Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 52
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 MARKAÐURINN18
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Coaching hefur verið þýtt á ýmsa vegu á íslensku
en markþjálfun, stjórnendaþjálfun og leiðtogaþjálf-
un eru meðal þeirra hugtaka sem helst eru notuð
eftir því við hvers lags þjálfun er átt við. Í íþróttum
er það þekkt að nauðsynlegt er að hafa þjálfara til
að ná ákveðnum markmiðum. Einkaþjálfun er jafn-
framt velþekkt aðferð við að ná árangri á sviði lík-
amsræktar. Stjórnendaþjálfun gengur út á það
sama. Að baki hennar er ákveðin aðferðafræði sem
snýst fyrst og fremst um að virkja þann sem fær
þjálfun í stað þess að honum sé sagt hvernig hann á
að leysa vandamálin.
Þjálfunin miðar að því að virkja getu og laða
fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi.
Hún byggir á samstarfi þjálfara og stjórnanda, fag-
legri nálgun og öflugum stuðningi við markmið
stjórnanda og fyrirtækis. Þjálfararnir hlusta,
greina og laga aðferðir sínar að þörfum hvers ein-
staklings og vinnuumhverfis. Starfinu er gjarnan
lýst sem samblandi af starfi stjórnunarráðgjafa,
einkaþjálfara og leiðsögumanns. Þjálfarinn hjálpar
viðkomandi að teygja sig enn lengra en hann hefur
áður talið sig geta og víkkar þannig sjóndeildar-
hringinn. Þetta nýtist öllum, viðkomandi og fyrir-
tækinu sem hann starfar hjá.
Coaching-stjórnendaþjálfun er beitt í vaxandi
mæli víða um heim og er að hasla sér völl hér á
landi. Þeir sem veita slíka þjálfun þurfa að fylgja
ákveðnum siðareglum og starfa í algjörum trúnaði
gagnvart viðskiptavinum sínum. International
Coach Federation vinnur að því að
tryggja heilindi og gæði þjónustunnar.
Stjórnendaskóli Háskólans í
Reykjavík í samstarfi við Corporate
Coach U (CCU) býður upp á þjálfun
fyrir stjórnendur á sviði Coaching til viðbótar við
þjónustu sem seld er fyrirtækjum í áskrift á sviði
Executive Coaching. Um er að ræða tveggja daga
þjálfun fyrir stjórnendur undir nafninu „Coaching
Clinic – að laða fram það besta“ þar sem þessari
hugmyndafræði er beitt.
MARKMIÐ NÁMSKEIÐSINS ERU ÞRJÚ:
1. Að veita þátttakendum fræðilega innsýn í nýjung-
ar og bestu framkvæmd á sviði leiðtogaþjálfunar.
2. Að þjálfa lykilstarfsfólk í aðferðafræði coaching
og veita því tækifæri til að beita nýrri færni við
dagleg störf.
3. Að virkja og varðveita frumkvæði starfsmanna og
vinna að stöðugum umbótum með sannreyndum
og áhrifaríkum aðferðum.
Guðrún Högnadóttir er leiðbeinandi námskeiðsins
en hún er þróunarstjóri Stjórnendaskóla Háskólans
í Reykjavík og sérfræðingur við viðskiptadeild
skólans. Hún hefur lengi starfað við stjórnunarráð-
gjöf en árið 2004 lauk hún Associate Certified
Coach prófréttindum frá CCU og er annar tveggja
Íslendinga sem lokið hafa þeirri prófgráðu. Auk
starfa við kennslu starfar hún sem executive coach
hér heima og með viðskiptavinum erlendis.
Högni Óskarsson er einn þeirra sem starfa sem
stjórnendaráðgjafi á Íslandi og hefur líkt og
Guðrún lokið Associate Certified Coach prófrétt-
indum frá CCU. Hann er geðlæknir og hefur frá
upphafi ferils síns unnið með dýnamísk kerfi í sinni
vinnu, þ.e. fjölskyldur, teymi og hópa, svo og önnur
tilfelli þar sem samskipti einstaklinga eru skoðuð
og greind. Hann hefur nú bætt stjórnendaráðgjöf
við menntun sína og starfar sem stjórnendaþjálfi
samhliða, en óháð, geðlækningunum.
