Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 48

Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 48
Laugavegur 17 og Kringlunni Sími 552-6744 og 588-6750 Full bú› af fallegum jólafötum Vetur ■■■■ { miðborgin & jólin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ „Persónulega líður mér best í mið- bænum því gamla Reykjavík er kósí íverustaður. Maður þekkir andlit- in sem mæta manni og hvarvetna liggja töfrar í loftinu, sem ekki fást nema með sögu fortíðar; fólkinu sem á undan er gengið og húsunum sem öll geyma sínar sögur,“ segir rokkgoðið Krummi úr Mínus, þar sem hann situr bak við afgreiðslu- borðið í „second hand“-búðinni Elvis á Vatnsstígnum. „Elvis var kóngurinn og braut- ryðjandi í tísku eins og öðru. Þar er komin gild ástæða fyrir nafngift- inni auk þess sem allir strákar elska Elvis. Búðin opnaði fyrir rúmum mánuði og er í eigu Spútnik, eins og Rokk og rósir sem er hugsuð fyrir stelpur en Elvis er strákabúð,“ segir Krummi og lofar viðtökur búðar- innar sem þó er hálfpartin falin í hliðargötu við Laugaveginn. „Það er að sumu leyti viljandi gert að ekki ber mikið á búðinni og þykir dálítið kúl að leita sérstakar búðir uppi, en fólk mun vissulega taka eftir henni í framtíðinni. Elvis er í gamla húsnæði Dúns og fiðurs, sem er virðulegt hús með góðum anda og mikilli menningu sem umvefur búðina, eins og einkenn- ir reyndar allan miðbæinn,“ segir Krummi með staðfestu. „Hingað koma strákar í góðu tómi og kaupa sér föt sem hvergi fást ann- ars staðar. Vinsælastar eru kúreka- skyrtur, þröngar gallabuxur og stakir jakkar, en „second hand“-búðir hafa áratugum saman verið vinsælar í útlöndum, þótt þær hafi ekki rutt sér rúms hérlendis fyrr en fyrir áratug eða svo. Fólk frá unglingsaldri og upp í þrítugt kaupir sér gjarnan notuð sem og ónotuð gömul föt í „second hand“-búðum því þannig má finna tískustrauma fyrri tíma, eins og jakkaföt sem enginn annar á og allt sem hugurinn girnist ef menn vilja klæða sig vel og líta vel út fyrir sjálfa sig og aðra,“ segir Krummi innan um ómótstæðilegar flíkur allt frá sjötta áratugnum og til þessa dags. „En þótt Elvis sé nafngiftin fást hér engin sérstök Elvisföt eða sam- festingar. Bara föt sem láta mönn- um líða eins og þeir hafi farið til klæðskera, án þess að taka mál eða bíða eftir saumaskapnum,“ segir Krummi brosmildur. Tískustraumar liðinna tíma

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.