Fréttablaðið - 07.12.2005, Qupperneq 12
12 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
Fluguhnýtingarsett
fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna
Jólatilboð kr. 7.990.-
Fluguveiðisett frá REDINGTON
allt í einum pakka
Jólatilboð
verð frá kr. 11.990.-
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar-
innar, gerði nýja skýrslu Stefáns
Ólafssonar prófessors um kjör
öryrkja að umtalsefni í upphafi
þingfundar í gær.
„Öryrki sem er einstætt for-
eldri hefur hækkað um þrjátíu
prósent meðan aðrir njóta fimm-
tíu prósenta hækkunar,“ sagði
Ingibjörg.
„Þessar tölur koma mér á
óvart því það er staðreynd að
kaupmáttur bóta sem ríkið greið-
ir hefur hækkað á síðastliðnum
tíu árum um 58 prósent á sama
tíma og kaupmáttur almennra
launa hefur hækkað um 37 pró-
sent,“ sagði Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra í svari sínu og
gat þess að lífeyrissjóðir hefðu
einnig skert greiðslur sínar. „En
við getum gert betur, líka gagn-
vart eldri borgurum,“ sagði for-
sætisráðherra.
Ingibjörg Sólrún gagnrýndi
stefnu stjórnvalda gagnvart
öryrkjum. „Það er áfellisdómur
að þeir skuli dragast aftur úr.
Þetta er ríkisstjórn ójafnaðar.“
- jh
Skýrsla Stefáns Ólafssonar um versnandi kjör öryrkja rædd á Alþingi:
Getum gert betur segir Halldór
HEILBRIGÐISMÁL Á fjórða tug
sjúklinga blóðskilunardeildar
Landspítalans skora á yfirstjórn
spítalans að draga til bara
breytingar á vaktafyrirkomulagi
hjúkrunarfræðinga deildarinnar
sem taka eiga gildi um áramót.
Hluti hjúkrunarfræðinga ætlar
að hætta á deildinni vegna breyt-
inganna og óttast sjúklingarnir
mjög um sinn hag vegna þessa.
„Þrátt fyrir nauðsyn á sparnaði
og breytingum hlýtur frumskylda
þeirra er reka sjúkrahús fyrst og
fremst vera að tryggja öryggi sjúk-
linga sinna,“ segir í tilkynningu
sem 33 sjúklingar skrifa undir.
Blóðskilun er nýrnasjúkling-
um lífsnauðsynleg og störf hjúkr-
unarfræðinganna mjög sérhæfð,
en um ár tekur að þjálfa nýtt fólk
í starfið. Sjúlklingarnir eiga ekki
í önnur hús að venda, en vika til
hálfur mánuður án blóðskilunar
gætu reynst þeim banvæn. - óká
Nýrnadeild Landspítalans:
Sjúklingar láta
til sín taka
GJÖF Verkefnið Virkjum alla
– rafrænt samfélag hefur fært
Fræðslumiðstöð Þingeyinga að
gjöf færanlegt tölvuver sem sam-
anstendur af tíu fartölvum og
öllum nauðsynlegum fylgihlut-
um. Sparisjóður Þingeyinga veitti
styrk til kaupa á flutningskössum
undir tölvurnar en heildarkostn-
aður við tölvuverið og flutnings-
kassana var um ein og hálf milljón
króna.
Virkjum alla er þriggja ára
samstarfsverkefni Húsavíkur-
bæjar, Aðaldælahrepps, Þingeyj-
arsveitar og Byggðastofnunar
með það að markmiði að tryggja
íbúum sveitarfélaganna aðgang
að rafrænni þjónustu.
Susan Martin, verkefnisstjóri
Virkjum alla, segir að með til-
komu tölvuversins verði grund-
vallarbreyting á fræðslustarfsemi
í Suður-Þingeyjarsýslu því að nú
hafi allir íbúar sýslunnar aðgang
að tölvuverinu. „Fyrirhafnarlítið
er hægt að fara með tölvurnar um
allt héraðið og setja upp námskeið
á vinnustöðum, í skólum eða hvar
sem óskað er,“ segir Susan. - kk
Verkefnið Virkjum alla styrkir Fræþing:
Gáfu tíu fartölvur
og fylgihluti
GJÖFIN AFHENT Fulltrúar frá Fræþingi, Virkjum alla og Sparisjóði Suður-Þingeyinga ásamt
tveimur fulltrúum frá skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík, en stéttarfélögin voru fyrst til að
nýta tölvuverið. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
SPÁNN Yfir áttatíu prósent þeirra
kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi
af höndum eiginmanna sinna eða
kærasta á heimilum sínum á Spáni
telja ekki að ást eiginmanna sinna
sé nokkuð minni fyrir vikið.
