Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 26

Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 26
 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 ��������������������������� ������������������������ ��������� ������������������������������������������������������� ��������������������������������� ����������� ��� ������������������������������� ���������� ������������������������������������������������������ ������������������������������������� ������������������������������� ������ ����������������������������������� ����������������������������� �������������������������� ������������ ������������� ��������������������� ���������������������������������������� ����������������������� Það var ekki matnum að þakka að ég man eftir máltíð sem ég snæddi vestur í Tennessee fyrir mörgum árum. Ég hafði orðið svangur á óheppilegum stað og farið inn á veitingahús við þjóðveginn. Þar horfðu menn á sjónvarp á meðan þeir borðuðu. Heimurinn utan Tennessee hafði slæðst í fréttir í fylkinu þennan dag. Það sem gerði málið enn óvana- legra var að löng umræða fylgdi með frétt um fjarlæga atburði. Ég þekkti eitthvað til málsins sem sagt var frá en mér hefði þó lík- lega fyrirgefist að halda um stund að rætt væri um annað pláss en ég þekkti og annað fólk en ég vissi að væri til. Auðvitað eru margar hlið- ar á hverju máli en það sem blasti við í sjónvarpinu þennan dag var ekki hlið á neinu máli heldur bein afskræming á veruleikanum sem ég sá svo endurtekna dagana á eftir. Þessi afskræmda mynd sagði ekkert um veruleikann en passaði svo vel við ríkjandi hugmynda- fræði þarna langt inni í Banda- ríkjunum að sumum sessunauta minna á fánum skrýddum veit- ingastaðnum hlaut að hlýna um hjartarætur enda fátt notalegra en að fá fordóma sína staðfesta. Nú er það auðvitað svo að allar þjóðir koma sér upp myndum af veruleikanum sem fólk í öðrum samfélögum kannast illa við. Þetta getur verið mjög til gamans fyrir þá sem ferðast og er oftast jafn saklaust og venjulegur skáldskap- ur. Íslendingar heima og erlendis hafa til dæmis létt mörgum lund með sögum sínum af afrekum landsmanna og óumbeðnum upp- lýsingum um almennt mikilvægi landsins. Það voru heldur ekki sérkenni hinnar bandarísku heimsmynd- ar sem trufluðu mig við að borða vondan mat. Bandaríkjamenn hafa auðvitað rétt til sinnar sérstöku myndar af sjálfum sér og heimin- um rétt eins og hver önnur þjóð. Það sem olli mér hugarangri þarna við þjóðveginn í Tennessee var sú staðreynd að ég var eini maðurinn þarna inni sem ekki hafði kosn- ingarétt í alþjóðamálum. Á þessum tíma gramdist mér eitthvað dálítið að Vestfirðingar höfðu fimmfaldan atkvæðisrétt á við okkur sunnanmenn í kosn- ingum á Íslandi en einhvern veg- inn varð mér alveg sama um það þarna í Tennessee. Mennirnir sem sátu í kringum mig og hlust- uðu á einfaldanir, útúrsnúninga og blekkingar um málefni hinum megin á hnettinum höfðu kosn- ingarétt í alþjóðamálum. Fylkið þeirra kaus George W. Bush for- seta ekki löngu síðar og hvað sem um þann mann má segja hafa verk hans skipt máli fyrir marga utan Bandaríkjanna. Ég hef hins vegar ekki atkvæð- isrétt í heimsmálunum frekar en nokkur annar sem les þessa grein, ólíkt því sem er um íbúa Tennessee. Aðeins örfá ríki ver- aldar hafa nokkur umtalsverð áhrif á gang mála í alþjóðakerf- inu umfram þau sem snúa beint að þeim sjálfum. Það kemur þó fyrir að smáríki geta fengið stærri ríki til að taka eftir afstöðu sinni