Fréttablaðið - 23.12.2005, Blaðsíða 44
23. desember 2005 FÖSTUDAGUR32
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.408 +0,66% Fjöldi viðskipta: 223
Velta: 4.650 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 49,50 -0,60% ... Bakkavör
51,80 +0,40% ... FL Group 18,50 +2,20% ... Flaga 4,86 +0,00%
... HB Grandi 9,50 +0,00% ... Íslandsbanki 17,00 +0,60% ... Jarð-
boranir 24,70 +0,40% ... KB banki 713,00 +1,30% ... Kögun 59,80
+0,00% ... Landsbankinn 25,900 +0,40% ... Marel 65,20 -0,60%
... SÍF 4,18 +0,00% ... Straumur-Burðarás 15,80 -0,60% ... Össur
113,00 +1,40%
MESTA HÆKKUN
FL Group +2,21%
Össur +1,35%
MESTA LÆKKUN
Dagsbrún -0,72%
Straumur -0,63%
Marel -0,61%
SKATA
saltfiskur,
siginn fiskur og kinnar.
OPIÐ Í DAG
10-22
Skuldabréfalán Símans
hækka úr rúmum 6 millj-
örðum í tæpa 45 milljarða.
Af þeim 66,7 milljörðum króna
sem eigendur Skipta ehf. borguðu
fyrir Símann í sumar lögðu þeir
sjálfir til 30 milljarða. Afgangur-
inn, eða tæpir 37 milljarðar, verð-
ur fenginn að láni.
Á hluthafafundi Símans á
þriðjudaginn var samþykkt að
Skipti og Íslenska sjónvarpsfélag-
ið rynnu inn í samstæðu Símans.
Í staðinn fengu eigendur þessara
félaga hlutabréf í Símanum. Sím-
inn yfirtók hins vegar eignir og
skuldir Skipta og Íslenska sjón-
varpsfélagsins.
Í staðinn fyrir að eiga í Skipti,
sem síðan átti tæp 99 prósent í Sím-
anum, munu eigendur Skipta eiga
beint í Símanum eftir samruna
félaganna. Verður eignarhlutur
hvers og eins í svipuðu hlutfalli
og eign þeirra í Skipti var. Leggja
þeir þrjátíu milljarða hlutafé inn
í Símann, sem síðan tekur yfir
skuldina sem varð til þegar Síma-
kaupin voru fjármögnuð.
Þeir hluthafar sem fyrir voru í
Símanum fá afhent viðbótarhlutafé
að nafnverði 678 milljónir króna. Er
það gert svo verðmæti eignarhluta
þeirra rýrni ekki þar sem Síminn
tekur yfir skuldir Skipta. Þessir
hluthafar eru rúmlega þúsund tals-
ins og áttu áður 1,12 prósent hluta-
fjár. Eftir samrunann munu þeir
eiga 2,45 prósent í félaginu.
Samkvæmt efnahagsreikn-
ingi Símans, fyrir samrunann við
Skipti og Skjáinn, námu skulda-
bréfalán fyrirtækisins rúmlega
sex milljörðum króna í júní 2005.
Eftir samrunann nema skulda-
bréfalánin 44,6 milljörðum króna.
Er samruninn miðaður við 30.
júní 2005. Síminn er því skuldsett-
ari en áður en eigið fé hans hefur
verið aukið á móti. Eiginfjárhlut-
fallið er því um 37 prósent.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Símans, sagði á hlutafafundi á
þriðjudaginn að unnið væri að
endurfjármögnun Símans. Verður
tekið sambankalán, sem íslensku
bankarnir standa að, fyrir rúm-
lega þrjátíu milljarða króna. -bg
Tóku 37 milljarða króna
lán til að kaupa Símann
Tímaritið Frjáls verslun hefur
valið Sigurð Einarsson, starfandi
stjórnarformann KB banka, og
Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra
KB banka, menn ársins 2005 í
íslensku atvinnulífi.
