Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 80

Fréttablaðið - 07.12.2005, Side 80
 7. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR52 Auglýstu í Birtu Áhugasamir hafið samband við sölumenn: Laila 550 5848 laila@365.is - Kittý 550 5854 kitty@365.is Ester 550 5828 ester@365.is 3 glæsileg jólablöð 2 desember - tíska, snyrtivörur og jólagjafir 9 desember - allt um bækur og jólagjafir 16 desember - jólamatur og jólagjafir Mest lesna tímaritið tryggir athygli fyrir auglýsendur. Vikulestur tryggir líftíma auglýsingarinnar. Jólin eru byrjuð í Birtu Öflugasta sjónvarpsdagskráin MEST LESNA TÍMARIT LANDSINS FÓTBOLTI „Ég er sannfærður um að við munum vinna leikinn gegn Benfica,“ sagði Portúgalinn Car- los Queiroz, aðstoðarmaður Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, en liðið þarf nauðsynlega á sigri að halda í kvöld til þess að komast áfram í næstu umferð í Meistaradeild Evrópu. Queiroz þekkir leikstíl Ben- fica vel en hann fylgist vel með knattspyrnunni í heimalandi sínu. „Þetta verður erfiður leikur en við erum með leikmenn sem spila aldrei betur en þegar mest liggur við. Þó allir leikir séu stórleik- ir fyrir mér veit ég að leikmenn eru með hugann við þennan leik og þeir munu mæta einbeittir til leiks, enda kemur ekkert annað til greina en sigur.“ Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, segist vel finna fyrir pressunni fyrir leikinn en vonast til þess að leik- menn sínir bregðist við með rétt- um hætti. „Leikir eins og þessir skipta miklu máli fyrir leikmenn. Ég hef alltaf gert leikmönnum mínum það ljóst fyrir svona leiki að það hjálpi þeim enginn þegar út á völlinn er komið. Annað hvort eru menn tilbúnir til þess að stand- ast pressuna eða ekki. Það er mitt hlutverk að velja þá leikmenn sem ég tel líklegasta til þess að stand- ast pressuna, og yfirleitt hefur liði mínu gengið vel í mikilvægustu leikjunum.“ Sú ótrúlega staða er uppi í D- riðli að öll liðin í riðlinum eiga möguleika á því að komast áfram í næstu umferð, Villarreal er efst í riðlinum með sjö stig en Benfica neðst í riðlinum með fimm. Ronald Koeman, þjálfari Ben- fica, er sannfærður um að lið sitt geti komist áfram í næstu umferð. „Ef ég hefði ekki trú á mínu liði í þessum leik ætti ég ekki að vera þjálfa. Svona leikir koma aðeins á nokkurra ára fresti og nú reynir á leikmennina og mig sjálfan. Við munum leggja hart að okkur og auðvitað ætlum við okkur áfram í næstu umferð.“ magnush@frettabladid.is Man. Utd. verður að sigra Benfica í Portúgal Öll liðin í D-riðli Meistaradeildar Evrópu eiga möguleika á því að komast áfram í næstu umferð. Manchester United þarf á sigri að halda gegn Benfica. WAYNE ROONEY Rooney hefur leikið stórkostlega fyrir Manchester United að undanförnu og verður eflaust í lykilhlutverki í kvöld. FÓTBOLTI England er í fyrsta styrk- leikaflokki þeirra þjóða sem hafa tryggt sér keppnisrétt á HM í Þýskalandi en talið var líklegt að liðið þyrfti að sætta sig við að vera í öðrum styrkleikaflokki. „Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur. Ég tel þetta líka rétt þar sem leikmannahópur okkar er virkilega sterkur og nokkrir af bestu leikmönnum heims eru þar á meðal. Fólk má ekki gleyma því að við unnum okkar riðil með sannfærandi hætti,“ sagði Sven Göran Eriksson þegar það lá fyrir að England yrði í efsta styrkleika- flokki. Auk Englands eru Brasilía, Spánn, Þýskaland, Mexíkó, Frakk- land, Argentína og Ítalía í efsta flokki. Þessar þjóðir geta ekki lent saman í riðli á heimsmeist- aramótinu og því er einstaklega mikilvægt að vera á meðal þeirra þjóða sem settar eru í efsta styrk- leikaflokk. Flokkarnir eru fjórir í allt og geta þær þjóðir sem eru í flokk- unum ekki lent saman í riðli. Í flokki þrjú