Fréttablaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 62
1. desember 2005 FIMMTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Jón Leví Jónsson
húsasmíðameistari,
til heimilis að Sundstræti 31 A, Ísafirði, verður jarð-
sunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 3. desember
kl. 14.00.
Anna Sigríður Kristjánsdóttir
Ragnhildur Guðný Flyger, Henning Beck Flyger
Matthías Kristinsson, Björk Gunnarsdóttir
Sigríður Júlíana Kristinsdóttir, Jens Andrés Guðmundsson
Bjarney Kristinsdóttir Vatne, Øystein Vatne
Guðmundur Kr. Kristinsson, Elsa Jóna Sveinsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðrún Sigurðardóttir
Fossheiði 4, Selfossi,
lést sunnudaginn 27. nóvember. Jarðarförin fer fram frá
Selfosskirkju laugardaginn 3. desember kl. 15.30.
Ásbjörn G. Guðmundsson Hólmfríður Erlingsdóttir
Erla Þorsteinsdóttir Gísli Ágústsson
Dröfn Halldórsdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
MERKISATBURÐIR
1878 Reykjanesviti, fyrsti vitinn
hér á landi, er tekinn í
notkun.
1918 Ísland verður fullvalda ríki.
1955 Blökkukonan Rosa Parks er
handtekin þegar hún neitar
að standa upp fyrir hvítum
manni í almenningsvagni.
1976 Síðustu bresku togararnir
halda af Íslandsmiðum
samkvæmt samkomulagi
um viðurkenningu á 200
mílna fiskveiðilögsögunni.
1983 Rás 2 hefur útsendingar.
1986 Bylgjan hefur útsendingar
allan sólarhringinn.
1994 Þjóðarbókhlaðan er tekin í
notkun.
DAVID BEN GURION (1886-1973)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Hugrekki er vitneskjan
um hvernig eigi að óttast
það sem þarf að óttast
og hvernig ekki eigi að
óttast það sem ekki þarf
að óttast.“
DAVID BEN GURION VAR FYRSTI
FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSRAELS.
Á þessum degi árið 1934 var
Sergei Kirov, leiðtogi í rúss-
nesku byltingunni og háttsettur
yfirmaður í framkvæmdastjórn
sovéska kommúnistaflokksins,
skotinn til bana á skrifstofu sinni í
Leníngrad. Banamaður Kirovs var
Leonid Nikolaiev, félagi í komm-
únistaflokknum. Talið er líklegt að
morðið hafi verið runnið undan
rifjum leiðtoga Sovétríkjanna,
Jósefs Stalín.
Hver svo sem þáttur Stalíns var
í morði Kirovs er ljóst að hann
notaði tækifærið til að hreinsa
ærlega til í kommúnistaflokknum,
hernum og leynilögreglunni.
Morðið á Kirov leiddi til sjö
mismunandi réttarhalda auk
handtöku og aftöku hundruða
merkra manna úr stjórnmálum,
hernum og menningarlífinu. Hvert
réttarhaldanna var í mótsögn við
hið næsta og margir einstakl-
ingar voru fundnir sekir um að
hafa komið á ýmsan hátt að
skipulagningu á morðinu á Kirov
og af mismunandi pólitískum
ástæðum.
Morðið markaði upphaf fjögurra
ára hreinsunar Stalíns í sovésku
samfélagi þar sem milljónir Sov-
étmanna voru fangelsaðir, sendir í
útlegð eða drepnir.
ÞETTA GERÐIST > 1. DESEMBER 1934
Sergei Kirov myrtur
SERGEI KIROV
Í ár eru 100 ár liðin frá því iðnskóla-
kennsla hófst með kvöldskóla iðnað-
armanna á Ísafirði. Því verður efnt
til hátíðar í verkmenntahúsi Mennta-
skólans á Ísafirði um leið og því verð-
ur fagnað að á þessu ári hóf göngu
sína ný húsasmíðabraut sem markar
tímamót í sögu skólans þar sem hún
verður fyrsta verkmenntabrautin sem
útskrifar fullnuma sveina frá skólan-
um.
„Um aldamótin 1900 var Ísafjarð-
arkaupstaður annar eða þriðji stærsti
bær landsins og var þar fjölbreytt
starfsemi iðnaðarmanna og verslana,“
segir Sigurður Pétursson, sagnfræð-
ingur og verkefnisstjóri afmælishátíð-
arinnar, um það hvernig útlits var við
upphaf iðnmenntunar á Ísafirði.
„Upp úr 1902 þegar vélbátarnir
komu varð hér gríðarleg íbúafjölgun og
næstu tíu árin fjölgaði um 800 manns.
Í kringum vélbáta þróuðust vélsmiðj-
ur og húsbyggingar. Iðnaðarmönnum
fjölgaði og þeir tóku mun fleiri nema
en var áður,“ segir Sigurður en upphaf
iðnmenntunar á Ísafirði má rekja til
stofnunar Iðnaðarmannafélags Ísfirð-
inga árið 1888 sem hafði forgöngu um
iðnskóla á Ísafirði með stofnun teikni-
skóla veturinn 1905. Haustið 1905 var
settur á fót Kvöldskóli iðnaðarmanna
með kennslu í íslensku, dönsku, ensku,
reikningi, bókfærslu og teikningu, en
skólahald fékk inni í barnaskólahúsinu
fyrstu árin. Má segja að Ísfirðingar
hafi verið frumkvöðlar í iðnnámi því
aðeins Iðnskólinn í Reykjavík er eldri
en sá á Ísafirði.
