Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 53
[ ]
Ný kynslóð heilsubótar
100% náttúrulegt og virkar vel
á bakverki, vöðvabólgu,
tíðarverkjum og önnur eymsl.
Heilsuhitapokinn
Sölustaðir: Garðheimar, Heilsudrekinn, Snyrtistofa Rósu, Blóm er list, Hlín blómahús,
í húsi blóma, Dekurstofan kringlan, Englakroppar,Runni studio blóm Galleri Húsgögn,
Snyrtistofan Helena Fagra, Snyrtistofan Ásýnd, Snyrtistofa Grafarvogs, Snyrtilindin.
JÓLAGJÖFIN Í ÁR
Frí heimsending • Pöntunarsími: 554-6999
www.jumbo.is
Kertaljós eru alveg málið núna. Desember er byrjaður og það
má fara að koma sér í jólaskap með því að kveikja á kertum.
Fullveldiskakan kemur í bakaríin í
tilefni af fullveldisdeginum 1.des.
Árleg jólasala iðjuþjálfunar geð-
deildar verður haldin á fyrstu hæð
í geðdeildarhúsi Landspítalans við
Hringbraut milli kl. 12.00-15.30.
Frúin í Hamborg opnar sýningu
á Mokka á myndum sem prýddu
nánast hvert heimili á Íslandi á árum
áður. Fyrsta sýningin verður á mynd-
inni af grátandi drengnum.
Léttsveit Reykjavíkur heldur árlega
jólatón- leika sína í Langholts-
kirkju kl. 20.30.
Einsöngvari er
Ragnheiður
Gröndal.
Aðventu-
tónleikar
Sinfóníu-
hljómsveit-
ar Íslands
kl. 20.
Á jóladöfinni }
1. desember
Glaðir í bragði
Mín skoðun
JÓLAKÖTTURINN TEKUR TIL MJÁLMS
Já, já, nú er það loksins skollið
á. Jólafárið með öllu tilheyrandi.
Mannfólkið þýtur til og frá eins
og ofvaxnar mýs, tístir eitthvað
sín á milli en heldur svo áfram
á þönum; að fara eitthvað, gera
eitthvað, vera eins og fólkið í
blöðunum eða bara allir hinir.
Ég er búinn að fara minn fyrsta
hring í verslanamiðstöðvunum
til að kynna mér hvað er helst í
tísku, svona til að vera undir það
búinn að sinna skyldum mínum
þegar nær dregur. Maður hefur
nú einu sinni mannorð til að
vernda þó svo ég eigi aldrei
eftir að geta torgað öllum sem
verða ekki í nýjustu tísku þessi
jól frekar en mörg undanfarin.
Annars sýnist mér tískan um
þessi jól nú vera svona og svona.
Svart er tískuliturinn í ár sam-
kvæmt blöðunum sem ég klóra
mig fram úr á morgnanna, svart
með palíettum, hvítt með gulli
og allar samsetningar af þessu
fernu. Ekki mjög upplífgandi
en það er þó bót í máli að það
verður auðveldara að finna þá
sem eru hallærislegir og þrjósk-
ast við að vera í litskrúðugum
fötum þessi jól, einkum ef það
fer einhvern tíma að snjóa. Þeir
sem klæða sig í liti eru yfirleitt
glaðari á bragðið af einhverjum
ástæðum, Hæ, hæ ég hlakka til!