til stórra alþjóðlegra deilu- mála. Þetta gerist ekki oft. Menn geta til dæmis lesið bestu blöð heimsins árum saman án þess að sjá svo mikið sem einu sinni vikið að atkvæðagreiðslu á alls- herjarþingi Sameinuðu þjóðanna. En þetta gerðist í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Svar okkar þá hafði auðvitað engin efnisleg áhrif en svona uppá framtíðina þurfum við að skilja hvers vegna við brugðumst við þessu óvana- lega tækifæri með þeim hætti sem við gerðum. Trúðu menn virkilega áróðri hugmyndafræð- inga hægri manna í Bandaríkj- unum sem var svo augljóslega mótsagnakenndur, falskur og illa undirbyggður að fólk með lítils- háttar þekkingu á alþjóðamálum, nútímasögu og Miðausturlöndum átti auðveldlega að sjá í gegnum hann? Nenntu menn ekki að kynna sér óvanalega samhljóma viðvar- anir fræðimanna um allan heim sem eitthvað þekktu til Írak? Eða skoða pólitískar rætur áhugans á innrás í Írak? Írak er ekki dæmi um mál þar sem auðvelt er að vera vitur eftir á. Þarna var auðvelt að vera vitur fyrirfram. Eða snerist þetta um hagsmuni og vigtaði vilji manna til að halda í fjórar af tíu þúsund her- þotum Bandaríkjamanna þyngra en hundrað ára heitstrengingar um Íslendinga sem vopnlausa, lög- hlýðna og friðsama þjóð? Svarið skiptir máli því það segir okkur hvort það væri til einhvers að við hefðum atkvæðisrétt í alþjóðmál- um. ■ Svarið skiptir máli Í DAG ALÞJÓÐAMÁL JÓN ORMUR HALLDÓRSSON Það sem olli mér hugarangri þarna við þjóðveginn í Tenn- essee var sú staðreynd að ég var eini maðurinn þarna inni sem ekki hafði kosningarétt í alþjóðamálum. Undanfarna tvo daga hafa birst hér á síðum Fréttablaðsins ógeðfelldar lýsingar á ástandinu á Laugavegi í kjölfar þess að ráðist var á mann þar snemma að laugardagsmorgni. Verslunareigendur og kaupmenn við götuna gefa ófagra lýsingu á ástandinu þar, einkum um helgar. Vilja þeir meina að ástandið megi rekja til bara sem starfræktir eru við götuna. Pétur Arason býr við Laugaveg og varð nýlega fyrir því að ráðist var á hann um hábjartan dag með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði. Hann lýsir ástandinu svo: “Stór hluti af vandamálinu er barir þarna á svæðinu. Þar fer fram fíkniefnasala eins og um hverja aðra kjör- búð sé að ræða.“ Hann segir að lögreglunni hafi margsinnis verið bent á þetta, en þessi starfsemi hafi viðgengist þarna i mörg ár. Auk þess að benda lögreglunni á þetta hafi hann rætt vandamálið við borgarfulltrúa en án árangurs. Þetta er ófögur lýsing á ástandinu við Laugaveg, aðal- verslunargötu höfuðborgarinnar, og þarna þurfa borgaryfirvöld og lögreglan greinilega að taka til hendinni. Laugavegurinn hefur verið á uppleið að undanförnu og þar eru fyrirhugaðar miklar framkvæmdir varðandi uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Borgaryfirvöldum ber að verja og vernda Laugaveginn og stuðla að uppbyggingu. Þar hefur heilmikið verið gert á und- anförnum árum og nú síðast var kaflinn á milli Barónsstígs og Snorrabrautar tekinn í gegn, auk þess sem þar var tekið í notk- un nýtt bílageymsluhús á móti gamla Röðli og færi vel á því að húsið bæri það nafn. Þeir sem reka þarna atvinnustarfsemi og búa við Laugaveginn og í nágrenni hans þurfa líka að leggja sitt af mörkum. Íbúarnir verða að gera sér grein fyrir því að með því að velja það að búa í eða við miðbæjarkjarna og njóta alls þess sem slík hverfi hafa upp á að bjóða verða þeir líka að sætta sig við tilveru veitingahúsanna á kvöldin og