Högni vinnur ýmist með einstökum stjórnendum
eða eftir samningi við fyrirtæki. Er þá unnið með
hópi stjórnenda, til dæmis til að gera breytingaferli
skilvirkara. Oft á tíðum þurfa stjórnendur hjálp við
að átta sig á eigin blindu blettum, ýmsu
hamlandi í eigin stjórnunarstíl eða per-
sónuleika sem þeir sjá ekki, þótt aðrir
sjái. Algengur vandi er að æðstu
stjórnendur fái ekki þá gagnrýni sem
þeir þurfa þar sem undirmennirnir segja oftar það
sem þeir telja yfirmanninn vilja heyra í stað þess
sem hann þarf að heyra. Stjórnendaþjálfunin nýtist
stjórnandanum við að fá skarpari sýn á sjálfan sig í
vinnuumhverfinu.
Leiðtogi ehf. mun vorið 2006 í samstarfi við
Coachutbildning Sverige bjóða menntun fyrir þá
sem hafa hug á að starfa sem persónulegir þjálfar-
ar og hljóta alþjóðlega viðurkenningu hjá
International Coach Federation. Námið hentar
einnig stjórnendum sem vilja nýta sér aðferðafræði
coaching-stjórnendaþjálfunar í starfi. Stofnendur
Leiðtoga eru þau Matilda Gregersdotter og Berg-
steinn Ísleifsson sem bæði starfa sem stjórnenda-
þjálfar. Nú þegar eru nokkrir starfandi ráðgjafar á
Íslandi. Menntun í ætt við þá sem Leiðtogi er að
hefja veitir þeim möguleika á að verða viðurkennd-
ir innan ICF. Menntunin veitir staðfestingu á hæfni
og þann verklega reynslutíma sem þörf er á til að
fullnægja fræðilega hluta viðurkenningarinnar.
Leiðtogi býður einnig reglulega upp á styttri nám-
skeið fyrir stjórnendur sem vilja tileinka sér að-
ferðafræði coaching-stjórnendaþjálfunar í starfi og
einkalífi.
Kannanir sýna að töluverður árangur hljótist af
því að nýta aðferða- og hugmyndafræði Coaching-
stjórnendaþjálfunar. Sumar þeirra sýna að ROI (re-
turn on investment) geti verið meira en 6/1 sem
þýðir að útlagður kostnaður skilar sér að minnsta
kosti sexfalt. Það fer þó eftir aðstæðum en það er
mat margra að coaching sé eitt öflugasta stjórnun-
artól sem fram hefur komið lengi. - hhs
M Á L I Ð E R
Coaching
Hvað er Coaching?
Coaching er einstaklingsmiðuð
leiðtogaþjálfun sem miðar að
því að laða fram það besta með
skilvirkri samtalstækni, verk-
efnum og fræðslu sem er sniðin
að veruleika viðmælenda. Um
er að ræða langtímasamband
sérþjálfaðs einkaráðgjafa og
stjórnanda sem byggir á fag-
legri nálgun og öflugum stuðn-
ingi við markmið einstaklinga
og fyrirtækja. Coaching er hlut-
laus og upp-
byggilegur vett-
vangur til þess
að þekkja og
nýta betur styrk-
leika og tækifæri
viðmælenda,
kortleggja vænt-
ingar og fá
stuðning við að
gera framtíðar-
sýn að veruleika
með raunhæfum
og árangursrík-
um úrræðum.
Einkaráðgjöf get-
ur einnig beinst
að því að stuðla
að lausnum á af-
mörkuðum
vandamálum inn-
an fyrirtækja og
stofnana.
Hvernig fer
Coaching fram?
Stjórnendaskóli
Háskólans í
Reykjavík býður
viðskiptavinum sínum upp á
Executive Coaching í áskrift
sem nær til dæmis yfir þriggja
mánaða tímabil. Coaching
byggir á hnitmiðuðum og vekj-
andi spurningum, viðtölum,
verkefnum, prófum, æfingum,
360˚ mati og fræðslu þar sem
stjórnandinn er í brennidepli.
