Fréttablaðið - 23.12.2005, Qupperneq 6
6 23. desember 2005 FÖSTUDAGUR
KJÖRKASSINN
Á að herða kröfur á starfs-
mannaleigur?
Já 88%
Nei 12%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eyðir þú meira en 50 þúsund
krónum í jólagjafir?
Segðu skoðun þína á visir.is
DÓMSMÁL Sigurður Freyr
Kristmundsson hefur játað fyrir
dómi að hafa orðið tvítugum pilti
að bana í húsi við Hverfisgötu í
Reykjavík að morgni laugardags-
ins 20. ágúst.
Sigurður, sem er 23 ára gam-
all, neitar því að um ásetning
hafi verið að ræða. Mál á hendur
honum var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á miðvikudag. For-
eldrar piltsins sem lést krefja
Sigurð um skaðabætur, móðir-
in 3.150.000 krónur og faðirinn
2.216.313 krónur.
Sveinn Andri Sveinsson,
lögmaður Sigurðar, segir hann
hafa játað önnur brot sem einnig
er ákært fyrir. Aðalmeðferð í
málinu sem fram fer í lok janúar
segir hann því að mestu koma til
með að snúast um „stig ásetnings“
í manndrápsmálinu.
Í ákæru ríkissaksóknara kemur
fram að Sigurður hafi stungið
þann sem lést með hnífi í brjóst-
holið, en stungan náði í gegnum
hjarta hans og í lifur.
Þegar atburðurinn átti sér stað
var Sigurður þegar úrskurðaður í
gæsluvarðhald, en ástand hans var
að sögn lögreglu með þeim hætti
að erfitt var að yfirheyra hann.
Lögregla var kvödd að íbúðinni
snemma á laugardagsmorni með
tilkynningu um að maður hefði
verið stunginn. Þegar hún kom á
vettvang hófust þegar lífgunartil-
raunir, en þær báru ekki árangur
og maðurinn lést skömmu síðar.
Í íbúðinni var lagt hald á hnífinn
sem talið var að hefði verið notað-
ur. Fleira fólk sem var í íbúðinni,
tveir karlmenn og ein kona, var
einnig handtekið og yfirheyrt en
sleppt fljótlega. Öll voru þau sögð
í annarlegu ástandi.
Auk manndrápskærunnar er
Sigurður ákærður fyrir að hafa í
byrjun ágúst brotist inn í íbúð við
Framnesveg í Reykjavík og stolið
þar fartölvu, stafrænni myndavél,
DVD-spilara og fleiru smálegu.
Þá er hann kærður fyrir að hafa
í fimm skipti frá því í nóvember
í fyrra og þar til um mitt síðasta
sumar brotið umferðarlög, með
akstri án réttinda og stundum
undir áhrifum áfengis eða annarra
vímuefna. olikr@frettabladid.is
SIGURÐUR FREYR KRISTMUNDSSON FÆRÐUR FYRIR DÓMARA Sigurður játaði í vikunni að
hafa orðið manni að bana með því að stinga hann í hjartastað með hnífi, en kvað ekki
hafa verið ætlun sina að verða manninum að bana.
Játaði manndráp
en neitaði ásetningi
Ungur maður játaði fyrir dómi að hafa orðið öðrum að bana með því að stinga
hann með hnífi. Hann neitar ásetningi. Aðalmeðferð fer fram í janúarlok. For-
eldrar látna piltsins gera kröfu um tæpar 5,4 milljónir króna í bætur.
LÖGREGLUMÁL „Ég varð dauðskelk-
aður og hélt að byssan mín væri
orðin að morðvopni,“ segir Jón
Halldórsson frá Hólmavík. Hann
fékk símhringingu frá lögregl-
unni í Reykjavík fyrir skemmstu
og var spurður hvort hann hefði
átt Dan Arms byssu. Jón játti
því en sagði að henni hefði verið
stolið þegar þjófur fór ránshendi
um Hólmavík og stal byssum,
peningaveskjum og fleiru fyrir
fjórum árum.
