Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 75
FIMMTUDAGUR 1. desember 2005 47
Nánari upplýsingar á www.visa.is/visalan
eða í síma 525 2000
Spurðu um
+ Staðgreiðsluverð
+ Lægri vextir
+ Lægri kostnaður
+ Til allt að 36 mánaða
+ Framlengdur ábyrgðartími
+ Flutningstrygging
+ Vildarpunktar
Dreifðu staðgreiðslunni
VISA Lán er ný og hagstæð leið til greiðsludreifingar
við kaup á vörum eða þjónustu.
– HAGSTÆÐAR AFBORGANIR
Ný
tt!
Veitingastaðurinn Grillið á efstu hæð Radisson SAS
Hótel Sögu hefur valið Bollinger kampavín desem-
bermánaðar annað árið í röð. Það er engin tilvilj-
un að Sævar Már Sveinsson veitingastjóri og einn
af okkar bestu vínþjónum velur Bollinger í þess-
um mikilvæga mánuði. Gæði og fágun Bollinger
kampavínsins smellpassa einfaldlega inn í þann
metnað og fullkomnun sem ræður ríkjum á Grill-
inu, þar sem aðeins það besta er nógu gott fyrir
gestina.
Sagt er að Bollinger sé stíllinn holdi klæddur.
Það er alveg öruggt að Bollinger höfðar til allra
sem eru miklir vínunnendur, vegna einstakra eig-
inleika þessa fágaða kampavíns. Árið 1829 stofnaði
Jacques Bollinger kampavínshúsið ásamt félaga
sínum Athanase de Villermont. Fjölskyldan á og
rekur ennþá fyrirtækið og heldur fast í hefðirnar
með því að framleiða eingöngu gæðakampavín.
Gaman er að geta þess að Bollinger hefur í árar-
aðir verið eftirlætis kampavín James Bond enda
er hann smekkmaður mikill hvað varðar kvenfólk,
bíla og kampavín!
Enn eitt árið hafa matreiðslumeistarar Grillsins
farið fram úr sjálfum sér og sett saman glæsilegan
jólamatseðil sem verður á boðstólunum frá og með
deginum í dag.
Hægbakaður kóngakrabbi með aspas og kryddjurtasalati.
Sandhverfa með steinseljumauki.
Strútur með glöggsósu.
Heit súkkulaðisúpa með kanilís.
Hnetu og ástríðuávaxtamús með mandarín-ískrapi.
Verð á þessari glæsilegu máltíð er einungis 7.500
kr.
Að viðbættum 3.900 kr. er hægt að fá vín með sem
eru sérvalin af Sævari Má veitingastjóra og henta
hverjum rétti fyrir sig.
Bollinger er kampavín mánaðarins í Grillinu
VEITINGASTAÐURINN
ANGELO
LAUGAVEGI 22A, 101 R-VÍK
Rólegur og
ferskur
Hvernig er stemning-
in? Andrúmsloftið er
blandað rólegum und-
irtóni og snert af fersk-
leika sem maður verður var við um
leið og gengið er inn. Litur veggj-
anna setur tóninn fyrir þá ímynd
sem staðurinn býður upp á. Dökk-
fjólubláir veggirnir og dimm birtan
ásamt kertum í tugatali gefur fyrir-
heit um rómantískar og afslappað-
ar stundir. Hægt er að mæla sér-
staklega með sófasettunum baka
til ef fólk er á hægu nótunum og
vill njóta meira næðis. Nýlega var
anddyri veitingastaðarins stækkað
svo að mögulega verður hægt að
auka við borðum.
Matseðillinn: Hægt er að fá nán-
ast allt sem hugurinn girnist. Meðal
annars er boðið upp á svokallaðar
Himnadrumbur sem eru kjúklinga-
leggir með jalapeno og sósu úr
sólþurrkuðum tómötum. Einnig er
hægt að fá hefðbundna kjötrétti
svo sem piparsteik og lambakjöt.
Þá er boðið upp á kræklinga og
lax.
Vinsælast: Þar sem nýlega var skipt
um matseðil er ekki komin mikil
reynsla á vinsælasta rétt hússins.
Yfirþjónninn mælir þó með Himna-
drumbunum sem rétt sem verðugt
sé að bragða á. Stefnt verður að
því að hafa svokallaðan Boost-bar í
hádeginu þar sem menn geta skellt
í sig heilsudrykkjum og annarri
hollustu.
Réttir hússins: Rétt er að minn-
ast á Sjávarréttaveislu Angelo sem
er með glæsilegasta móti. Þar er
boðið upp á hvítlauksgrillaðan lax,
pipraða ýsu ásamt humarhölum,
risarækjum og grænmeti sem er
borið fram með hvítvíni hússins.
Annar sérréttur Angelo er hvalkjöt
í whiskey-sósu með eggaldin og
kartöflum.
VEITINGASTAÐURINN ANGELO