Samtölin fara fram á skrifstofu
viðmælenda, í fundarherbergj-
um okkar, í síma eða í undan-
tekningartilfellum um netið.
Fyrir hverja?
Framúrskarandi íþróttamenn
fara ekki á ólympíuleikana án
þjálfara. Þeir treysta á þjálfar-
ann til að fylgjast með og
styðja við árangur, koma með
ábendingar um betri frammi-
stöðu og hvetja áfram innan
vallar sem utan. Með aðferðum
einkaráðgjafar ávinnst það
sama: hvatning til að ná sem
lengst, forskot á keppinauta og
hámarksárangur. Coaching er
fyrir þá sem vilja byggja á eig-
in styrkleikum og ná enn meiri
árangri í lífi og starfi. Fyrir-
tæki kaupa yfirleitt coaching
fyrir þá starfsmenn sem hafa
skarað fram úr og eru lykil-
starfsmenn til framtíðar. Talið
er að allt að 70 prósent æðstu
stjórnenda Fortune 1000-fyrir-
tækja nýti sér coaching.
Hver er árangurinn?
Rannsóknir hafa sýnt umtals-
verðan árangur af coaching
sem meðal annars
kemur fram í
auknum gæðum
og framleiðni,
aukinni festu
starfsmanna,
auknum hagnaði
og starfsánægju
(Business Wire
2001). Mat Public
Personnel Mana-
gement sýndi
fram á 88 pró-
senta framleiðni-
aukningu þeirra
sem fengu fræðslu
og coaching sam-
anborið við 22,4
prósenta aukningu
þeirra sem hlutu
eingöngu fræðslu.
Sérstaða Coaching
er sú að hér er
einstaklingurinn í
fyrirrúmi –
þjálfunin er sniðin
að persónulegum
þörfum hvers og
eins líkt og þjálfun
fremstu íþróttamanna heims.
Þjálfunin er mjög árangursmið-
uð og grundvallast á stefnu, sýn
og brag fyrirtækis. Coaching
styður einstaklinga við að finna
eigin svör við áskorunum sem
þeir standa frammi fyrir í lífi
og starfi.
Hvernig standa málin á Íslandi?
Vaxandi áhugi hefur verið um
heim allan á virði coaching. Ís-
lensk fyrirtæki eru í auknum
mæli að nýta sér aðferðir
coaching. Mikil eftirspurn er
eftir einkaþjálfun í fjármála-
og tryggingageiranum, sem og
hjá fjarskipta- og upplýsinga-
tæknifyrirtækjum og víðar.
Einnig eru opinber fyrirtæki að
kynnast kostum coaching. Góð
aðsókn hefur verið í vinnustof-
ur Stjórnendaskóla Háskólans í
Reykjavík „Coaching Clinic –
Að laða fram það besta“ þar
sem stjórnendur fá þjálfun í að
nýta aðferðafræði coaching við
eigin störf.
Framtíðarsýn gerð
að veruleika
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Guðrúnar
Högnadóttur
þróunarstjóra stjórnendaskóla
Háskólans í Reykjavík
Einkaþjálfun fyrir stjórnendur
Það færist í aukana að íslensk fyrirtæki ráði til sín nokkurs konar einkaþjálfara til
að hámarka frammistöðu stjórnenda sinna, fyrirtækinu og þeim sjálfum til hags-
bóta. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir kynnti sér hugmynda- og aðferðafræðina
sem liggur að baki Coaching-stjórnendaþjálfun.
MATILDA GREGERSDOTTER OG BERGSTEINN ÍSLEIFSSON,
STOFNENDUR LEIÐTOGA EHF. Vorið 2006 mun Leiðtogi ehf.
bjóða menntun í samstarfi við Coachutbildning Sverige fyrir þá sem
hafa hug á að starfa sem persónulegir þjálfarar. Námið hentar einnig
stjórnendum sem vilja nýta sér aðferðafræði coaching-stjórnenda-
þjálfunar í starfi.
18_19_Markadur lesið 6.12.2005 14:55 Page 2