Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 64

Fréttablaðið - 07.12.2005, Page 64
 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, Sigurður Hákonarson danskennari, Ástúni 8, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 3. desember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 12. desember kl. 13.00. Ásdís Sigurðardóttir Kristinn J. Reimarsson Halldór Bogi Sigurðsson Kristófer Rúnar, Sylvía Ósk og Líney Lára Stefán Stefánsson Dalía Marija Morkunaite Pétur Jökull Hákonarson Kolbrún Ólafsdóttir og aðrir ástvinir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Gríma Sveinbjörnsdóttir Hlíðarvegi 8, Kópavogi, lést á heimili sínu mánudaginn 28. nóvember. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 8. desember kl. 13.00. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. Stefnir Helgason Birna Stefnisdóttir Aðalsteinn Steinþórsson Brynja Sif Stefnisdóttir Agnar Strandberg Sigurður Hrafn Stefnisson Hekla Ívarsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Páll Þ. Ólafsson áður til heimilis að Jökulgrunni 17, Reykjavík, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 5. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fjölskylda hins látna. Elskulegur eiginmaður minn, Benedikt Björnsson vélstjóri, Gnoðarvogi 72, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 9. desember kl. 13.00. Sigrún Hólmgeirsdóttir „Við erum í þessum töluðu orðum að sigla yfir til Bras- ilíu,“ segir Ólafur Kristj- ánsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bol- ungarvíkur, á sjötugsafmæli sínu á Atlantshafinu. Fyrir viku héldu Ólafur og Her- dís Eggertsdóttir eiginkona hans af stað í kvartreisu um heiminn, eins og Ólafur kall- ar það, á skemmtiferðaskip- inu Cosa Viktoría. Þau hafa komið víða við en lagt var af stað frá Mílanó til Gíbralt- ar þaðan sem þau héldu til Lissabon og nú síðast Madeira. Þau ætla að flakka um heiminn næstu tvær vikur og snúa endurnærð til Íslands frá Rio de Janeiro. Ólafur segir skipið algert ævintýraskip sem bjóði upp á allt sem hugurinn girn- ist. „Hér er hægt að fara á diskótek, klassíska tónleika og margt annað er í boði fyrir eldri menn sem vilja taka því rólega,“ segir Ólaf- ur, sem ætlar að hafa það huggulegt í dag með góðum mat. „Maður verður bara að passa sig að borða ekki of mikið,“ segir hann hressi- lega og upplýsir blaðamann um að veðrið sé yndislegt og sjórinn spegilsléttur. Ólafur sat á bæjarstjóra- stóli í Bolungarvíkur í sex- tán ár og lét þar af störfum árið 2002. Þá hafði hann verið í bæjarstjórn í 36 ár. Þrátt fyrir löglegan eftir- launaaldur var Ólafur ekki af baki dottinn og gerðist framkvæmdastjóri heil- brigðisstofnunar bæjarins en því tímabili í ævi hans lýkur nú um áramótin þegar hann hættir þar. Ólafur þarf þó síður en svo að láta sér leiðast. Þessi fyrrverandi skólastjóri Tón- listarskóla Bolungarvíkur spilar á píanóið af mikilli gleði. „Við erum alltaf að leika okkur saman, ég, Villi Valli og Magnús Reynis, og nóg að gera,“ segir Ólaf- ur kátur og vonast til að geta ferðast víðar á næstu árum. „Ég sé að það eru margir sem eru mun eldri en ég hérna um borð,“ segir hann glettinn og sér fram á skemmtilegt ævikvöld. ÓLAFUR KRISTJÁNSSON Í BOLUNGARVÍK: ER SJÖTUGUR Í kvartreisu um heiminn LÆTUR AF STÖRFUM Ólafur hættir að vinna nú um áramótin en ætlar síður en svo að láta sér leiðast og vonast til að geta ferðast víða um lönd á næstu árum. MERKISATBURÐIR 1835 Fyrstu lestarteinarnir eru opnaðir í Þýskalandi. 1879 Jón Sigurðsson forseti andast í Kaupmannahöfn, 68 ára. 1941 Japanir gera loftárás á Pearl Harbor í Kyrrahafi. 1970 Íslensk kona fær nýra úr bróður sínum. Skurðað- gerðin er gerð í London og er það í fyrsta sinn sem nýrnaflutningur er gerður á Íslendingum. 1975 Indónesar ráðast inn í Austur-Tímor. 1988 Harður jarðskjálfti skekur Armeníu með þeim afleið- ingum að 25 þúsund látast. 