Fréttablaðið - 01.12.2005, Page 80
52 1. desember 2005 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
22
� � SJÓNVARP
� 19.15 Haukar og KR mætast í
Iceland Express-deild kvenna.
� 19.15 Hamar/Selfoss og Haukar
mætast í Iceland Express-deild karla.
� 19.15 ÍR og KR mætast í Iceland
Express-deild karla.
� 19.15 Snæfell og Skallagrímur
mætast í Iceland Express-deild karla.
� 19.15 Höttur og Njarðvík mætast í
Iceland Express-deild karla.
� 19.15 Grindavík og Fjölnir mætast
í Iceland Express-deild karla.
� 19.15 Keflavík og Þór mætast í
Iceland Express-deild karla.
� � SJÓNVARP
� 16.35 Handboltakvöld á Rúv.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
28 29 30 1 2 3 4
Fimmtudagur
DESMBER
3. október 2005 MÁNUDAGUR
74-75 (22-23) sport 3 30.11.2005 16:02 Page 2
Heyrst hefur....
... að hluti deilu Atla Eðvaldssonar og
Páls Einarssonar hjá Þrótti snúist um
líkamsræktarkort sem leikmenn liðsins
þurftu sjálfir að greiða til hálfs á móti
félaginu. Þeir fái síðan upphæðina end-
urgreidda fari svo að liðið vinni sér sæti í
Landsbankadeildinni á ný.
Kemur ekki fyrr en í sumar
Nú bendir allt til þess að knattspyrnu-
maðurinn Þórður Guðjónsson, sem
nýlega gekk í raðir ÍA eftir áralanga
dvöl sem atvinnumaður erlendis, muni
ekki koma til landsins fyrr en í sumar.
Þórður hafði ætlað sér að flytja heim
um áramótin og taka fullan þátt í
undirbúningstímabili ÍA en hann hefur
enn ekki komist að
samkomulagi um
starfslokasamning
hjá núverandi félagi
sínu, Stoke City í
Englandi. Það
bendir því
allt til þess
að hann
fari ekki að
æfa með
ÍA fyrr en
rétt áður en
Íslandsmótið
hefst.
FÓTBOLTI Þjálfarar og forráða-
menn Íslendingaliðsins Stoke
vonast til þess að vera framherj-
ans Hannes Þ. Sigurðssonar hjá
félaginu verði til þess að finnski
landsliðsmaðurinn Peter Kopteff
kjósi að koma til Stoke fremur en
til liða í Danmörku, Ítalíu og Nor-
egi. Ástæðan er sú að Hannes og
Kopteff hafa verið samherjar hjá
Viking í Noregi síðustu ár og er
afar vel til vina.
Þeir félagar eru einnig á mála
hjá sama umboðsmanni og því
telur Stoke sig hafa gott tromp á
hendi í baráttunni um undirskrift
Kopteffs en það var einmitt þegar
Johan Boskamp, stjóri Stoke, var
að skoða Hannes í leik með Vik-
ing að hann kom fyrst auga á
Kopteff.
Danska liðið FC Köpenhag-
en og ítalska liðið Chievo eru á
meðal þeirra sem vilja fá Kopt-
eff í sínar raðir en samningur
hans við Viking rennur út um
áramótin.
Stoke ætlar sér að styrkja
lið sitt með nokkrum leikmönn-
um þegar félagsskiptaglugginn
opnast að nýju í janúar en liðið er
í bullandi baráttu um að komast í
úrslitakeppnina um sæti í ensku
úrvalsdeildinni. Gengi liðsins í
ár hefur verið framar vonum en
sem fyrr er það takmarkað fjár-
magn sem hindrar Boskamp í að
geta keypt þá leikmenn sem það
vill. Það gæti hins vegar breyst
um helgina en þá mun Boskamp
hitta Magnús Kristinsson, stjórn-
arformann Stoke Holding og
helstu peningalind félagsins, og
ræða við hann um möguleikann á
auknu fjármagni í félagið. - vig
Stoke City er á höttunum á eftir finnskum landsliðsmanni:
Nota Hannes til að fá finnskan vængmann
SLEGIÐ Á LÉTTA STRENGI Jón Ólafsson, tón-
listarmaður og stjórnarmaður í Þrótti, sló á
létta strengi fyrir stjórnarfundinn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Zoran Daníel Ljubicic
hefur verið ráðinn yfirþjálfari
yngri flokka hjá Keflavík. Zoran
var aðalþjálfari Völsungs síðasta
sumar en undir hans stjórn féllu
Húsvíkingar úr 1. deild.
