfjöllun í
Íslandi í dag um karlmenn sem búa
við heimilisofbeldi. Þáttastjórn-
endurnir hlógu þegar þau töluðu
um þetta „skringilega fyrirbæri“.
Það er ekkert skrítið að þetta skuli
vera feimnismál. Karlmaður sem
lætur konuna sína lemja sig, er
hann ekki bara aumingi? Eigum
við ekki bara að hlæja að svoleiðis
mönnum?
ÉG er alls ekki að gera lítið úr
ofbeldi gegn konum. En konur
beita líka ofbeldi. Allir vita að það
er ljótt að meiða fólk. En er í lagi
að meiða menn?
Djöflaterta