Fréttablaðið - 01.12.2005, Qupperneq 76
1. desember 2005 FIMMTUDAGUR48
Gallar fullveldis
Ef við værum ennþá
hluti af danska kon-
ungsveldinu:
Þjóðarrétturinn væri fleskesteg en
ekki úldinn súrmatur frá víkingaöld
sem útlendingar þvinga
ofan í sig.
Við hefðum sigrað
Eurovision og gætum
sungið Fly on the
Wings of Love með
gleði í hjarta.
Við gætum keypt
bjór úti í búð og
stundum undir borðið
í sjoppum í stað þess
að búa við fastan lok-
unartíma Ríkisins eða
Vínbúða.
Það skipti engu hvort Olíufélög-
in hefðu svínað á okkur. Við værum
hvort eð er búin að læra það af herra-
þjóð okkar að hjólhesturinn nýtist
best.
Matarverðið setti ekki fjölskyld-
urnar á hausinn.
Við ættum eitt skemmtilegasta
knattspyrnulið Evrópu og Eiður Smári
gæti alið með sér
þann draum að
komast á HM sem
hugsanlega kynni að
rætast.
Skáldin okkar þurfa
ekki að óttast Bláu hönd-
ina og yfirvaldið getur ekki
kallað þau á teppið þar sem
það fæli í sér ferðakostnað
uppá tugi þúsunda.
Kvikmyndir eins og Opinberun
Hannesar og Í takt við tímann hefðu
aldrei fengið styrk frá Kvikmyndasjóði.
SIGN BLOGGAR FRÁ TÓNLEIKAFERÐ SINNI UM LANDIÐ
Stripplingar í Grettislaug
Ef þú kaupir túpu af glossi hjá
einum af söluaðilum okkar
daganna 1. til 4. desember færð
þú aðra að eigin vali í kaupbæti.
Kauptu
nýja glossið
frá Rifka
Debenhams, Smáralind • Salon Ritz, Laugavegi • Studio 1, Kópavogi
Snyrtistofa Ragnheiðar, Egilsstöðum • Snyrtistofan Táin, Sauðárkróki w w w . r i f k a . i s VK
05
00
84
–
G
C
I A
LM
A
N
N
A
T
E
N
G
S
L
-
G
R
E
Y
C
O
M
M
U
N
IC
A
T
IO
N
S
IN
T
E
R
N
A
T
IO
N
A
L
/ A
R
G
H
!
NÝTT! 2 fyrir 1
Þetta blogg er skrifað í Rútunni sem er
ekki stærri en svo að þegar græjunum
hefur verið hrúgað inn er ekki hægt
að halla sætisbökunum. Við erum á
leið til Reykjavíkur frá Grundarfirði í
blindbyl og það voru snjóskaflar út um
allt. Magnað að ekki var búið að loka
heiðinni. Tónleikarnir voru frábærir á
Grundarfirði. Siggi Gísla æskulýðsfulltrúi
og gítarleikari (Dos Pilas) hjálpaði okkur
að skipuleggja tónleikana og gerði það
af stakri snilld. Upphitunarhljómsveit-
irnar komu okkur á óvart og nokkuð
ljóst að Snæfellsnesið reynist rokkurum
mikill innblástur.
Það var lúmskt erfitt að vakna í gær-
morgun. Við kíktum á Kaffi Krók eftir
tónleikana og eftir það datt okkur í hug
að skoða náttúruperlu rétt fyrir utan
bæinn. Skari var vakinn en hann hafði
sofnað upp á vist, hann var jú sá eini
sem var ökufær. Hann skutlaði okkur
rétt fyrir utan bæinn í... Grettislaug!!!
Sem er víst (samkvæmt heimildar-
mönnum okkar á Króknum) algjört
„möst“ að kíkja í eftir gott kvöld á Kaffi
Krók.
Þegar við mættum uppgötvuðum við
að sundfötin voru víðsfjarri. Það aftraði
okkur ekki frá sundsprettinum heldur
létum við okkur vaða naktir. Eftir smá
stund kom annar bíll. Þar voru á ferð-
inni nokkrir krakkar sem höfðu verið
á Kaffi Krók. Auðvitað skelltu þau sér
útí en voru samt það sniðug að hafa
sundföt meðferðis. Við settum þær
reglur að það væri bannað að baða sig
í baðfötum.
Við stöldruðum smá stund í
lauginni undir stjörnubjörtum
himni, niðamyrkri og logni en
þegar við fórum upp úr höfðu hand-
klæðin gleymst. Við neyddumst því til
að klæða okkur á bakkanum, rennandi
blautir í nístingskulda. Ég týndi einum
sokk og ef einhver rekst á hann endi-
lega geymið hann og sendið mér mail.
Í gær var frídagur hjá okkur og það
var þægilegt að sofa í alvöru rúmi til
tilbreytingar. Við krossleggjum fingur í
þeirri von að Ragnar skelli sér í sturtu
áður en við förum til Eyja í dag.
kv.Egill
Kostir fullveldis
Frjáls eins og fuglinn:
Við tölum ekki dönsku. Miðað við
þann áhuga sem grunnskólakrakkar
sýna tungumálinu er ljóst að það væri
kvöl og pína hjá ungmennum landsins
ef þau þyrftu að tala þetta blessaða
tungumál alla daga.
Skáldin eru ekki alltaf drukkin. Þau
eru pólitískt þenkjandi og eiga heima
í 101 Reykjavík. Skrifa um íslenskan
veruleika en ekki eitthvert eymdarlíf í
kóngsins Köbenhavn.
Við byggjum okkur stór hús og eign-
umst þau með íbúðarlánum. Við erum
ekki að leigja eins meirihluti Dana.
Við keyrum á dýrum jeppum en
erum ekki hjólandi um eins og bless-
uðu Baunarnir.
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur
af ástum og örlögum kóngafólksins.
Við eigum Ólaf Ragnar og Dorrit sem
eru alltaf ógeðslega hamingjusöm.
Undir oki Dana? Nei takk, hafið þið
séð hvernig er farið fyrir Grænlending-
um og Færeyingum. Og hverjum ætti
Hrafn Jökulsson þá að bjarga?
Hallgrímur Örn væri ekki hálf-
íslenskur heldur bara Dani. Bjarni
Tryggvason væri heldur ekki fyrsti
íslenski geimfarinn heldur fyrsti danski
geimfarinn.
HVAÐ EF?
Í dag fagna Íslendingar fullveldi sínu en rúm níutíu ár er síðan
Danir reyndu af einhverri alvöru að losna við okkur. Flestir sagn-
fræðingar eru sammála um mikilvægi þessa dags í sjálfstæðis-
baráttu okkar Íslendinga en hefur þetta fullveldi gagnast okkur
eitthvað?