„Til allrar lukku sagði lög-
reglumaðurinn að byssa hefði
fundist en þjófurinn ætlaði sér
að selja gripinn en grandvar
maður fór að skoða hana og tók
niður númerið á henni og þannig
komst þetta upp. Maðurinn er nú
kominn bak við lás og slá,“ segir
Jón.
Jón skytta fékk þó ekki að
njóta endurfunda með þessum
gamla gæðagrip sínum þar sem
byssan var úrskurðuð ónýt vegna
gaps sem myndast hafði á henni
milli hlaups og skothúss.
Sigurður Marinó Þorvaldsson,
sem einnig varð af sinni byssu
þegar þjófurinn fór um bæinn
árið 2001, fékk hins vegar sína
byssu aftur og var hinn kátasti
með þann endurfund. - jse
Byssum sem stolið var fyrir fjórum árum komnar í leitirnar:
Eigandinn hélt að byssurnar
væru orðnar að morðvopni
JÓN HALLDÓRSSON OG SIGURÐUR MARINÓ ÞORVALDSSON, SKYTTURNAR TVÆR Sigurður er
hér með byssuna sem afkastamikill þjófur greip sumarið 2001 á Hólmavík. Jón hefur hins
vegar ekki fengið byssuna sína aftur þar sem hún er ónýt en er þó vel vopnaður.
DANMÖRK Lögregla og verslunar-
menn eru uggandi yfir fjölda betl-
ara á götum Kaumannahafnar um
þessar mundir.
Að því er Berlingske Tidende
hermir eru betlararnir sígaun-
ar frá Slóvakíu. Ferðast þeir til
Danmerkur með rútum og dvelja
í borginni í eina viku í senn. Talið
er að um fimmtíu manna hóp sé að
ræða úr sömu fjölskyldu. Betl er
ólöglegt í Danmörku en lögreglan
segist ekki hafa mannskap til að
hafa stjórn á ástandinu. - ks
Gestir frá Slóvakíu:
Sígaunar betla
á Strikinu
ÍRAK Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kom í óvænta heimsókn
til Íraks í gær. Hann heimsótti
breska hermenn í Basra, og sagði
þeim að hann væri þeim þakklát-
ur fyrir starfið sem þeir inntu af
hendi í Írak.
Að sögn BBC ítrekaði Blair
að engar ákvarðanir hefðu verið
teknar um heimkvaðningu her-
liðsins heldur sagði hann við
hermennina að það væri í þeirra
höndum að meta hvenær verkinu
væri lokið. Talið er þó líklegt að
Bretar dragi verulega úr herafla
sínum í Írak strax á næsta ári.
Donald Rumsfeld, landvarna-
ráðherra Bandaríkjanna, kom
einnig við í Írak í gær. ■
Tony Blair í Írak:
Óvíst hvenær
herinn fer burt
Í HÓPI HERMANNA Breskir dátar í Basra
virtust ánægðir með að sjá forsætisráð-
herra sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐUR Ekki er útlit fyrir að jólin
verði hvít nokkurs staðar á land-
inu, að sögn Helgu Ívarsdóttur,
veðurfræðings á Veðurstofunni.
Hún útilokar þó ekki að það
verði hvítflekkótt jól fyrir norð-
an. „Þar er einhver snjór og það
er spurning hvort hann verður
farinn á aðfangadagskvöld. Það
mun hlýna og kannski rigna lít-
illega þannig að snjórinn bráðn-
ar frekar hratt. Það fer svo bara
eftir snjómagninu hvað hann er
fljótur að hverfa. Á Akureyri er
allt autt núna og ekki líklegt að
það breytist fram á aðfangadag,“
segir Helga og tekur fram að það
sé mjög lítill snjór á landinu.
