Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 48
Laugavegur 17 og Kringlunni
Sími 552-6744 og 588-6750
Full bú› af fallegum jólafötum
Vetur
■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
„Persónulega líður mér best í mið-
bænum því gamla Reykjavík er kósí
íverustaður. Maður þekkir andlit-
in sem mæta manni og hvarvetna
liggja töfrar í loftinu, sem ekki fást
nema með sögu fortíðar; fólkinu
sem á undan er gengið og húsunum
sem öll geyma sínar sögur,“ segir
rokkgoðið Krummi úr Mínus, þar
sem hann situr bak við afgreiðslu-
borðið í „second hand“-búðinni
Elvis á Vatnsstígnum.
„Elvis var kóngurinn og braut-
ryðjandi í tísku eins og öðru. Þar
er komin gild ástæða fyrir nafngift-
inni auk þess sem allir strákar elska
Elvis. Búðin opnaði fyrir rúmum
mánuði og er í eigu Spútnik, eins og
Rokk og rósir sem er hugsuð fyrir
stelpur en Elvis er strákabúð,“ segir
Krummi og lofar viðtökur búðar-
innar sem þó er hálfpartin falin í
hliðargötu við Laugaveginn.
„Það er að sumu leyti viljandi
gert að ekki ber mikið á búðinni og
þykir dálítið kúl að leita sérstakar
búðir uppi, en fólk mun vissulega
taka eftir henni í framtíðinni. Elvis
er í gamla húsnæði Dúns og fiðurs,
sem er virðulegt hús með góðum
anda og mikilli menningu sem
umvefur búðina, eins og einkenn-
ir reyndar allan miðbæinn,“ segir
Krummi með staðfestu.
„Hingað koma strákar í góðu tómi
og kaupa sér föt sem hvergi fást ann-
ars staðar. Vinsælastar eru kúreka-
skyrtur, þröngar gallabuxur og stakir
jakkar, en „second hand“-búðir hafa
áratugum saman verið vinsælar í
útlöndum, þótt þær hafi ekki rutt sér
rúms hérlendis fyrr en fyrir áratug
eða svo. Fólk frá unglingsaldri og
upp í þrítugt kaupir sér gjarnan notuð
sem og ónotuð gömul föt í „second
hand“-búðum því þannig má finna
tískustrauma fyrri tíma, eins og
jakkaföt sem enginn annar á og allt
sem hugurinn girnist ef menn vilja
klæða sig vel og líta vel út fyrir sjálfa
sig og aðra,“ segir Krummi innan um
ómótstæðilegar flíkur allt frá sjötta
áratugnum og til þessa dags.
„En þótt Elvis sé nafngiftin fást
hér engin sérstök Elvisföt eða sam-
festingar. Bara föt sem láta mönn-
um líða eins og þeir hafi farið til
klæðskera, án þess að taka mál eða
bíða eftir saumaskapnum,“ segir
Krummi brosmildur.
Tískustraumar liðinna tíma