Fyrst og fremst eru það ungar
stúlkur, um og undir þrítugsald-
rinum, sem eru á þessari skoð-
un en heimilisofbeldi gegn þeim
hefur vaxið hvað hraðast í land-
inu á undanförnum árum. Ekki
aðeins á það við um Spán heldur
er vandamálið víðar. Sérstaklega
er heimilisofbeldi stórt vandamál
í löndum Suður-Ameríku og látast
þar fleiri hundruð konur á ári
hverju vegna ofbeldis. - aöe
Fórnarlömb heimilisofbeldis:
Elska menn
sína áfram
Á tvöföldum hámarkshraða
Tvítugur Suðurnesjamaður var sviptur
ökurétti í tvo mánuði í Héraðsdómi
Reykjaness á mánudag, auk þess að
vera gert að greiða 60.000 krónur í sekt.
Hann mældist á rúmlega tvöföldum
hámarkshraða á Reykjanesbraut við
gatnamót Vogavegar mánudagskvöldið
11. apríl. Þar má aka á 70 kílómetra
hraða en maðurinn ók á 143 kílómetra
hraða samkvæmt mælingu lögreglu.
HÉRAÐSDÓMUR
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
FORSÆTISRÁÐHERRA segir kaup-
mátt bóta hækkað meira en launa.
AÐSKILNAÐARSAMTÖK BASKA LÁTA AÐ
SÉR KVEÐA Sex sprengjur sprungu í gær
á A-6 hraðbrautinni sem liggur til Madrid.
Ónefndur aðili sem sagðist vera frá aðskiln-
aðarsamtökum Baska hafði varað við
sprengjunum áður og því urðu engin slys
þar sem lögregla lokaði veginum.
AFP.NORDICPHOTOS/AFP
MENNTAMÁL Björgvin G. Sigurðs-
son, þingmaður Samfylkingarinnar,
kvaddi sér hljóðs í upphafi fundar á
Alþingi í gær um framkvæmd sam-
ræmdra stúdentsprófa. Hann sagði
þau fela í sér allt of mikla miðstýr-
ingu, taka sjálfstæði af skólunum
og draga smám saman úr sérkenn-
um þeirra. „Þau ná því hvorki að
mæla gæði skólanna né nýtast þau
sem inntökupróf í háskólana þar
sem slíkar prófa er krafist... Sterk
rök hníga því að því að hverfa frá
samræmdum stúdentsprófum.“
Björgvin benti á að í sumum
framhaldsskólanna hefðu sjötíu
til áttatíu prósent nemenda skilað
auðu í samræmdum stúdentspróf-
um. „Enda telja nemendur sig hafða
að fíflum með prófunum.“
Björgvin spurði Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur menntamála-
ráðherra hvort hún hygðist beita
sér fyrir afnámi umræddra prófa.
Þorgerður Katrín sagði að
þingmenn allra flokka hefðu verið
fylgjandi því að taka upp sam-
ræmdu prófin árið 1996. „Það eru
efasemdir í mínum huga varðandi
samræmd próf. Ég hef sagt að þau
feli í sér ákveðna miðstýringu og
þau stuðli ekki að þeirri fjölbreytni
sem við viljum öll... Engu að síður
vó það mjög þungt á sínum tíma að
háskólarnir báðu sérstaklega um
þetta. Ég er með eins árs gamalt
bréf frá deildarforsetum Háskóla
Íslands þar sem hvatt er til þess
að halda samræmdu prófunum og
helst fjölga þeim.“
Þorgerður Katrín kvaðst ætla að
kalla til fundar fulltrúa þeirra aðila
sem málið snertir, nemenda, kenn-
ara, skólastjórnendur, háskóla-
menn og fleiri, svo sem Námsmats-
stofnun, til þess að fara yfir málið.
„Það er alveg ljóst framkvæmd
samræmdu prófanna á undanförn-
um dögum hefur ekki tekist sem
skyldi,“ sagði Þorgerður.
Dagný Jónsdóttir, Framsókn-
arflokki, sagði það vera á stefnu-
skrá flokksins að endurskoða
framkvæmd samræmdu prófanna.
Hún teldi að farsælla gæti verið
að leggja eins konar könnunarpróf
fyrir nemendur og tengja þau alls
ekki við útskrift stúdenta.
Katrín Júlíusdóttir, Samfylk-
ingunni, spurði menntamálaráð-
herra hvort ekki yrði að svara því
afdráttarlaust hvort samræmdu
prófin yrðu lögð fyrir framhalds-
skólanema næsta vor.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
kvaðst efast um að prófin yrðu lögð
aftur fyrir óbreytt en breyta yrði
lögum. johannh@frettabladid.is
Prófin verða endurskoðuð
Menntamálaráðherra kveðst hafa efasemdir um framkvæmd samræmdra prófa í framhaldsskólunum
og boðar endurskoðun þeirra. Þingmönnum þykir prófin fela í sér of mikla miðstýringu og þau séu varla
mælikvarði á gæði skólanna.
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Menntamálaráðherra segist hafa efasemdir um
samræmdu prófin.