2001 Áhöfn þyrlu varnarliðsins bjargar skipbrotsmanni úr Sigurborgu við mjög erfiðar aðstæður við Snæfellsnes. Á þessum degi árið 1983 fór fyrsta aftakan með banvænni sprautu fram í Huntsville-fangelsinu í Texas í Bandaríkjunum. Þá var Charles Brooks yngri, sem dæmdur hafði verið fyrir morð á bifvélavirkja, sprautaður í æð með natríumpentóþal. Eitrið er einnig þekkt sem „sannleikslyf“ þegar það er gefið í minni skömmtum. Yfirvöld í Texas, þar sem langflestar aftökur fara fram í Bandaríkjunum, ákváðu að aftökur færu þar fram með lyfjagjöf þar sem það væri mannúðlegri aðferð en þær sem áður voru notaðar líkt og aftökur með gasi, rafmagni eða hengingu. Á næsta áratug tóku 32 ríki, alríkisstjórnin og bandaríski herinn upp þessa aðferð við aftökur. Eftir nokkurra ára rannsóknir var ákveðið að aftökur skyldi framkvæma með því að dæla þrem- ur mismunandi lyfjum í líkama hinna dæmdu. Eftir hið fyrsta missir fanginn meðvitund, hið næsta lamar lungun og þindina og hið þriðja veldur hjartastoppi og þar með dauða. ÞETTA GERÐIST > 7. DESEMBER 1983 Fyrsta aftakan með banvænni sprautu AFTÖKUBEKKUR THORNTON WILDER (1897-1975) LÉST ÞENNAN DAG. „Brennsluofn er rit- höfundarins besti vinur.“ Thornton Wilder var bandarískur rithöfundur sem hlaut Pulitzer- verðlaunin 1938. AFMÆLI Ólafía Hrönn Jóns- dóttir leikkona er 43 ára. Larry Bird körfubolta- þjálfari er 49 ára. Tom Waits tónlistar- maður er 56 ára. Jóhann Ársælsson alþingismaður er 62 ára. Guðmundur Hall- varðsson alþingis- maður er 63 ára. ANDLÁT Anna Baldvina Vilhjálmsdóttir Perpinias er látin. Karl Markús Bende lést á heimili sínu, Freyjugötu 34, Reykjavík, miðvikudaginn 30. nóvember. Dagbjörg Björnsdóttir, Meist- aravöllum 23, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi laugardaginn 26. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Páll Hallgrímsson, fyrrverandi sýslumaður á Selfossi, lést laugar- daginn 3. desember. Sigurður Hákonarson, dans- kennari, Ástúni 8, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 3. desember. Elín Sigurðardóttir lést á Drop- laugarstöðum sunnudaginn 4. desember. Magnús Valur Þorsteinsson, Gaukshólum 2, Reykjavík, lést á Líknardeild Landspítala Landakoti sunnudaginn 4. desember. JARÐARFARIR 13.00 Svava Sigríður Vilbergsdótt- ir, Bólstaðarhlíð 68, verður jarðsungin frá Fossvog- skirkju. 13.00 Viðar Sævaldur Vilhjálms- son, vélstjóri, Túngötu 11, Ólafsfirði, verður jarðsung- inn frá Grafarvogskirkju. 15.00 Guðrún Aradóttir, Aragötu 5, síðustu ár Skjóli, verður jarðsungin frá Dómkirkj- unni. 15.00 Magnús Már Sigurjónsson, Skólagerði 69, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. Boðað hefur verið til stofn- fundar Félags aðstand- enda aldraðra í Hafnarfirði fimmtudaginn 15. desember klukkan 20 í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Aðalhvata- menn stofnunar félagsins eru Reynir Ingibjartsson, kortaútgefandi í Hafnarfirði, og Margrét Guðmundsdóttir, innanhússarkitekt og mynd- listarmaður, sem bæði hafa reynslu af því að fylgja öldr- uðum foreldrum inn og út af sjúkrastofnunum í lengri tíma. Þeim fannst því tími til kominn að stofnað yrði félag sem berjast skyldi fyrir réttindum og bættri aðstöðu aldraðra. Á fundinum munu flytja framsöguerindi þau Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri borg- ara í Reykjavík, Guðmund- ur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Sigþrúður Ingimundardótt- ir, hjúkrunarforstjóri Sól- vangs, og Guðjón Baldurs- son, læknir á slysa- og bráðadeild í Fossvogi, auk þeirra Margrétar og Reyn- is. Fundarstjóri verður Jóhann G. Bergþórsson verk- fræðingur og er fundurinn opinn öllum sem áhuga hafa á málefnum aldraðra. Stofnfundur Félags aðstand- enda aldraðra í Hafnarfirði FÉLAG AÐSTANDENDA ALDRAÐRA Reynir Ingibjartsson kortaútgefandi er einn hvatamanna að stofnun félagsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.