Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 68
 1. desember 2005 FIMMTUDAGUR ! um a›JÓL G ALIÐ! DVD SPILARI BÍÓMIÐAR GEISLAPLÖTUR HEIMABÍÓ JÓLAKONFEKT UPPTÖKUVÉL MYNDAVÉL GSM SÍMAR TÖLVUR MP3 SPILARAR BUZZ TÖLVULEIKUR DVD MYNDIR TÖLVULEIKIR PS2 OG PSP TÖLVUR Vinningar ver›a afhentir hjá BT Smáralind 19-23.desember milli kl 12-22. 99 kr/skeyti›. Me› flátttöku ertu kominn í SMS klúbb. AÐALAVINNINGUR ER JÓLAPAKKI HANDA ALLRI FJÖLSKYLDUNNI! MEDION 42" PLASMASÓJNVARP + MEDION V8 TÖLVA + 19" TFT TÖLVUSKJÁR + SONY CYBERSHOT MYNDAVÉL+ PS2 TÖLVA + PANASONIC MINIDV + PANASONIC HEIMABÍÓ OG 10 x DVD MYNDIR AF EIGIN VALI! 10. hver vinnur eitthva› af flessu hér: MEDION V8 X2 tölvur • PANASONIC heimabíó • Denver DVD spilarar • PANASONIC miniDV tökuvélat • Sony Stafrænar myndavélar • GSM símar • Jólaís Kjörís • PSP tölva • Sony MP3 spilarar • Konfekt frá Nóa Síríus • PlayStation 2 tölvur • Bíómi›ar fyrir tvo á The Family Stone • Fullt af geislaplötum • CocaCola kippur • Fullt af DVD • Víking Malt kippur • Fullt af tölvuleikjum • Frí ADSL áskrift hjá BTnet! að verðmæ ti 550.000,- Sendu SMS skeyti› BT BTV á númeri› 1900 og flú gætir unni›! Vi› sendum flér spurningu tengda BT og jólunum sem flú svarar me› SMS skeyti BT A, B e›a C á númeri› 1900. vinnur! JÓLAÍS KÓK OG MALTÖL ADSL ÁSKRIFTIR Kl. 19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur barokktónlist á aðventutónleikum sínum í Háskólabíói. Stjórnandi verður Harry Bicket, einsöng syngur Hallveig Rúnarsdóttir sópran og þeir Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleik- ari og Matthías Nardeau óbóleikari leika einleik. Hundrað og sextíu konur ætla að syngja jólalög frá ýmsum heimshornum í Langholtskirkju í kvöld. Þar er á ferðinni kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur ásamt Ragnheiði Gröndal og valinkunnum hljóðfæraleikurum. „Kosturinn er sá að maður hefur það að atvinnu að gleðja aðra og syngja jólin inn,“ segir Jóhanna Þórhallsdóttir, stjórnandi kvenna- kórsins Léttsveitar Reykjavíkur. Hún hefur nóg að gera þessa dag- ana, eins og annað tónlistarfólk, því aðventan er skollin á með jólatónleikum á nánast hverju horni. „Maður er úti um allt, en þetta er líka óskaplega gefandi og skemmtilegt. Maður er strax kominn í jólaskapið.“ Léttsveitin heldur sína jólatón- leika í Langholtskirkju í kvöld og á laugardaginn og hafa tónleikarnir yfirskriftina „Jólin alls staðar“. Með kórnum syngur Ragnheiður Gröndal einsöng, en hljóðfæra- leikarar kvöldsins eru Haukur Gröndal, Eyjólfur Þorleifsson, Kristín J. Þorsteinsdóttir, Tómas R. Einarsson og Aðalheiður Þor- steinsdóttir, undirleikari kórsins. „Við ætlum að flytja jólalög úr ýmsum áttum, spænsk og afrísk og íslensk. Ragnheiður syngur meðal annars Ave Maríu eftir Sigvalda Kaldalóns og svo syngur hún sín eigin lög.“ Kórinn hefur haldið upp á tíu ára afmæli sitt á þessu ári með ýmsu móti. Meðal annars gerði Silja Hauksdóttir kvikmynd um kórinn, sem frumsýnd var í haust og heitir einfaldlega Kórinn. Einnig er kór- inn að gefa út disk, sem væntan- legur er á markað í dag. „Það er ekki jólaplata,“ segir Jóhanna, „heldur eru þetta tón- leikaupptökur frá síðastliðnum tíu árum. Upptökur með ýmsum listamönnum eins og til dæmis Rússibönum, Snorra Wium, Wilmu Young og náttúrlega Tomma og Öllu sem fylgja okkur alltaf.“ LÉTTSVEIT REYKJAVÍKUR Syngur jólalög frá ýmnsum heimshornum í Langholtskirkju. Strax komnar í jólaskapið Þeir Kristinn Sigmundsson söngv- ari og Jónas Ingimundarson píanó- leikari halda námskeið í túlkun sönglaga dagana 6. til 9. desember í Salnum í Kópavogi. Gert er ráð fyrir allt að tíu virkum þátttakendum sem fá að njóta leiðsagnar þeirra Krist- ins og Jónasar í túlkun íslenskra sönglaga og þýskra ljóðasöngva. Námskeiðið hefst með ljóð- atónleikum þeirra Kristins og Jónasar þriðjudagskvöldið 6. desember þar sem þeir flytja ljóðaflokkinn Schwanengesang eftir Schubert. Námskeiðið sjálft stendur síðan yfir miðvikudaginn og fimmtudaginn kl. 9.30 til 16.30, og loks lýkur því með tónleikum þátttakenda föstudagskvöldið 9. desember. Öllum er frjálst að fylgjast með námskeiðinu og er aðgangur ókeypis. Sömuleiðis er ókeypis aðgangur að tónleikum þátttak- enda á föstudagskvöldinu. Verð fyrir virka þátttöku á námskeiðinu, með tilsögn og áheyrn, kostar hins vegar 15.000 krónur og umsóknarfrestur er til 5. desember. Námskeiðið er haldið á vegum Ljóðaakademíu Salarins, sem Kristinn hafði frumkvæði að því að stofna síðastliðið vor. Þá héldu þeir Jónas meistaranámskeið í Salnum með svipuðu fyrirkomu- lagi og nú fyrir unga söngvara og langt komna söngnemendur. JÓNAS INGIMUNDARSON OG KRISTINN SIGMUNDSSON Þeir bjóða öllum að fylgjast með þegar þeir veita ungum söngvurum leiðsögn á ljóðasöngsnámskeiði, sem þeir halda í næstu viku. Kenna hvernig á að syngja ljóð menning@frettabladid.is > Ekki missa af ... ... karlaráðstefnu um jafnréttismál sem haldin verður í Salnum í Kópavogi núna fyrir hádegi í dag. Eina konan sem þar talar verður Vigdís Finnbogadóttir. ... tónleikum tenóranna þriggja, Gunnars Guðbjörnssonar, Snorra Wium og Jóhanns Friðgeirs Valdimarssonar. ... Dagskrá umhverfissinna í Dómsalnum í boði Fræðsludeildar Þjóðleikhússins þar sem rithöfundar lesa upp og Sigríð- ur Þorgeirsdóttir heimspekingur heldur erindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.