Zoran var leikmaður Kefla-
víkur til margra ára og fyrirliði
liðsins sem varð bikarmeistari
árið 2004. Hann lék með Völsungi
síðasta sumar og spurning hvort
hann haldi áfram að spila með
Keflavík næsta sumar. - hbg
Zoran Daníel Ljubicic:
Snýr aftur heim
ZORAN DANÍEL LJUBICIC Spilar hann með
Keflavík í sumar?
Patrekur Jóhannesson, handknattleiks-
maður í Stjörnunni, vankaðist í leik Vals
og Stjörnunnar í Laugardalshöll er hann
fékk þungt högg í andlitið frá hinum tröll-
vaxna Ægi Hrafni Jónssyni, leikmanni Vals.
Patrekur jafnaði sig fljótt á þessu en
segist þó ekki hafa getað fylgst með
afganginum af leiknum, eftir að
hann fékk höggið á sig. „Ég kom
af fullum krafti inn í vörnina og
fékk þungt högg á andlitið.
Þetta var algjört óvilja-
verk held ég. Leik-
menn Vals tóku hart á
móti okkur og það er
ekkert að því. Eftir að ég
var borinn af velli fékk ég
fljótt meðvitund og náði
mér strax af þessu.“
Ægir Hrafn segir að um algjört
óviljaverk hafi verið að ræða. „Þetta var
óviljaverk. Patrekur kemur hlaupandi að
mér og ég reyni að stoppa. Ég lenti með
upphandlegginn á kjálkanum á Patreki og
hann hnígur niður í kjölfarið. Ég hélt að
hann væri að leika þetta fyrst en svo kom
nú annað í ljós. Hann jafnaði sig nú fljótt
á þessu, sem er gott.“
Patrekur Jóhannesson er bjartsýnn á
framhaldið hjá Stjörnunni og segir liðið
vera á góðu róli þessa dagana. „Það
hefur verið góður stígandi í leik okkar og
við erum að spila af eðlilegri getu þess
dagana. Tite Kalandadze er að koma vel
inn í leik okkar og ég er þess fullviss að
liðið verður orðið mjög sterkt eftir áramót.
Við höfum verið að gera jafntefli við Val
og Hauka en vonandi tekst okkur að
komast skrefi lengra þegar líður á mótið.
Það er karakter í leikmannahópnum og
við höfum verið að berjast vel í öllum
leikjum. Það á eftir að skila sér þegar
menn eru farnir að þekkja betur inn á
hver annan.“
PATREKUR JÓHANNESSON VANKAÐIST Í SAMSTUÐI VIÐ LEIKMANN VALS: ALGJÖRT ÓVILJAVERK
Hélt fyrst að hann væri að leika þetta
FÓTBOLTI Dramatíkin réð ríkjum
í herbúðum 1. deildarliðs Þróttar
í gær eftir að ljóst varð að Atli
Eðvaldsson, þjálfari liðsins, gæti
ekki starfað með fyrirliða liðsins,
Páli Einarssyni, sem verið hefur
hjarta og sál liðsins síðustu ár. Í
kjölfarið er orðið sýnt að stjórnin
verður að velja á milli Páls og Atla
því Páll ætlar ekki að vera áfram
hjá félaginu fari svo að Atli þjálfi
liðið áfram.
Samstarf Páls og Atla hafði ekki
gengið sem skyldi og þeir hittust á
fundi í hádeginu á þriðjudag undir
þeim formerkjum að ná sáttum.