Á fyrstu árum skólans voru nem-
endur frá tíu upp í tuttugu talsins
en fjölgaði eftir 1920. Árið 1912 var
kvöldskólanum breytt í tveggja vetra
nám en árið 1970 fékk skólinn húsnæði
til eigin þarfa um leið og honum var
breytt í dagskóla.
Kennsla Iðnskólans var sameinuð
Menntaskólanum á Ísafirði frá árinu
1987 og starfsemin sett undir eina
stjórn. Árið 1995 var nýtt verkmennta-
hús tekið í notkun á lóð Menntaskól-
ans á Ísafirði en í dag stunda tæp-
lega fjörutíu nemendur verknám við
menntaskólann. Sigurður segir það
stefnu skólans að fjölga nemendum
enda sé mikil þörf fyrir iðnaðarmenn
á svæðinu, sérstaklega í málmsmíði.
„Við vonumst til að það verði einhver
aukning þannig að það verði hægt að
þjóna atvinnuvegunum hérna í málm-
smíði, trésmíði og vélstjórn, og von-
andi bæta við enn fleiri greinum,“
segir Sigurður, en afmælisins verður
minnst með hátíðardagskrá í verk-
menntahúsi skólans á morgun milli
17.00 og 19.00. Þá verður efnt til sýn-
ingar á verkfærum, munum og skjöl-
um sem tengjast iðnaðarmönnum,
iðnmenntun og Iðnaðarmannafélagi
Ísfirðinga og settur upp minningar-
skjöldur um félagið og veggspjald um
iðnskóla á Ísafirði í hundrað ár.
IÐNSKÓLI Á ÍSAFIRÐI: Í HUNDRAÐ ÁR
Iðnmenntun í heila öld
BLÓMLEGT IÐNNÁM Hér etja þeir Þorbjörn Jóhannsson og Guðmundur Kristinn Albertsson kappi í málmsuðukeppni iðnnema Menntaskólans á Ísafirði.
ANDLÁT
Sóley Þórarinsdóttir frá Suðureyri
við Tálknafjörð, lést fimmtudaginn
24. nóvember.
Elínborg S. Hannesdóttir (Rósa),
Vífilsstöðum, áður Rauðagerði 20,
lést þriðjudaginn 29. nóvember.
JARÐARFARIR
11.00 Sigurjón Stefánsson
skipstjóri, Austurbrún 33,
Reykjavík, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
15.00 Nanna Þuríður Þórðar-
dóttir frá Siglufirði, Safa-
mýri 55, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
15.00 Sigríður Erla Þorláksdóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnar-
firði, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
AFMÆLI
Kristján Þórður
Hrafnsson rithöfundur
er 37 ára.
Sigurður G. Tómasson
fjölmiðlamaður er
55 ára.
Bette Midler söng-
og leikkona er sextug.
Woody Allen leik-
stjóri er sjötugur.
Háskólinn á Akureyri held-
ur sína árlegu fullveldishá-
tíð í dag og að vanda verður
Íslandsklukkunni hringt við
það tækifæri. Hátíðardag-
skráin hefst klukkan 16 í
húsnæði háskólans á Sólborg
með tónlist, söng og töluðu
máli. Á meðal þeirra sem
þar koma fram verður Páll
Magnússon útvarpsstjóri
en hann mun flytja erindi
um fullveldi og fjölmiðlun.
Í dagskrárlok verður boðið
upp á veitingar og eru allir
velkomnir.
Íslandsklukkan hringir
BJALLAN GLYMUR Sverrir Pálsson, fyrrverandi skólastjóri Gagnfræðaskóla
Akureyrar, mun hringja Íslandsklukkunni fimm sinnum í dag fyrir árið 2005.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Í tilefni þess að sextíu ár eru
liðin frá stofnun Sambands
íslenskra sveitarfélaga býð-
ur sambandið til ráðstefnu
um stöðu og þróun hins
staðbundna lýðræðis. Ráð-
stefnan ber heitið Lýðræði
í sveitarfélögum - fjöregg
eða fögur orð? og verður
haldin á Grand Hóteli 2.
desember.
Meðal þeirra sem taka
til máls eru forseti Íslands,
félagsmálaráðherra og
umboðsmaður Alþingis. ■
Fjöregg eða
fögur orð
BJALLAN GLYMUR Sverrir Pálsson,
fyrrverandi skólastjóri Gagnfræða-
skóla Akureyrar, mun hringja
Íslandsklukkunni fimm sinnum í
dag fyrir árið 2005.
Fréttablaðið/KK
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristvin Jósúa Hansson
húsasmíðameistari, Efstasundi 94
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
2. desember kl. 15.00.
Anna G. Hallsdóttir
Þorbjörg Kristvinsdóttir Bjarni B. Sveinsson
Höskuldur Kristvinsson Barbara J. Kristvinsson
Hallur Kristvinsson Sigrún Einarsdóttir
Katla Kristvinsdóttir Jóhann Thoroddsen
barnabörn og barnabarnabörn