Jólaveðrið sunnan- og vestan-
lands verður miður glæsilegt og
uppáklæddir mega búast við vætu.
„Á aðfangadag er vaxandi sunn-
an- og suðaustanátt og gengur í
stífa sunnanátt með rigningu. Það
hlýnar á öllu landinu en rigningin
verður aðallega sunnan og vest-
an til. Þannig heldur það áfram á
jóladag,“ segir Helga.
Annan í jólum lítur út fyrir að
það muni kólna vestanlands og
jafnvel snjóa. Á þriðjudaginn er
útlit fyrir suðaustanátt og él.
Veðurstofan spáir ekki lengra
en sex daga fram í tímann og því
mun áramótaspá ekki liggja fyrir
fyrr en um helgina. - sh
Veðurstofan spáir rauðum jólum um mestallt land og vætu fyrir vestan:
Rok og og rigning um jólin
VEÐRIÐ Í GÆR Búast má við að það verði
heldur dimmara yfir höfuðborgarsvæðinu
um jólin en var í gær.
KJARAMÁL Fulltrúar Samfylking-
arinnar í bæjarráði Kópavogs
gagnrýna harðlega afskiptaleysi
meirihluta bæjarstjórnar gagn-
vart þeirri kreppu sem upp er
komin á leikskólum bæjarins.
Hafa þeir lagt fram tillögu
þess efnis að nú þegar verði
óskað eftir samstarfi við Starfs-
mannafélag Kópavogs með það
að markmiði að tryggja eðlilegt
starf á leikskólum bæjarins enda
sé þar um algera grunnþjónustu
að ræða og við því verði að bregð-
ast strax. ■
Samfylkingin í Kópavogi:
Gagnrýnir
aðgerðaleysi
FINNLAND Tjaldsvæðinu í bænum
Villmanstrand í Finnlandi verður
sennilega lokað næsta sumar því
þá verður grafið þar eftir sönn-
unum fyrir þeim sögusögnum að
hundruð finnskra liðhlaupa hafi
verið teknar þar af lífi án dóms
og laga árið 1944.
Upp undir 600 finnskir her-
menn flúðu sókn Sovétmanna
á þessum slóðum vorið 1944 og
hefur verið talið að þeir hafi
verið teknir af lífi og grafnir.
Fjórar beinagrindur fundust
nýlega á staðnum og vilja yfir-
völd því leita af sér allan grun. ■
Uppgröftur í Finnlandi:
Leitað eftir
liðhlaupum
NOREGUR, AP Fylkisstjórnin í
Suður-Þrændalögum í Noregi
ákvað á dögunum að sniðganga
allar vörur frá Ísrael vegna her-
náms Ísraela á svæðum Palestínu-
manna. Ályktunin hefur nú kallað
mikinn reiðilestur hagsmunasam-
taka gyðinga víða um heim yfir
norsku héraðsstjórnarmennina.
Torill Skærseth, fulltrúi Rauða
kosningabandalagsins í héraðs-
stjórninni, tjáði héraðsblaðinu
Adressavisen að hún vonaðist til að
önnur héruð í Noregi myndu taka
sér sniðgönguákvörðunina til fyr-
irmyndar. Hún líkti stefnu Ísraels-
stjórnar við apartheid-stefnu hvíta
minnihlutans í Suður-Afríku. ■
Suður-Þrændalög í Noregi:
Sniðganga vör-
ur frá Ísrael
Mannskæð átök Ísraelskir hermenn
skutu tvo Palestínumenn til bana í
borginni Nablus á Vesturbakkanum í
gærmorgun. Hermennirnir gerðu áhlaup
á hús meintra uppreisnarmanna og að
sögn vitna hófu þeir skothríð á menn
sem reyndu að flýja. Skömmu síðar
slösuðust svo ísraelskir hermenn á
Gaza-ströndinni þegar uppreisnarmenn
skutu úr sprengjuvörpu á herstöð.
PALESTÍNA