Fréttablaðið - 07.12.2005, Síða 27
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 7. desember,
341. dagur ársins 2005.
Vatnsorka mynd-
ast þegar maður
býr til stíflu
til að kveikja á
ljósaperum!
KRÍLIN
Reykjavík 11.01 13.19 15.37
Akureyri 11.12 13.04 14.56
Ný kynslóð af Ford Fiesta bíl-
num er nú komin á markaðinn.
Nokkrar útlitsbreytingar hafa
verið gerðar á bílnum, bæði að
innan og utan. Hægt
er að fá bílinn frá
1,3 lítra vél og
upp í 2,0 lítra.
Einnig er
hægt að fá
bílinn með 1,4
lítra dísilvél. Bíllinn
er nú á kynningar-
verði hjá Brimborg.
Áramótaferð í Bása er nú á
boðstólum hjá ferðafélaginu
Útivist. Farið er 30. desember
frá BSÍ og gist í Básum í Goð-
alandi og komið aftur 1. janúar.
Kveikt verður í álfabrennu og
skotið upp flugeldum. Fararstjóri
er Ingibjörg Eiríksdóttir og sér-
stakur tónlistarstjóri er Sigurður
Úlfarsson.
Þrjár jólagjafir verða veittar til
styrktar Mæðrastyrksnefnd með
hverjum seldum nýjum bíl hjá
Toyota fram til 20. desember.
Gjafirnar sem Mæðra-
styrksnefnd fær eru
matarkarfa, gjöf
fyrir stúlku og
gjöf fyrir dreng.
Toyota hvetur
einnig önnur fyrir-
tæki og einstaklinga
til þess að láta gott af
sér leiða.
Talandi um góðverk, þá verð-
ur Blóðbankabíllinn með blóð-
söfnun við KFC í Reykjanesbæ í
dag klukkan 10-17. Allir sem eru
heilsuhraustir á aldrinum 18-60
ára (65 ára fyrir vana blóðgjafa)
eru velkomnir. Það er alltaf
nauðsyn fyrir blóðgjafir og nú
geta íbúar Reykjanesbæjar og
nágrennis látið gott af sér leiða.
LIGGUR Í LOFTINU
[JÓL BÍLAR FERÐIR]
Matthías Matthíasson reynir að hafa
það rólegt um jólin. Honum finnst jóla-
gjafakaup ekki stressandi og vill hafa
gjafirnar persónulegar.
Það sem einkennir helst aðventuna hjá Matthí-
asi Matthíassyni tónlistarmanni er að hann
leggur allt kapp á að gera hana algjörlega
stresslausa. „Eftir að ég hætti að vinna í versl-
un til fimm á aðfangadag hef ég reynt að búa
til rosaleg góða stemningu heima fyrir svo það
einkennist ekki af stressi og peningalykt held-
ur notalegheitum,“ segir Matthías. „Ég föndra
til dæmis með strákunum mínum. Þeir eru nú
ekki mjög gamlir svo það snýst aðallega um að
lita, leira og perla.“
Blaðamaður spyr hvort liður í þessari
aðgerð sé að kaupa pakkana snemma. „Nei,
mér finnst ekki vera stress að kaupa pakka.
Ég legg ekki upp úr stórum gjöfum heldur
vil hafa þær persónulegar. Ég er þó búinn að
mestu fyrir Þorláksmessu.“
Eina hefð höfðu hjónin haft þar til synirnir
komu í heiminn. „Við höfum alltaf labbað niður
Laugaveginn og droppað eitthvert inn í heitt
kakó. Við ætlum að reyna að gera það þessi jól,
vorum einmitt að græja tvíburakerruna.“
Það virðist þó ekki vera alveg stresslaust
hjá Matthíasi þessi jól. „Ég var að gefa út nýja
sólóplötu í síðustu viku sem ég mun kynna nán-
ast fram á aðfangadagsmorgun. Þetta eru allt
ný lög eftir Magnús Þór Sigmundsson, Hreim
og Kalla Olgeirs en ég gerði textana sjálfur.
Platan er mjög ólík öllu sem ég hef áður gert.
Hún er róleg og ég uppgötvaði allt í einu að ég
hef ekki sungið ástarlag inn á plötu síðan árið
1995. Það er kominn tími á ástina hjá mér,“
segir Matthías um plötuna, sem er greinilega í
anda jólanna. mariathora@frettabladid.is
Föndrar mikið
með strákunum
Matthías að föndra með sonunum Arnari Páli sem er þriggja ára og Sigurði Páli sem verður eins árs í febrúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
COCA-COLA
Árleg bílalest
BLS. 3
JÓLASVEINAR
Gjafakaupin undirbúin
BLS. 4
TENERIFE
Slær í gegn
BLS. 8