eru bara Evrópuþjóð- ir en í flokkum tvö og fjögur eru hins vegar þær þjóðir sem eru fyrir utan flokk eitt og þrjú, án þess að þeim sem raðað fyrir eftir styrkleika. Landslið Serbíu er í sérflokki þar sem sú regla gildir að aldrei megi fleiri en tvær Evr- ópuþjóðir vera saman í riðli. - mh Tilkynnt var í gær um skiptingu í styrkleikaflokka á HM: England mjög óvænt í fyrsta styrkleikaflokki SVEN GÖRAN ERIKSSON Sven Göran var afar ánægður með að England væri flokkað á meðal sterkustu landsliða. SKIPTING Í FLOKKA FYRSTI FLOKKUR ÞÝSKALAND BRASILÍA ARGENTÍNA ENGLAND FRAKKLAND ÍTALÍA MEXÍKÓ SPÁNN ANNAR FLOKKUR ÁSTRALÍA ANGÓLA GANA FÍLABEINSSTRÖNDIN TÓGÓ TÚNIS EKVADOR PARAGVÆ ÞRIÐJI FLOKKUR KRÓATÍA TÉKKLAND HOLLAND PÓLLAND PORTÚGAL SVÍÞJÓÐ SVISS ÚKRAÍNA FJÓRÐI FLOKKUR ÍRAN JAPAN SÁDI-ARABÍA SUÐUR-KÓREA KOSTA RÍKA TRINIDAD OG TÓBAGÓ BANDARÍKIN SÉRSTAKUR FLOKKUR SERBÍA HANDBOLTI „Við erum hóflega bjartsýnir enda verður þetta erf- iður leikur. Stjarnan hefur verið á góðu skriði að undanförnu og við verðum að eiga góðan dag ef við ætlum okkur að komast áfram í næstu umferð,“ sagði Rúnar Sig- tryggsson, lykilmaður í liði Þórs, en Þór tekur á móti Stjörnunni á heimavelli sínum í kvöld í SS-bik- arkeppni karla í handbolta. „Það hafa verið veikindi í okkar her- búðum en vonandi verða allir leik- menn orðnir klárir í slaginn. Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar, á von á erfiðum leik en Þór lagði Stjörnuna í deildar- leik fyrr í vetur. „Við vitum alveg að þetta verður hörkuleikur. Þórs- liðið er sterkt á heimavelli og við verðum að læra af leiknum fyrr í vetur. Þá héldum við ekki einbeit- ingunni og þess vegna töpuðum vil leiknum. En að undanförnu höfum við verið að spila ágætlega og höfum verið frekar óheppnir að vinna ekki bæði Val og Hauka. Leikmenn eru alltaf að ná betur og betur saman, og það á vonandi eftir að skila sér í næstu leikjum. En það er alveg ljóst að leikurinn gegn Þór verður prófraun á leik- menn og við verðum að standa okkur betur en við gerðum fyrr í vetur gegn Þór á Akureyri.“ FH og ÍBV eigast við í hinum leik kvöldsins í SS-bikarkeppninni og má búast við jöfnum og spenn- andi leik, en bæði lið hafa verið nokkuð frá sínu besta í vetur. Rúnar Sigtryggsson um leikinn í SS-bikarkeppninni: Berjumst til sigurs FÓTBOLTI Tyrkneski varnarmað- urinn Alpay var í gær dæmd- ur í fjögurra leikja bann vegna olnbogaskots sem hann gaf Guy Demel, leikmanni Hamborgar, en Alpay leikur með Köln. Reglulega berast fréttir af vandræðaganginum í Alpay en hann bíður nú dóms vegna slags- mála sem hann tók þátt í eftir landsleik Tyrklands og Sviss, en þar slóst Alpay heiftarlega við nokkra leikmenn Sviss. Hann var á sínum tíma rekinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa fyrir að blóta David Beckham í sand og ösku eftir að hann brenndi af vítaspyrnu. Staða Alpay hjá Köln þykir ótrygg eftir þennan dóm. - mh Alpay til vandræða: Í fjögurra leikja bann MEISTARADEILD EVRÓPU LEIKIR Í A-RIÐLI CLUB BRUGGE - BAYERN MÜNCHEN RAPID VÍN - JUVENTUS STAÐAN Í A-RIÐLI B. MÜNCHEN 5 4 0 1 9 3 12 JUVENTUS 5 4 0 1 9 3 12 CLUB BRUGGE 5 2 0 3 5 6 6 RAPID VÍN 5 0 0 5 2 12 0 LEIKIR Í B-RIÐLI SPARTA PRAG - THUN ARSENAL - AJAX STAÐAN Í B-RIÐLI ARSENAL 5 5 0 0 10 2 15 AJAX 5 3 1 1 10 6 10 THUN 5 1 0 4 4 9 3 SPARTA PRAG 5 0 1 4 2 9 1 LEIKIR Í C-RIÐLI UDINESE - BARCELONA WERDER BREMEN - PANATHINAIKOS STAÐAN Í C-RIÐLI BARCELONA 5 4 1 0 14 2 13 UDINESE 5 2 1 2 10 10 7 PANATHINAIKOS 5 1 1 3 3 11 4 WER. BREMEN 5 1 1 3 7 11 4 LEIKIR Í D-RIÐLI VILLARREAL - LILLE BENFICA - MANCHESTER UNITED STAÐAN Í D-RIÐLI VILLARREAL 5 1 4 0 2 1 7 LILLE 5 1 3 1 1 1 6 MAN. UTD. 5 1 3 1 2 2 6 BENFICA 5 1 2 2 3 4 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.