Það gekk ekki eftir. Niðurstaða
fundarins var sú að annar þeirra
verður að víkja. „Þetta er í hönd-
um stjórnarinnar en það er alveg
klárt að annar okkar þarf að fara
frá félaginu. Annar okkar verður
ekki í Þrótti eftir daginn í dag,“
sagði Páll við Fréttablaðið snemma
í gær en vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um málið að svo stöddu. Atli
neitaði alfarið að tjá sig um málið
og vísaði öllum spurningum til
Kristins Einarssonar, formanns
Þróttar, sem einnig neitaði að tjá
sig.
Málið spurðist fljótt út meðal
stuðningsmanna félagins sem boð-
uðu til mótmæla í félagsheimili
Þróttar klukkan fimm er stjórnin
hittist til að ræða málið. Mikil
reiði var í stuðningsmönnunum,
sem og leikmönnum Þróttar sem
flestir, ef ekki allir, standa á bak
við fyrirliðann sinn Pál. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
leikmenn hafi skrifað undir stuðn-
ingsyfirlýsingu til handa Páli sem
til stóð að færa stjórninni á fund-
inum seinni partinn í gær. Einnig
ætluðu nokkrir leikmenn félagsins
að mæta og lýsa yfir stuðningi við
Pál ásamt stuðningsmönnunum.
Það var Páli ekki að skapi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins setti hann sig í samband
við leikmennina og bað þá að
láta af fyrirætluðum mótmæl-
um. Hann taldi slíkar aðgerðir
ekki þjóna hagsmunum félagsins.
Leikmenn virtu þá bón Páls en
heimildir Fréttablaðsins herma
enn fremur að mikil kergja sé enn
í garð stjórnarinnar meðal leik-
mannanna eftir að formaðurinn
sagði í pistli á heimasíðu félagsins
að leikmenn liðsins væru of góðir
við sig og leggðu ekki nógu hart
að sér.
Engu að síður voru nokkrir
fyrrverandi leikmenn liðsins
mættir í félagsheimili Þróttar
klukkan fimm í gær ásamt ætt-
ingjum Páls. Þar fór fremst í
flokki móðir Páls, Lára, en hún
tók ekki í mál að ferill Páls hjá
félaginu endaði með þeim hætti
að hann yrði rekinn enda sonur-
inn búinn að eyða drjúgum hluta
ævinnar í þjónustu fyrir félagið.
Það var magnþrungið and-
rúmsloftið í Þróttarheimilinu
þegar Kristinn formaður mætti
á svæðið. Hann sýndi almenna
kurteisi og tók í hendina á
móður Páls ásamt fleirum. Hann
notaði tækifærið og ávarpaði
mannskapinn með þeim orðum
að stjórn knattspyrnudeildar
myndi aldrei reka Pál Einarsson
frá félaginu. Því næst hélt hann
til fundar ásamt öðrum stjórnar-
meðlimum en ættingjar Páls biðu
frétta frammi í sal.
Stjórnin ákvað á fundinum að
leita sátta í málinu og málið því
í sama hnút og það var fyrir. Páll
og Atli vildu lítið tjá sig um málið
í gærkvöld þegar niðurstaða fund-
arins lá fyrir en sögðust báðir
skilja afstöðu stjórnarinnar.
Málið er ekki auðvelt fyrir
stjórnina enda eru báðir aðil-
ar með samning við félagið og
stjórnin yrði væntanlega að
greiða upp samning þess aðila
sem þeir myndu losa sig við færi
svo að félagið þyrfti að ganga svo
langt.
henry@frettabladid.is
Páll verður aldrei rekinn frá Þrótti
Kristinn Einarsson, formaður Þróttar, fullvissaði móður Páls Einarssonar um að sonur hennar yrði aldrei
rekinn frá félaginu. Páll og Atli Eðvaldsson þjálfari geta ekki starfað saman og annar þeirra virðist þurfa
að víkja. Stjórn félagsins fundaði um málið í gær. Leikmenn styðja Pál í málinu.
MÓÐIRIN OG FORMAÐURINN Lára, móðir Páls, til vinstri, sést hér hlýða á formann Þróttar, Kristin Einarsson, fyrir fundinn í gær en Kristinn
sagði við þetta tækifæri að Páll yrði aldrei rekinn frá félaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI