Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 28
[ ]
Staflarar
einnig úrval af pallettutjökkum
• Lágmúli 9 / 108 Reykjavík
• Sími: 533 2845 / GSM: 896 0515
• www.sturlaugur.is
Jólapakkar
Rafmagnshlaupabretti
15km hámarkshraði
Hitaáklæði í bílinn
12V
4.900,-
12.995,-
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
´
fiat_100%_afslattur.indd 1 12/5/05 2:25:29 PM
getur lífgað upp á bílinn yfir hátíðirnar. Það er til dæmis hægt að fá
alls kyns jólaljós til þess að hafa á mælaborðinu. Jólasveinar, jólatré
og aðventuljós geta verið skemmtilegt skraut í bílinn.
Jólaskraut
„Í upphafi snerist sýningin aðal-
lega um vélsleða og eitthvað um
jeppa,“ segir Björn V. Magnús-
son, formaður Félags vélsleða-
manna í Eyjarfirði, en hann var
sýningarstjóri Vetrarsport 2005
sem fram fór á Akureyri á dög-
unum. Þetta var í nítjánda sinn
sem slík sýning er haldin norðan
heiða og aldrei hafa fleiri sýn-
endur tekið þátt eða jafn margir
gestir mætt.
„Sýnendum hefur fjölgað
og nú er þarna að finna nánast
allt sem tengist vetrarsporti
og í raun ferðamennsku allt
árið. Þær vörur og sú þjónusta
sem þarna er til sýnis er mun
víðtækari en var í upphafi, þó svo
að sleðarnir séu alltaf ákveðinn
miðpunktur. Fyrst voru þetta
aðallega sleðaumboðin með
nýjustu árgerðirnar en nú tengist
þetta ekki endilega vélsleðum
eða jeppum, heldur alls kyns
ferðamennsku og þjónustu.“
Í gegnum árin hafa verið tvær
sýningar á ári, ein fyrir sunnan
og önnur fyrir norðan. Í ár var
engin sýning fyrir sunnan og
telur Bjarni að það hafi skilað
fleiri gestum en áður. „Sýningin
var töluvert stærri núna en
undanfarin ár. Gestir voru á
milli 3.000 og 3.500 og sýnendur
voru um 35,“ segir Björn.
Í ár var boðið upp á þá nýjung
að fyrirlesarar voru fengnir
til að fjalla um fræðslu- og
öryggismál eða segja ferðasögur
á meðan sýningunni stóð. „Þetta
mældist vel fyrir og við reiknum
með að gera meira af þessu. Það
er mikil umræða í gangi núna
meðal sleðamanna um allt sem
tengist öryggismálum. Það
finnum við úti um allt,“ segir
Björn.
Veturinn á Norðurlandi hefur
verið með betra móti fyrir
sleðamenn. „Hér snjóaði snemma
og við vorum farin að brúka
sleðana mun fyrr en undanfarin
ár. Hér er nægur snjór í fjöllum,“
segir Björn. Alls eru um 140
manns í Félagi vélsleðamanna í
Eyjafirði en félagið stóð að baki
sýningarinnar. Á næsta ári verður
20 ára afmælissýning og Björn
hvetur alla til að mæta. Þar verður
skorið við nögl. „Á þessa sýningu
eiga allir erindi sem stunda
einhverskonar útiveru og ferðalög,
hvort sem það er um vetur eða
sumar,“ segir Björn að lokum.
einareli@frettabladid.is
Sýnendur voru um 35 og sýndu allt frá fullbreyttum jeppum og yfir í skíðagleraugu.
MYND/HALLDÓR ARINBJARNARSON
Metaðsókn á
Vetrarsport 2005
Stærsta sýningin frá upphafi og sú nítjánda í röðinni.
Þó að hægt hafi verið að finna nánast allt sem viðkemur ferðamennsku á sýningunni eru
vélsleðarnir enn þá miðpunkturinn. MYND/HALLDÓR ARINBJARNARSON
Það er farið að frysta oftar á
nóttunni og bíleigendur geta
alltaf búist við því að þurfa
að byrja daginn á því að
skafa af bílnum.
Sköfur eru nauðsynlegar í alla
bíla og fást á öllum bensínstöðv-
um. Það er misjafnt hvernig
sköfur hverjum og einum finn-
ast bestar en mörgum finnst þó
betra að hafa þær með sæmilega
löngu skafti svo að snjórinn fari
ekki á vettlingalausar hendur.
Skaftið má þó ekki vera of langt
því þá er ekki hægt að ná nógu
góðu átaki þegar skafið er. Þar
sem sköfur fást í mismunandi
stærðum og gerðum ættu allir að
geta fundið sköfu við sitt hæfi. Ef
engin skafa er í bílnum má líka
alltaf notast við það sem hendi
er næst, hvort sem það er geisla-
diskahulstur eða debetkort.
Skafið af
bílnum
Rúðusköfur fást á
öllum bensínstöðvum.