„Þeir hljóta þennan heiður
fyrir framúrskarandi hæfni við
rekstur bankans, stækkun hans,
farsælan feril, athafnasemi og
frumkvöðlastarf í útrás íslenskrar
bankaþjónustu og þróun íslensks
fjármagnsmarkaðar,“ segir Jón
G. Hauksson ritstjóri í fréttatil-
kynningu. Efnahagsreikningur og
markaðsverðmæti bankans hafi
meira en þúsundfaldast frá því að
Sigurður Einarsson varð banka-
stjóri, en Hreiðar tók síðar við
þeirri stöðu. - bg
Bankastjórar KB
banka menn ársins
FRÁ FUNDI HLUTHAFAR. Lýður Guðmundsson útskýrði fyrir hluthöfum hvaða forsendur
lægju fyrir samruna Símans, Skipta og Skjás eins.
SIGURÐUR EINARSSON OG HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON.
Norska olíuleitarfyrirtækið Aker
Drilling er nýjasta fyrirtækið úr
Aker-samstæðunni sem er skráð í
Kauphöllina í Osló.
Félagið var skráð á miðvikudag-
inn og hækkaði um sjö prósent frá
útboðsgengi sem var 36,85 norskar
krónur á hlut. Markaðsvirði félags-
ins er um 37 milljarðar.
Samstæðan er að stærstum
hluta í eigu Aker ASA sem hinn
góðkunni athafnamaður, Kjell
Inge-Rökke, fer fyrir. Sex dótt-
urfélög Aker-samstæðunnar eru
skráð á hlutabréfamarkað auk
Aker.
Stjórnendur Aker Drilling
reikna með að gera þrjá fimm ára
borsamninga á fyrsta ársfjórð-
ungi næsta árs. - eþa
Rökke-veldið
stækkar enn
EasyJet hefur nýtt sér rétt í
samningi við Airbus-flugvéla-
verksmiðjurnar um að kaupa
tuttugu nýjar A319 flugvélar og
koma þær til viðbótar við þær 120
flugvélar sem easyJet samdi um
að kaupa í lok árs 2002.
Vélarnar verða notaðar til að
styðja við mikinn vöxt easyJet
fram til ársins 2009. Kaupverð-
ið er áætlað um 57 milljarðar
króna.
Airbus hefur afhent 59 vélar
frá því ritað var undir samning-
inn og 61 vél bætist í hópinn til
ársins 2008 auk þessara tuttugu.
Gengi á bréfum í easyJet hefur
hækkað um fjórtán prósent í
desember og nemur markaðsvirði
félagsins nú um 165 milljörðum
króna. Frá áramótum hefur eas-
yJet hins vegar hækkað um 100
prósent.- eþa
EasyJet kaupir 20 Airbus-vélar
Íbúðalánasjóður verður að hækka
vexti á íbúðalánum í kjölfar
útboðs á íbúðabréfum, sem lauk í
gærmorgun. Lægri vextir sjóðsins
verða 4,45 prósent en hærri vextir
sjóðsins 4,70 prósent. Greiða verð-
ur sérstaka uppgreiðsluþóknun ef
lánin á lægri vöxtunum er greidd
upp.
Íbúðalánasjóður stendur fyrir
útboðum á íbúðabréfum til að
fjármagna útlán sín. Þau kjör sem
hann fær í þessum viðskiptum
ráða vöxtum íbúðalána. Fái hann
verri kjör þarf að hækka vextina
og öfugt ef kjörin batna.
Hallur Magnússon, sviðsstjóri
hjá Íbúðalánasjóði, segir þessa
niðurstöðu í samræmi við þróun
ávöxtunarkröfu á markaðnum
undanfarna daga.
Íbúðalánasjóður tilkynnti um
útboðið eftir lokun markaða á
miðvikudag og þurftu áhugasam-
ir að senda inn tilboð fyrir opnun
markaða í gær. Þetta eru nýmæli
því venjulega stendur útboðið yfir
þegar markaðurinn er opinn.
