Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 42
■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4
Fallegt á hilluna inni í
eldhúsi. Hver dós kostar
aðeins 1.350 kr.
Hugmyndir að jólagjöfum
Þetta belti líkist
helst lífsstykki og er einstak-
lega fallegt við sæta skyrtu.
Fæst í Rokki og rósum á
3.900 kr.
Laugaveg 53, s. 552 3737 • Opið til 18 laugard. og sunnud. kl. 13 -18
Erum
að taka
upp
nýjar
vörur
Súfistinn á Laugavegi 18 er lítið
og snoturt kaffihús í hjarta borg-
arinnar. Þegar kafaldsbylur hylur
hæð og lægð er tilvalið að detta
inn á Súfistann, sem staðsettur er
á efri hæð Máls og menningar, og
fá sér kaffibolla, cappuchino eða
heitt súkkulaði til fá yl í kropp-
inn.
Nú í byrjun desember eru starfs-
menn í óða önn að koma upp jóla-
skreytingum og öðru sem tilheyrir
hátíð ljóss og friðar. Samkvæmt
Rakel Björg Guðmundsdóttur,
starfsmannastjóra Súfistans, leggja
starfsmenn staðarins sig í líma
við að framkalla góða stemningu
á staðnum með það að leiðarljósi
að fólki finnist þægilegt að setjast
niður og fá sér nokkra dropa. ,,Við
leggjum mikla áherslu á að á staðn-
um sé afslappað andrúmsloft sem
auðvelt og þægilegt er að koma í.
Starfsfólkið okkar leggur sig fram
við að reyna að vera alúðlegt við
fólkið í stressinu. Það má því segja
að mottóið okkar sé að reyna að
afstressa fólkið áður en það heldur
áfram verslunarleiðangrinum úti í
kuldanum.“
Að sögn Rakelar er komin tölu-
verð jólatemning í miðbæinn og
Súfistinn fer ekki varhluta af því.
,,Við höfum tekið eftir því undan-
farið að það hefur verið töluverð
aukning og þá sérstaklega um helg-
ar. Það er greinilegt að almenn-
ingur er að taka við sér varðandi
jólaundirbúning því við sjáum mun
meira fólk á ferli nú en áður. Það
er líka greinilegt að jólastressið er
komið í fólk.“
Að sögn Rakelar hefur ýmis-
legt verið að gerast á Súfistanum í
vetur. ,,Vð höfum verið með tölu-
vert af upplestrum yfir vetrartím-
ann þar sem höfundar koma og lesa
úr verkum sínum. Það er mikið af
sjálfstæðum verkefnum sem þessi
litlu forlög hafa verið að standa
að, eins og t.d. bókaútgáfan Bjart-
ur. Við höfum einnig verið í mjög
góðu samstarfi við Eddu útgáfu og
svo er bókabúðin hérna fyrir neðan.
Það er því alltaf eitthvað að gerast,
sérstaklega á veturna“.
Það má búast við því að tölu-
vert verði um að vera í desember á
Súfistanum þar sem hið árlega jóla-
bókaflóð stendur nú sem hæst og
höfundar keppast við að lesa upp úr
verkum sínum.
Að sögn Rakelar er Súfistinn
einnig með annað kaffihús í Hafn-
arfirði undir sama nafni og þar er
reynt að hafa dagskrá svipaða þeirri
sem er á Laugaveginum. ,,Við erum
alltaf með reyklaus hádegi á milli
11.30 og 13.00. Einnig er alla virka
daga boðið upp á hádegisverðartil-
boð sem er súpa, réttur dagsins og
kaffi á 990 kr. Þá er einnig boðið
upp á lifandi tónlist öll miðviku-
dagshádegi og þá spilar Hjörleifur
Valsson fiðluleikari ljúfa tóna með
góðum gestum“ segir Rakel að
lokum.
Það er því óhætt að segja að
Súfistinn skili sínu þegar kemur að
því að dæla kaffi og rólegheitum í
stressaðan landann.
Mottóið er afslöppun og
rólegheit
Þróunarfélag miðborgarinnar hefur komið á fót sameiginlegu
gjafakorti fyrir verslanir og þjónustufyrirtæki í miðborginni.
Fjölmörg fyrirtæki taka við gjafakortinu, sem fæst keypt í
Pennanum Eymundssson í Austurstræti, Bókabúð Máls og
menningar á Laugvegi, Skífunni við Laugaveg, Iðu í Lækjar-
götu og í bókabúðinni við Hlemm. Auk þess er hægt að kaupa
gjafakortið í gegnum síma, og fá það sent hvert á land sem er.
Símanúmerið er 8 28 28 28 og er opið allan sólarhringinn.
Stór hluti verslana í miðborginni tekur við gjafakortinu og má sjá
lista yfir þær verslanir á vefsíðunni www.midborg.is.
gjöf í miðborgina
Losnaðu undan áhyggjunum af að
velja réttu gjöfina og gefðu gjafakort
Fáðu þér göngutúr í miðbænum og njóttu jóla-
stemningarinnar á meðan þú kaupir gjafirnar.
Á Laugaveginum og hliðargötum er allt mor-
andi af litlum sætum búðum sem er hægt
að finna gersemar í. Fréttablaðið fann
nokkrar gjafir sem kosta allar minna en
fimmþúsundkall.
Upplestrar eru á
nýjum bókum fyrir
jólin á Súfistanum.
Yndis-
lega hlýir
mokkasokkar fyrir
þægilegheit heima við á
jólunum.. Fást í Handprjóna-
sambandi Íslands á 3.510 kr.
Í Frú fiðrildi er hægt að
finna dásamlega hluti
fyrir heimilið. Kúpull-
inn er á 2.790 kr. og
bakkinn á 1.500 kr.
ÍSLENSK HÖNNUN & FRAMLEIÐSLA
Laugavegi 59 • 3. hæð Kjörgarði • 561 5588
Sundföt sem passa
Gjafabréf