um helgar. Ógæfufólk á þar hins vegar ekki heima og það hlýtur að vera sérstakt verkefni yfirvalda að sjá svo um að það sé ekki þarna. Þetta vandamál er ekki einskorðað við Laugaveginn, heldur vel þekkt í borgarkjörn- um víða, og ættum við að geta lært af reynslu annarra í þessum efnum. Fótgangandi lögregluþjónar á þeim tímum sem mest er um að vera á Laugaveginum hafa áreiðanlega sitt að segja til að leysa vandamálið og öflugt hreinsunarstarf borgaryfirvalda ætti að vera sjálfsagt mál um helgar. Það væri sannarlega skref afturábak ef öll hin líflega starf- semi sem skotið hefur rótum við Laugaveginn á undanförnum árum legðist af. Gatan hefur breyst úr því að vera mikil verslun- argata í það að vera aðlaðandi borgarhluti með veitingastöðum og sérverslunum líkt og víða í nágrannalöndunum. Ef allir leggjast á eitt um að bæta ástandið og hlúa að götunni getum við áfram fengið okkur göngutúr á Laugaveginum, ekki síst nú í aðdraganda jólanna,en hvergi er að finna skemmtilegri stemningu í borginni en einmitt þar. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Sóðaskapur og ógæfufólk á aðalverslunargötunni: Verjum Laugaveginn Ef allir leggjast á eitt um að bæta ástandið og hlúa að götunni getum við áfram fengið okkur göngutúr á Laugaveginum, ekki síst nú í aðdraganda jólanna,en hvergi er að finna skemmtilegri stemningu í borginni en einmitt þar. Viltu kaffið eða kaffihúsið væni? Danir hafa verið að gantast með það að Íslendingar séu að kaupa upp Dan- mörku eftir kaupin á Illum og Magasin du Nord. Þeir hafa þó greinilega mikinn húmor fyrir þessu því Íslendingur sem var staddur í Kaupmannahöfn nú um helgina lenti í því sakleysislega athæfi að kaupa sér kaffi á kaffihúsi þar í borg. Þegar hann reiddi fram greiðslukortið sitt spurði afgreiðslumaðurinn hann ósköp rólega; „Ertu að borga fyrir veit- ingarnar, eða ætlarðu að kaupa kaffi- húsið?“ Valdalaust í Hafnarfirði Sú einkennilega staða virðist vera komin upp í Hafnarfirði að hinar hefðbundu valdaættir eru að missa völdin í bænum úr höndunum á sér. Það er að segja ef litið er til bæjarstjórnar. Hafnarfjörður er nokkuð tvískipt bæjarfélag, sem á sinn suðurbæ og norðurbæ, Hauka og Fimleikafélag og pólitíkin skiptist á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Pólitískar fjölskyldur Valdaætt Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði hefur verið Mathiesen-ættin. Síðasta vígi þeirrar ættar í bæjarstjórn féll þegar Valgerður Sigurðardóttir lenti í öðru sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna og dró framboð sitt í kjölfarið til baka. Mathies- enarnir verða því að láta sér nægja full- trúa í ríkisstjórninni sem sér um fjármál ríkisins. Guðmundur Árni Stefánsson hefur tilheyrt annarri valdaætt, en tilheyrir Samfylkingunni. Hann var lengi bæjarstjóri í Hafnarfirði og er sonur ann- ars fyrrum bæjarstjóra í bænum. Þegar hann fluttist búferlum til Svíþjóðar fór Jóna Dóra Karlsdóttir, eiginkona hans, með. Hún hefur setið í bæjararstjórn en hætti þar til að verða sendiherrafrú. Önnur sterk krata- ætt í bænum er fjölskylda Harðar Zophaníassonar og frúar. Annar sonur þeirra, Tryggvi, er nú bæjarstjóri á Seyðisfirði og hinn, Ólafur, er meira að rannsaka pólitíkina í Háskólanum. svanborg@frettabladid.is ������������������������������ ������ ������� ������� ���������� ���� ������������������������������ ��������������� �������������������

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.