Hallur segir þetta gert í ljósi
þess að einn banki hafi reynt að
hafa áhrif á kjör Íbúðalánasjóðs
með mikilli sölu íbúðabréfa í síð-
asta útboði. Þess vegna hafi þetta
verið gert fyrir utan opnunar-
tíma markaðarins. Skoðað verði í
framhaldinu hvort þessi leið verði
notuð aftur.
-bg
Íbúðalánasjóður hækkar vexti
Kastró-jól kaupmanna
Kaupmenn eru kátir með jólaverslunina og
almennt er búist við að metsala verði í jólasölunni
í ár. En það kann að vera fullmikið af því góða að
draga jólaverslunina
á langinn. Á forsíðu
Fréttablaðsins í gær,
þann 22. desember,
birtist auglýsing frá
Smáralind þar sem
minnt var á að fjórir dagar
væru til jóla. Minn-
ir þetta óneitan-
lega á söguna af
Kastró sem lét
fresta á jólunum á
Kúbu til að þess að
bjarga uppskerunni.
Ekki er víst að
þessi mistök hafi
kætt litla fólkið sem bíður óþreyjufullt eftir hátíð
ljóss og friðar.
Talnaspeki í Toyota
Nýr eigandi Toyota-umboðsins Magnús Kristinsson,
nýr eigandi Toyota-umboðsins, afhenti kaupanda
Toyota-bifreið sem var númer 4.544 á árinu í sölu
umboðsins. Með Magnúsi afhenti bílinn Björgvin
Njáll Ingólfsson, deildarstjóri hjá fyrirtækinu, en
Björgvin varð einmitt 44 ára þennan dag. Í fljótu
bragði virðist hvorug talan bera merki mikilla tíma-
móta. Fyrir Magnús og fjölskyldu hans hefur gæfa
fylgt tölunni 44. Þannig var aflaskipið Bergur með
kennimarkið VE 44 og eignarhaldsfélag Magnúsar,
sem grætt hefur mikið á fjárfestingu í Straumi, heitir
MK 44 og það heiti prýðir einnig númeraplötur
bifreiðar Magnúsar. Svo kann einhverjum að þykja
það skemmtilegt til viðbótar þessu að Toyota-
umboðið selur víst talsvert af 4x4 bifreíðum.
Peningaskápurinn...
Íslandsbanki var ráðgjafi við kaup á
Rahbekfisk í Danmörku. Kaupendurnir
voru RedSquare Invest og stjórnendur
Rahbekfisk. Danska fyrirtækið stendur
framarlega í framleiðslu á tilbúnum
réttum í Evrópu.
Nafnvirði sjávaraflans jókst um 1,6
prósent á fyrstu níu mánuðum ársins
samanborið við sama tíma í fyrra og
nam tæpum 52 milljörðum. Greiningu
Íslandsbanka þykir það markvert þar
sem krónan hefur haldist sterk á þessu
ári.
Þjóðverjar kaupa jólatré fyrir fjörutíu
milljarða króna á þessu ári samkvæmt
frétt Börsen. Alls er talið að 27,7
milljónir trjáa seljist í Þýskalandi fyrir
jólin. Meginpartur trjánna kemur frá
Danmörku.
MARKAÐSPUNKTAR
KAUPA NÝJAR FLUGVÉLAR EasyJet hefur
keypt tuttugu Airbus-vélar til viðbótar við
þær 120 sem samið var um árið 2002.
Hluthafahópur Símans*
Exista ehf. 43,6%
Kaupþing banki hf. 29,1%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 8,0%
Gildi – lífeyrissjóður 8,0%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 2,2%
Samvinnulífeyrissjóðurinn 2,2%
MP Fjárfestingarbanki hf. 1,9%
Imis ehf. (Skúli Þorvaldsson) 1,9%
Hluthafar ÍS 0,6%
Aðrir hluthafar 2,4%
*Miðað við 20. desember 2005
Tölur miðast við 22. desember kl. 14:19